10.03.1980
Efri deild: 44. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (1034)
111. mál, lántaka Framleiðsluráðs landbúnaðarins
Egill Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að hefja hér miklar umræður frekar en orðið er. Því var lýst yfir við fyrri umr. af hendi okkar sjálfstæðismanna, að við mundum fyrir okkar leyti vilja greiða fyrir því, að þetta mál gengi hindrunarlítið í gegnum þessa hv. d., og við erum sama sinnis enn. Það hefur að sjálfsögðu ekki neitt skýrst, hvort ríkisstj. væri búin að koma sér saman um afgreiðslu þessa máls. Það hefur ekki komið fram í ræðum þeirra tveggja stjórnarliða sem hér hafa talað, enda er það kannske feimnismál og reyndar best fyrir menn að muna sem minnst eftir því hvað gerðist hér á hv. Alþ. fyrir hálfum mánuði. En alveg burt séð frá þeim atburðum er afstaða okkar sjálfstæðismanna að því leyti óbreytt, að við viljum að þetta mál komist hér áfram, þótt hins vegar hafi gefist hér á vissan hátt tækifæri til mikillar almennrar umr. um landbúnaðarmál. En samt sem áður vildi ég taka það hér fram í þriðja sinn og Ieita eftir því við hæstv. ríkisstj. að fá spurningum mínum
svarað. Hæstv. landbrh. hefur ekki verið hér í þessari hv. d. aðra tíma þegar ég hef lagt fram þessa spurningu. Hún hefði samt átt að geta komist til hans. En það út af fyrir sig er ærið mál fyrir bændurna í þessu landi að fá vitneskju um hvenær á að greiða þeim það sem af þeim var óbeint tekið við verðákvörðun 1. sept. Það var, eins og menn væntanlega vita, algerlega að tilhlutan þeirrar ríkisstj. sem þá sat, þegar eðlilegri hækkun á búvöruverðinu var frestað og bændurnir í þessu landi hlutu af því tjón sem mun hafa numið ekki mjög langt frá hálfum milljarði kr. Það er ekki síður ástæða til að ámálga þessa fsp. vegna þess að núv. sjútvrh., sem fór með landbúnaðarmál í þeirri ríkisstj., gaf þær yfirlýsingar á aðalfundi Stéttarsambandsins að þetta tjón yrði bætt bændum þessa lands.
Nú hefur hæstv. landbrh. og hæstv. ríkisstj. að sjálfsögðu haft góðan tíma og gott rúm til þess að meta þetta mál. Það er búið að semja fjárlög og það er alveg útilokað annað en að við umfjöllun á nýju fjárlagafrv. hafi verið gengið til endamarkanna á því að kanna þetta mál. Þannig ætti að vera auðvelt fyrir hæstv. landbrh. að gefa um það alveg skýr svör, hvernig ríkisstj. hyggst afgreiða þetta mál og hvenær hún ætlar að gera það.
Ég ætla ekki að orðlengja þetta miklu meira, en ég vil hins vegar undirstrika það, sem reyndar hefur komið hér fram í máli hv. 3. þm. Suðurl., að þennan vanda við skort á útflutningsbótum ber ekki sérstaklega að rekja til erfiðs árferðis. Hann ber fyrst og fremst að rekja til þess að bændurnir í þessu landi og samtök þeirra fyrir þeirra hönd hafa alls ekki fengið þær stjórnunaraðgerðir í sambandi við framleiðslumálin sem þaú hafa beðið um. Ég hygg að það fari að nálgast einn áratug síðan bændasamtökin fóru að setja fram óskir um breytingar á framleiðsluráðslögunum í þeim dúr að það væri hægt að stjórna þessari framleiðslu. En það hefur ekki fengist fyrr en á s.l. vetri og þá á mjög ófullkominn og að mörgu leyti vafasaman hátt. Það er þess vegna grundvallarforsenda fyrir þessari breytingu á þessum bótum, að það hefur staðið á ríkisvaldinu að fá bændasamtökunum í hendur þær stjórnunaraðgerðir, sem þeim eru alveg nauðsynlegar. Og ég vil undirstrika það alveg sérstaklega, að þau mál eru á engan hátt komin neitt á viðhlítandi hátt í rétt horf.
Að öðru leyti aðeins undirstrika ég það sem hefur komið hér fram, m.a. hjá hæstv. landbrh., að ríkisstj. ætlaði að marka sína stefnu í sambandi við málefni í íslenskum landbúnaði með þál. frá Alþingi. Hæstv. landbrh. sagði við setningu Búnaðarþings, að þeir þrír aðilar, sem að ríkisstj. stæðu, mundu tilnefna hver sinn mann í n. til þess að semja þá þáltill. Og allir geta rennt grun í það, vegna hvers hæstv. landbrh. talar um þrjá aðila í þessu sambandi. En Sjálfstfl. mun að sjálfsögðu, þegar að umr. og afgreiðslu þess máls kemur, setja fram sín sjónarmið í sambandi við framleiðslumálin almennt og viðhorf sín gagnvart íslenskum landbúnaði þegar á heildina er lítið. Þess vegna m.a. látum við það nægja sem hefur komið hér fram, bæði við fyrri umr. og þessa umr., í sambandi við þetta mál. Ég undirstrika það sem við höfum áður sagt, sjálfstæðismenn, að við munum ekki tefja framgang þessa máls við afgreiðslu á Alþingi.