10.03.1980
Efri deild: 44. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)
111. mál, lántaka Framleiðsluráðs landbúnaðarins
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Ég hygg að það verði mikil ógæfa því samfara, ef till. meiri hl. fjh.- og viðskn. verður samþ., og þá sérstaklega fyrir bændur sem munu gjalda þess þegar fram í sækir hvernig á málum hefur verið haldið. Og nú er enn á ný kynt undir þeirri óreiðu, sem hefur verið í stefnumörkun landbúnaðarins.
Ég vil vekja athygli á því, að þær till., sem Alþfl. hefur gert um breytingar á landbúnaðarstefnunni, eru alveg samhljóða þeim tillögum sem Alþýðusambandið hefur lagt fram. Þar fara leiðir Alþfl. og Alþýðusambandsins saman eins og svo víða. Og það væri fróðlegt að vita hver yrði umsögn miðstjórnar Alþýðusambandsins ef þessar till. yrðu sendar henni til umsagnar.
Það þarf að koma fram, að hér er verið að greiða þessar auknu útflutningsuppbætur vegna þess að óvenjumikið góðæri var í landinu árið 1978, en ekki vegna þess að það voru harðindi. Hitt er annað, að við Alþfl.-menn höfum tekið mjög sterkt undir það, að það þurfi að hjálpa til þegar illa gengur vegna harðinda, eins og t.d. 1979, en það er alls ekki það sem þessi till. fjallar um.
Staðreyndin er sú, að bændur eru farnir að sjá í hvert óefni stefnir. Bændur eru náttúrlega þannig settir, að sumir þeirra eru allvel settir, aðrir eru mjög illa settir og e.t.v. er innan bændastéttarinnar fátækasta fólkið í landinu. En raunin er sú, að með því að breyta ekki um stefnu í landbúnaðarmálum erum við að viðhalda fátækt þessara manna, við erum að viðhalda búskap þessara manna, sem í raun geta aldrei séð til lands vegna þess hvernig málum er háttað.
Ég gæti vel hugsað mér að þeim fjármunum, sem nú á að verja til að greiða útflutningsbætur á landbúnaðarafurðir, yrði varið til þess að aðstoða bændur við að hætta búskap, aðstoða bændur við að skapa sér ný atvinnutækifæri og betri lífskjör. En því miður virðist ekki vera vilji til þess hjá hv. framsóknarmönnunum hér á Alþingi.
Hv. þm. Jón Helgason ræddi um það, að 1972 hefði komið fram einhver till. á Alþingi um stefnubreytingu í þessum efnum. Ekki er nú áhuginn mikill fyrst ekki hefur verið bryddað á þessu aftur. Ekki er málafylgjan mikil að manni sýnist. En ég vil á ný endurtaka það, að Alþýðusambandið og Alþfl. eru mjög á því að breyta þurfi til hér, taka beri upp nýja stefnu í landbúnaðarmálum sem geri ráð fyrir því að niðurtalning útflutningsuppbóta verði hafin.