11.03.1980
Sameinað þing: 29. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (1063)

224. mál, lánakortastarfsemi

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Forseti. Ég vil þakka hæstv. viðskrh. og fyrrv. viðskrh. fyrir upplýsingar þeirra. Ég vil hins vegar ítreka að það er augljóst að hægt er að stofna til fjármálafyrirgreiðslu af ýmsu tagi hér í landi án leyfis yfirvalda og óháð þeirra eftirliti. Ég vil minna á að fyrir örstuttu beitti þáv. dómsmrh., hv. þm. Vilmundur Gylfason, sér fyrir því, að Rannsóknarlögregla ríkisins rannsakaði starfsemi leigumiðlunar einnar hér í bæ, sem jafnframt hafði stundað atvinnumiðlun, og hafði fyrirtækið velt stórfé án þess að raunverulega nokkur hefði eftirlit með því hvort viðskiptavinir töpuðu þar fé.

Mér er svo sem ekki kunnugt um hvort þeirri rannsókn er lokið, enda skiptir hún ekki máli í þessu sambandi. Mergurinn málsins hér er sá, að ég tel að engin raunveruleg ástæða sé til þess að auka á fjölbreytni slíkrar fjármálaþjónustu. Ég held að það sé ekki minnsta ástæða til þess að taka upp nýja fyrirgreiðslu af þessu tagi. Ég tel að kaupmenn landsins séu fullfærir um að taka við þeim peningum, sem fólk á til þess að kaupa fyrir, og sem betur fer er ekki svo komið að við getum ekki gengið hér á milli húsa með einhverja fjármuni á okkur án þess að eiga á hættu líkamsárásir og meiðingar. Fyrir venjulega íslenska borgara er það foraðsfen, sem heitir íslenskt fjármálalíf, að verða óþolandi. Það er auðvitað árangur þess verðbólguástands, sem við höfum búið við um áratugi, að fólk treystir ekki lengur og trúir ekki á peningana sína, heldur ftýtir sér að koma þeim í fasta hluti og jafnvel áður en það á þessa peninga til. Ég er satt að segja hrædd við að fara að búa til nýtt kerfi til þess að hjálpa fólki að kaupa meira en það hefur efni á. Og þó að þetta þrífist annars staðar og einkum og sér í lagi þar sem það liggur fyrir að þetta þrífst mjög illa, — nýlega las ég í tímariti, sem fjallar um verslunarmál, grein um þetta fyrirbæri, þar sem það var kallað „verra en eiturlyf“, þá held ég að við ættum að forðast í lengstu lög að bæta slíkri plágu við það sem við höfum þegar af slíku.

Í sömu grein var talað um að um svipað leyti og þessi kort tóku að ná almennri útbreiðslu jukust sakamál, sem fjölluðu um peningavanskil af öllu tagi, um 83% í Svíþjóð. Ég tel að við höfum alveg nóg á okkar könnu í þeim efnum þó að ekki sé farið að bæta við það, og ég vil skora á viðskiptayfirvöld í landinu og hæstv. viðskrh. að kanna mjög vel, hvort einhver fengur er að þessu, og setja lög um slíkt. Ég held að það fari smávegis hrollur niður eftir bakinu á velflestum Íslendingum þegar farið er að tala hér um hlutafélagalög. Það mætti kannske byrja á að athuga þau eitthvað. En ég held að það sé lítil ástæða til þess að bæta við nýrri tegund af slíku og nær að snúa sér þá frekar að því að búa til ný og marktæk lög um hlutafélög, sem raunverulega er hægt að fóta sig á og vinna eftir, í stað þess að fara að eyða mikilli orku í að lögfesta þetta, nema þá til þess eins að koma í veg fyrir að lánakort nái nokkurri útbreiðslu hér.