11.03.1980
Sameinað þing: 29. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (1065)

74. mál, Sölustofnun lagmetis

(Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Um áraraðir hefur það verið umræðuefni víðs vegar hér á landi, að nauðsyn bæri til og miklir möguleikar væru á að efla útflutning íslensks lagmetis og styrkja þannig atvinnugrundvöll landsmanna og markaðsstöðu þeirra erlendis. Þrátt fyrir mikla umræðu og ákveðnar yfirlýsingar um fyrirheit á þessu sviði, þá virðist þróunin á síðari árum og þó sérstaklega nú á síðustu mánuðum og misserum stefna í þveröfuga átt, að útflutningsstarfsemi á sviði lagmetisiðnaðar sé í stórfelldri hættu, bæði vegna þróunar þeirrar meginstofnunar, sem þessu hefur sinnt, og eins vegna síaukinna frétta um gallaðar vörur og aðra meinbugi á framleiðslu þessari, sem stefnir markaðsstyrkleika okkar erlendis í stórfellda hættu.

Undanfarna mánuði hafa borist fréttir um hvert áfallið á fætur öðru sem stefnir tilveru Sölustofnunar lagmetis, að því er virðist, í stórfellda hættu og vekur jafnframt mjög alvarlegar spurningar um framtíð markaða Íslendinga erlendis fyrir útflutt lagmeti. Meðal þessara áfalla, sem fréttir hafa borist af á síðustu vikum og mánuðum, má nefna nokkur atriði.

T.d. hafa stjórnvöld eða fulltrúar þeirra tekið ákvörðun um að eitt af þremur stærstu fyrirtækjunum í Sölustofnun lagmetis, Norðurstjarnan í Hafnarfirði, gangi út úr því fyrirtæki. Virðast stjórnvöld á þann hátt taka sig sérstaklega fram um að skerða rekstrargrundvöll og möguleika fyrirtækisins.

Í öðru lagi er ljóst, að annað af þremur stærstu fyrirtækjunum ásamt Norðurstjörnunni í þessari sölustofnun, K. Jónsson & Co. á Akureyri, hefur lent í mjög margvíslegum erfiðleikum og fjölþættir gallar komið fram á framleiðslu fyrirtækisins. Rætt hefur verið um það oftar en einu sinni á opinberum vettvangi á undanförnum vikum, að e.t.v. þurfi að selja fyrirtækið.

Í þriðja lagi hefur stjórnarformaður fyrirtækisins, hv. þm. Lárus Jónsson, að því er fréttir segja, neitað beiðni iðnrn. um að segja af sér formennsku, en tekið sér hins vegar leyfi til vors, en framkvæmdastjóri fyrirtækisins hins vegar sagt upp störfum.

Til viðbótar má nefna, að söluskrifstofa Sölustofnunar lagmetis í New York hefur verið lögð niður, en starfandi formaður í fyrirtækinu getur þess hins vegar í blaðaviðtali, að sá sem rekið hafi skrifstofuna, sé reiðubúinn að stofna eigið fyrirtæki og taka að sér þá starfsemi sem söluskrifstofan hafi haft. Vekur það satt að segja ýmsar spurningar um að sá maður, sem staðið hefur þannig að rekstri skrifstofunnar að það hafi orðið að leggja hana niður, lýsir sig hins vegar reiðubúinn til þess að reka hana fyrir eigin reikning.

Til viðbótar þessu má nefna að fjölþættar fréttir hafa borist um gallaðar vörusendingar. Á undanförnum vikum hafa verið fréttir um margvíslegt tjón vegna skemmda á útflutningi gaffalbita til Sovétríkjanna, á útflutningi rækju til Vestur-Þýskalands, á útflutningi kavíars til Frakklands, þar sem m.a. er fullyrt að 2000 kassar af skemmdum kavíar liggi í Frakklandi. Einnig hefur verið fullyrt um mjög gallaða vöru í Tékkóslóvakíu og Ástralíu. Og nú síðast hefur viðskiptafulltrúi íslenska ríkisins í Bandaríkjunum látið frá sér fara mjög alvarlegar ásakanir um gallaðar vörusendingar og lélega útflutningsstarfsemi Íslendinga á Bandaríkjamarkaði.

Það virðist, ef þessar fréttir eru allar saman réttar, að það sé ekki bara í einu landi, heldur sé það í fjölmörgum löndum: Bandaríkjunum, Sovétríkjunum, Vestur-Þýskalandi, Frakklandi, Tékkóslóvakíu, Ástralíu og jafnvel víðar, sem markaðir fyrir útflutning á íslensku lagmeti séu í stórfelldri hættu vegna lélegs eftirlits, lélegs gæðamats og ýmissa annarra ágalla sem virðast vera á þessari mjög nauðsynlegu útflutningsstarfsemi.

Það mætti nefna fjölmargt annað sem hefur verið að gerast í mál efnum lagmetisiðnaðarins á síðustu vikum og mánuðum og vekur mjög alvarlegar spurningar um hvert stefni í þessum efnum og hvort Íslendingar standi frammi fyrir því, að öll þau miklu fyrirheit, sem sett voru fram um þróun lagmetisiðnaðar í landinu og útflutningsstarfsemi á þessu sviði, séu e.t.v. að enda í niðurlagningu þeirrar stofnunar sem átti að sinna þessari þróun, á sama tíma og fjölmörg önnur fyrirtæki í landinu, sem gjarnan vilja starfa að þessum málum, hafa ekki svigrúm til þess að sinna þeim sem skyldi, m.a. vegna þeirra lagaákvæða, sem gilda um Sölustofnun lagmetis og meina ýmsum öðrum fyrirtækjum að stunda útflutningsstarfsemi til þeirra landssvæða, þar sem ríkið eða ríkisstofnanir annast kaupin.

Til þess að afla upplýsinga um það, hvað hér hefur í raun og veru verið að gerast, og fá þannig grundvöll fyrir raunhæfar umr. um málefni þessarar stofnunar og lagmetisiðnaðarins í heild hef ég á þskj. 109 borið fram 9 fyrirspurnir til hæstv. iðnrh., þar sem m.a. er spurt: Hvaða ástæður lágu til þess, að Norðurstjarnan í Hafnarfirði hefur ákveðið að segja sig úr Sölustofnun lagmetis, og hverjir tóku þá ákvörðun? Hversu miklu fjármagni hefur verið varið til markaðsöflunar og sölustarfsemi á vegum Sölustofnunar lagmetis frá upphafi? Hver var kostnaður vegna söluskrifstofu Sölustofnunarinnar í New York og hversu mikið var greitt úr Þróunarsjóði lagmetisiðnaðarins til þessarar starfsemi? Hverjar voru skuldir þessarar sömu skrifstofu þegar henni var lokað og hvernig verða þær greiddar? Hver var kostnaður af starfsemi Sölustofnunar lagmetis á árinu 1979 og tekjur stofnunarinnar það ár og hver er fjárhagsstaða hennar nú? Hverjar hafa verið tekjur Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðarins þau ár sem hann hefur starfað, hvernig greinast þær eftir útflutningsþáttum og hvernig hefur sjóðseign verið ráðstafað eftir árum? Hvers vegna hafa lagmetisiðjur, sem ekki eru í Sölustofnun lagmetis, ekki haft möguleika á að njóta styrks úr Þróunarsjóði lagmetisiðnaðarins? Og svo að lokum: Hvert var heildartjón aðildar verksmiðja Sölustofnunar lagmetis vegna gallaðra vörusendinga á tímabilinu 1978–1979 og hvernig hafa greiðslur slíkra skaðabótakrafna verið fjármagnaðar og hve margar kvartanir hafa borist um gallaðar vörusendingar á tímabilinu 1977–1979 og frá hverjum hafa þær borist.

Ég vænti þess, að svör hæstv. ráðh. verði þess eðlis, að þau auðveldi Alþingi og stjórnvöldum nánari umræður og ákvarðanatöku um þau þáttaskil sem tvímælalaust þurfa að verða í málefnum útflutnings á íslensku lagmeti.