11.03.1980
Sameinað þing: 30. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)

54. mál, aðstoð við fiskflutninga milli Þorlákshafnar, Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Sú þáltill., sem hér er til umr., stefnir, ef samþykkt verður, að því að bæta stöðu fiskiðnaðar á Eyrarbakka og Stokkseyri og reyndar einnig á Selfossi og því er ég henni hlynntur. Það má þó undir engum kringumstæðum líta svo á að hér sé um einhverja varanlega lausn að ræða á þeim miklu vandamátum þessa svæðis sem brúin við Óseyrarnes á að leysa.

Við getum t.d. tekið sjómenn sem búa á Eyrarbakka og Stokkseyri og róa mestan hluta ársins frá Þorlákshöfn. Þeir þurfa nú að aka 112 km ef þeir vilja komast heim til sín milli róðra. Þeir þurfa að nota hátt í tvær klst. daglega af sínum dýrmæta hvíldartíma ef þeir ætla að skreppa heim til sín frá Þorlákshöfn þar sem bátarnir leggja upp. Auk þess er þetta mjög kostnaðarsamt. Auðvitað gefast menn upp á slíku þegar til lengdar lætur. Sjómennirnir flytjast hreinlega burt frá sinni heimabyggð, með þeim afleiðingum meðal margs annars að umrædd sveitarfélög missa sína bestu útsvarsgreiðendur.

Í þessu sambandi er rétt að minna á, og það gerði hv. flm. till., að á undanförnum allmörgum árum hafa fjárveitingar til hafnanna á þessu svæði, á Eyrarbakka og Stokkseyri, verið skornar niður á þeirri forsendu að brúin eigi að koma, þannig að þarna er mikið misræmi á milli aðila hins opinbera.

Herra forseti. Ég styð þessa þáltill. eindregið vegna þess að hún miðar að því að bæta mjög erfiða stöðu fiskiðnaðarins á þessu svæði. En ég vara eindregið við því, að menn haldi að þetta sé viðhlítandi lausn á miklu stærra vandamáli.