12.03.1980
Efri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég kem hér upp til þess að lýsa fullkomnum stuðningi við það frv. sem hér er til umr. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að tíunda frekar þær ástæður, sem liggja til grundvallar þessu frv., en hæstv. iðnrh. hefur þegar gert. Og ég tek í einu og öllu undir þær ástæður sem hann hefur fært fyrir því að flytja það frv. sem hér er til umr.

En ég get ekki heldur látið hjá líða að lýsa af öðru tilefni sérstakri ánægju minni með þetta frv. Í orkumálunum hefur verið um fátt meira rætt á undanförnum árum en skipulag þeirra mála. Nú ætla ég ekki að fara að upphefja hér umr. um það mikilsverða og víðtæka mál. En ég vil aðeins minna á það, að í höfuðatriðum hafa verið uppi tvö sjónarmið varðandi vinnslu raforku. Annars vegar hefur verið uppi það sjónarmið, að vinnsla raforku í landinu skuli vera í höndum eins fyrirtækis, landsorkufyrirtækis. Hins vegar hefur verið það sjónarmið, að stefna bæri að því að efla fleiri orkufyrirtæki í landinu og sérstaklega með þeim hætti að stofnuð yrðu orkufyrirtæki í hverjum landshluta fyrir sig.

Þessi stefna fékk sérstaklega byr undir báða vængi þegar núv. hæstv. forsrh. var iðnrh. í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar. Og hæstv. forsrh. lét ekki sitja við orðin tóm í þessu efni, heldur skipaði hann, svo sem kunnugt er, sérstakar orkunefndir í hverjum landsfjórðungi til þess að gera tillögur um stofnun landshlutafyrirtækja í orkumálum. Nú ætla ég ekki að fara að rekja þessi mál. Menn minnast þess, að eitt af þessum fyrirtækjum er þegar tekið til starfa, Orkubú Vestfjarða. Ég sagði áðan að um þetta grundvallarskipulagsmál hafi verið skiptar skoðanir. Annars vegar hefur hæstv. forsrh. á undanförnum árum verið oddviti þeirra sem ekki vildu binda raforkuvinnsluna við eitt fyrirtæki. Hins vegar hefur núv. hæstv. iðnrh. verið einn helsti forgöngumaður þeirra sem lagt hafa áherslu á það, að raforkuvinnslan væri í höndum eins fyrirtækis, landsorkufyrirtækis. Þessi skoðanaágreiningur kom sérstaklega fram í sérstakri nefnd, svokallaðri skipulagsnefnd orkumála, sem hæstv. núv. forsrh. skipaði á sínum tíma. Nefnd þessi skilaði áliti haustið 1978. Nefndin varð sammála í flestum greinum og var leitast við til hins ítrasta að ná samkomulagi. En nefndin klofnaði um þetta atriði, sem ég hef hér gert að umræðuefni. Annars vegar voru þeir sem vildu halda opnum möguleikanum á svokölluðum landshlutafyrirtækjum, hins vegar þeir sem vildu binda raforkuvinnsluna við eitt landsfyrirtæki. Þó var, að ég hygg, alltaf gert ráð fyrir því hjá þeim sem héldu fram einu landsfyrirtæki, að um gæti verið að ræða einhverja minni háttar raforkuvinnslu hjá öðrum aðilum. En þá var alltaf í umr. við það miðað, að sú orkuvinnsla væri ekki meiri en sem svaraði 5 mw. virkjun. Ef það væri stærri virkjun, þá væri það ekki heimilt ef fram næðu að ganga hugmyndirnar um eitt landsfyrirtæki.

Þegar núv. hæstv. ríkisstj. var mynduð skaut upp í huga mínum spurningunni um það, hver mundi verða, stefna núv. ríkisstj. í þessu efni, hvort núv. hæstv. iðnrh. mundi vilja framkvæma sína stefnu undir forsæti núv. forsrh. eða hvort núv. hæstv. iðnrh. mundi kannske framkvæma stefnu núv. forsrh., sem í þessu efni gengur þvert á þá stefnu sem hann hefur verið oddviti fyrir.

Nú er komið hér fram frv. sem gefur kannske einhverja vísbendingu um það, hvers sé að vænta í þessum efnum. Og ég get ekki látið hjá líða að lýsa ánægju minni yfir þessu frv. líka út frá því sjónarmiði að hér er gert ráð fyrir að reist verði virkjun af landshlutafyrirtæki, en ekki gert ráð fyrir því að hið fyrirhugaða eina landsfyrirtæki reisi þessa virkjun. Mér þykir þetta bera vott um það, að við megum ætla að hæstv. núv. iðnrh. muni ætla að framkvæma stefnu þá sem núv. hæstv. forsrh. hefur skelegglega haldið fram á undanförnum árum. Ég vil lýsa ánægju minni yfir þessari þróun, ef þetta frv. má skoðast sem vísbending í þessa átt.