12.03.1980
Efri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1031 í B-deild Alþingistíðinda. (1106)
119. mál, Hitaveita Suðurnesja
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. e. vildi meina að ég væri haldinn grundvallarmisskilningi á stefnu Alþb. í skipulagsmálum raforkuiðnaðarins. Og það var ekki nóg með þetta, hann hélt því einnig fram, að ég hefði á undanförnum árum misskilið núv. hæstv. forsrh. í þessum efnum. Og ekki nóg með það, heldur hefði núv. hæstv. forsrh. misskilið mig um þetta efni. En hv. þm. nefndi náttúrlega ekki í hverju þessi grundvallarmisskilningur væri fólginn, en það gerir ekkert til. Ég ætla ekki að ræða neitt um það, þessi gamanmál hv. 4. þm. Norðurl. e. eru jafngóð fyrir því.
En mér dettur í hug hvort það sé nú kannske ekki þannig, að hv. 4. þm. Norðurl. e. hafi í einhverju efni misskilið stefnu eigin flokks, eða kannske ég ætti að orða það svo, að hann hafi verið blendinn í trúnni á þá stefnu. Og þá mæli ég þessi orð ekki í slæmri merkingu, heldur þvert á móti, því að þessi hv. þm. hefur sýnt það í verki að hann hefur skilið sjónarmið dreifbýlisins í þessu efni, og hef ég þá alveg sérstaklega í huga afstöðu hans og jákvæð viðbrögð við setningu löggjafarinnar um Orkubú Vestfjarða.
Hv. 4. þm. Norðurl. e. tæpti aðeins á einu atriði, sem er í sjálfu sér ákaflega þýðingarmikið og ég er honum algerlega sammála um. Það er það, að nýta þurfi sem best möguleikana til smávirkjana. Og það er einmitt þetta atriði, sem er sameiginlegt áhugamál okkar beggja, sem er ein af veigameiri ástæðunum fyrir því að flytja framkvæmd þessara mála út til landsbyggðarinnar og stofna og stuðla að landshlutafyrirtækjum í raforkuvinnslunni. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það eru einmitt þessi sjónarmið sem liggja til grundvallar landshlutavirkjunum sem hljóta að vinna á, og það kom m.a. fram í máli hv. 3. landsk. þm. Hann skýrði okkur frá því, sem við vissum a.m.k. sumir hverjir áður, að það er mikið áhugamál sveitarstjórnarmanna og sveitarfélaganna á Suðurnesjum að stofna Orkubú Suðurnesja. Það er þarna eins og annars staðar, að menn vilja fara með þessi þýðingarmiklu mál sjálfir og treysta sjálfum sér best til þess að fara svo með framkvæmd þessara mála að best sé í samræmi við hagsmuni fólksins úti á landsbyggðinni. Ég vík þá aðeins nokkrum orðum að hæstv. iðnrh.
Hann sagði eitthvað á þá leið, að þetta frv. væri þannig að það skaraðist ekki við stefnu ríkisstj., sem sat 1978 – 1979, og 5 mw. virkjun skipti ekki máli vegna þess að hún væri smáræði. Ég vil aðeins segja um þetta, að þegar við vorum að ræða t.d. í skipulagsnefnd orkumála og í þeirri nefnd, er ég vék að áðan, þá þótti þessi viðmiðun skipta svo miklu máli að þeir, sem héldu fram einu landsfyrirtæki í orkumálum, vildu ekki hlíta því að farið væri yfir þetta mark. En ég spyr nú hæstv. iðnrh.: Segjum svo, að frv., sem hann leggur hér fram, hefði gert ráð fyrir 10 mw. virkjun, hefði það breytt nokkru um það, sem okkur öllum hér þykir sjálfsagt, að samþykkja þetta frv.? Hefðu fallið eins og spilaborgir þau rök sem hæstv. ráðh. flutti fyrir 5 mw. virkjun, ef um hefði verið að ræða 10 mw. virkjun? Ég er sannfærður um að hæstv. iðnrh. svarar þessu ekki játandi. Og ég spyr hæstv. ráðh.: Þegar búið er að stofna Orkubú Suðurnesja, sem ég hygg að hljóti að verða, kemur þá hæstv. ráðh. til hugar að það sé stætt á því að neita því fyrirtæki um að reisa þar virkjanir á orkusvæði þess sem það óskar eftir að virkja og telur heppilegt að virkja? Nei. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á, að hæstv. ráðh. muni gerast sporgöngumaður þeirra, ef einhverjir finnast, sem ætla sér að standa á móti slíkum framkvæmdum. Ég hygg að þetta sé augljóst mál og ég skal ekki fjölyrða frekar um það.
Hæstv. ráðh. vitnaði í stefnuyfirlýsingu ríkisstj. og sagði að það ætti samkv. stefnuyfirlýsingunni að koma á samræmdri heildarstjórn og sama verði í heildsölu á rafmagni um allt land. Hann sagðist vænta þess, að allir væru sammála um þetta. Ég tek undir þetta. Ég er algerlega sammála um þetta og ég held að það sé rétt að menn séu yfirleitt sammála um þetta. Spurningin er ekki um markmiðið, heldur leiðirnar til þess. Hæstv. ráðh. hefur flutt mál þeirra manna sem telja að bestri heildarstjórn sé komið á með því að hafa eitt fyrirtæki. Ég og fleiri — svo að ég haldi fullu samræmi við það sem ég hef áður sagt, hæstv, núv. forsrh., við höfum haldið því fram, að þessari heildarstjórn mætti ekki síður koma á þó að fyrirtækin væru fleiri en eitt. Og í nál. þeirrar skipulagsnefndar, sem ég hef hér vitnað til og skilaði áliti 1978, um haustið, eru einmitt gerðar till. um það af þeim hluta nefndarinnar sem vill þessa skipun, hvernig eigi að koma þessari heildarstjórn á. Ég skal ekki lengja mál mitt með því að fara að lýsa því hér.
En það er ekkert hégómamál hvaða skipulag er haft. Og það er ekki nóg að koma á heildarstjórn og koma á sama heildsöluverði á rafmagni um allt land. Við þurfum að gæta þess — og það er grundvallaratriði — að hafa skipulagið á þann veg, að það í sjálfu sér stuðli að sem hagkvæmustum rekstri og lægstu orkuverði. Okkur er lítill akkur í því að hafa sama orkuverð um allt land ef skipulagið, sem við tökum upp til þess, stuðlar að hærra orkuverði en þyrfti að vera. Okkur er lítill akkur í því að hafa sama verð um allt land ef það þarf að verða hærra við þær aðgerðir. Þetta er grundvallaratriði þegar við tökum ákvörðun um það, hvaða skipulag henti best. Nú ætla ég, eins og ég lofaði í upphafi, ekki að hefja neinar almennar umr. um þetta efni, en við, sem teljum að ekki eigi að binda orkuvinnsluna við eitt fyrirtæki, álítum að þegar um eitt fyrirtæki sé að ræða sé hætt við að boðið sé heim hættunni á slappari stjórn, því að þá væri engin viðmiðun, eins og gæti verið ef um fleiri fyrirtæki væri að ræða. Margt fleira mætti segja í þessu sambandi.
Nú vildi ég mega vona að hæstv. iðnrh. taki þetta allt til enn þá betri athugunar en áður. En ég verð að segja það, að í mínum huga kom upp áðan nokkur ótti um það, að hæstv. iðnrh. hugsaði sér þrátt fyrir allt að halda við sína stefnu og framkvæma hana undir forsæti núv. hæstv. forsrh. Það mun koma í ljós, hvert framhaldið verður. En ég verð að segja það, að ég óttast mjög að það verði í fleiri mál um en orkumálunum sem vinstri flokkarnir ráði, vegna þess að þeir ráði öllu sem þeir vilja ráða í núverandi ríkisstjórn.