12.03.1980
Efri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1036 í B-deild Alþingistíðinda. (1111)

115. mál, verðlag

Flm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Mál það, sem hér er til umr., er í sjálfu sér einfalt í sniðum, en þar með er ekki sagt að það sé ekki mikilvægt mál. Ég held jafnvel að það sé eitt hið allra mikilvægasta mál sem á þessu þingi er til umr. og til afgreiðslu.

Menn þekkja forsögu málsins talsvert, býst ég við, og muna hana, en ég tel þó rétt í örfáum orðum að rifja upp megindrættina.

Það var á haustþingi 1969 sem þáv. ríkisstj., viðreisnarstjórnin svonefnda, flutti frv. um verðlagsmál, sem lengi hafði verið í undirbúningi og var kallað Sonnefrv., eins og menn kannske minnast, í höfuðið á dönskum embættismanni sem starfaði með Íslendingunum að undirbúningi þess máls. En fjölmörg samtök neytenda, launþega, vinnuveitenda og ýmissa annarra áttu aðild að undirbúningnum, sem tók allmörg ár, og var þá mjög stuðst við reynslu nágrannaþjóðanna, ekki síst Norðurlandaþjóða, við allan þann undirbúning. Þetta mál var sem sagt stjfrv. á þessum tíma. En svo gerðist það í þessari hv. d. við afgreiðslu málsins vorið 1970 að einn af þm. Alþfl., sá ágæti maður Eggert G. Þorsteinsson, treysti sér ekki til þess að greiða atkv. með málinu, heldur greiddi atkv. gegn því. Þá gömnuðu menn sér við að segja að ráðh. hefði rétt upp vitlausa hönd, en raunar kom í ljós að hann hafði haft fyrirvara við stuðning þessa máls. En sem sagt, þá stóðu að málinu tveir flokkar, stjórnarflokkarnir þáverandi.

Svo gerist það á þinginu 1978 að þáv. ríkisstj., ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar, tekur málið upp að nýju og samkomulag næst um að breyta nokkuð upphaflega frv. og færa það til samræmis við þá reynslu sem fengist hafði í nágrannalöndum. Frv. er síðan um þetta flutt og samþ. hér á þinginu með yfirgnæfandi meiri hl. atkv. Formaður meiri hl. fjh.- og viðskn. þá, hv. þm. Jón Helgason, lýsti nokkuð efni frv. Ég held að ég geri það ekki betur en hann og leyfi mér þess vegna að lesa hér upp örstutt úr framsöguræðu hans fyrir meiri hl. n. Hv. þm. sagði:

„Í 1. gr. frv. er markmið og gildissvið laganna skilgreint þannig, að þau hafi það markmið að vinna að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins og sanngjarnri skiptingu þjóðartekna með því að a) vinna gegn ósanngjörnu verði og viðskipaháttum, b) vinna gegn óréttmætum viðskipa- og samkeppnisháttum svo og samkeppnishömlum sem hafa í för með sér skaðlegar afleiðingar fyrir neytendur, atvinnurekendur eða þjóðfélagið í heild.

Til þess að ná þessum tilgangi koma síðan í frv. margvísleg nýmæli, sem eiga að stuðla að því að gera okkur kleift að koma hér á því verðtagskerfi er hentar best við okkar aðstæður. Það á að reyna að fá fram þá kosti, sem frjáls samkeppni um verðmyndun kann að geta skapað, án þess að taka þá áhættu að afleiðingin verði gagnstæð, því að með öflugu eftirliti á að fylgjast með verðlagsþróuninni og grípa í taumana ef ástæða verður til. Það er því alger firra að halda því fram, að með þessu frv. sé stefnt að því að gefa kaupsýslumönnum og milliliðum tækifæri til að skammta sér laun. Það á að gefa þeim tækifæri til að sýna kosti frjálsrar samkeppni fyrir neytandann, en misnoti þeir það hefur verðlagsráð víðtækar heimildir til aðgerða.“

Hér lýkur tilvitnun í ummæli hv. þm. Jóns Helgasonar, og hygg ég að í þessum fáu orðum sé lýst þeim meginmarkmiðum sem lög þessi áttu að beinast að, þ.e. lög nr. 56 frá 16. maí 1978.

Auðvitað vita menn að það er fyrst og fremst verð varanna sem máli skiptir, en hins vegar ekki hvernig það verð verður til. Kem ég nokkru nánar að því síðar, en vek á því athygli að nú nýverið hefur verðlagsstjóri birt upplýsingar og álit sitt á því, hvert vera mundi innkaupsverð vara hér á Íslandi ef á viðskiptamálum væri haldið með skynsamlegum hætti og h7ct og gert er í nágrannalöndunum, borið saman við það verðlag sem nú er. Niðurstaðan er sú, að innkaupsverð vara til Íslands sé einhvers staðar á bilinu 20–25% hærra en vera mundi ef heilbrigðir viðskipahættir væru hér ríkjandi. Þetta eru svo gífurlegar upphæðir, sem hér eru í húfi, að furðu sætir að menn skuli leyfa sér að viðhalda þessu úrelta og kolvitlausa kerfi sem við Íslendingar einir þjóða höfum búið við. Það skilur hver maður að þegar verslunina á að reka með ákveðnum prósentum, prósentuálagningu sem reynt er að halda lágri í þeirri trú að það sé leið til baráttu við verðbólgu, minnkar auðvitað hvötin til að gera hagstæð innkaup. Og jafnvel þótt menn vildu reyna að gera sem allra hagstæðust innkaup vita auðvitað viðsemjendurnir erlendis hvernig málum er hér háttað, og þeir segja við hinn íslenska viðsemjenda sinn: Hvers vegna í ósköpunum ætti ég að fara að gefa þér afslátt til að skaða okkur báða? — Auðvitað er samningsaðstaða í slíkum tilfellum algerlega óviðunandi og skaðar Íslendinga, og hefur skaðað þjóðarbúið meira en nokkur getur raunverulega látið sér til hugar koma.

Þetta mál er svo margrætt og rökin á móti þessu vitlausa verðlagskerfi að það þarf ekki að fara ýkjalangt út í þá sálma. Raunar var þetta allt saman rakið hér þegar lögin frá 1978 voru samþ. og mikill meiri hl. Alþ. sannfærðist um að nauðsynlegt væri að gera úrbætur.

En það er fleira en bara prósentuálagningin sem hér kemur til. Það er líka það fjársvelti sem verslunin hefur verið í. Mönnum finnst það kannske nokkuð djúpt í árinni tekið að segja að einn atvinnuvegur ætti að hafa ótakmarkaðan aðgang að fjármagni, og það er verslunin. Auðvitað er það alvörupeningur sem menn yrðu ábyrgir fyrir og yrðu að greiða fullu verði til baka, ekki skertar krónur. En sannleikurinn er sá, að menn geta ekki gert hagstæð innkaup nema þeir hafi aðgang að fjármagni, og þeir geta ekki heldur látið verslunarfyrirtæki sín bera sig nema þeir fái að leggja á með eðlilegum hætti. Allt ber þetta að sama brunni. Kerfið, sem menn hafa búið við, er slíkt að kannske hafa einhverjir smáheildsalar verið að reyna að lifa af því að velta 10 eða 20 millj. í eigin fé og einhverju smávægilegu lánsfé með því að kaupa vörur erlendis á útsöluverði eða kannske hærra verði og flytja til landsins vitandi að það skiptir engu máli hvað varan kostar vegna þess að hún er keypt áður en hún kemur til landsins, eða a.m.k. sama daginn, þar sem engar birgðir eru fyrir hendi.

Ég skal játa að í málefnasamningi ríkisstj. er að einu leyti skynsamlega tekið á þessu máli. Það er bent á nauðsyn þess að rýmka nokkuð um fjárhag verslunarinnar. Það sem auðvitað þarf að gera er að leyfa kaupsýslumönnum og innflutningsfyrirtækjum að taka vörukaupalán erlendis algerlega eins og þeim sýnist, en á eigin áhættu, þannig að erlendi aðilinn verði að taka áhættuna, það sé ekki íslenska þjóðarbúið sem geri það. Ef viðkomandi kaupsýslumaður fer á hausinn eða getur ekki greitt skuldir sínar er það áhætta þess erlenda manns sem honum lánaði. Með þessum hætti verða innkaupin auðvitað í miklu stærri stíl og á miklu hagstæðara verði. Þar að auki ætti að leyfa einhvers konar gjaldfrest á tollum á sumum vörutegundum a.m.k., þannig að vörurnar flyttust inn til heildsölufyrirtækjanna og inn í verslanirnar svo að hvötin og nauðsynin á að selja mundi aukast. Og þegar nauðsynlegt er að selja verður að selja á hagstæðum kjörum, þá verður að lækka verðið í stað þess að eins og nú er geta menn haft hvaða verð sem er, en selja allt. Þessi hringavitleysa er búin að kosta íslensku þjóðina svo ótrúlegar upphæðir að lífskjör væru auðvitað allt, allt önnur ef við hefðum ekki þurft einir vestrænna þjóða og frjálsra þjóða að búa við þessi ósköp.

Þessu gerðu menn sér grein fyrir á 7. áratugnum, þegar Sonnefrv. var samþykkt, og stóðu að því tveir stjórnmálaflokkar, Sjálfstfl. og Alþfl., nokkurn veginn óskiptir, þótt það slys henti sem ég gat um áðan. Síðan gerist það 1978, að þá standa tveir stærstu stjórnmálaflokkar landsins, núverandi alla vega, eindregið að þessari breytingu, en hún kemst svo aldrei til framkvæmda vegna þess að vinstri stjórnin síðasta, sú næsta undan þeirri sem nú er nýlega mynduð, breytir þessum lögum og gerir þau algerlega óvirk. Svo rammt kveður að því, að það eru sett tvenn svo kölluð verðstöðvunarlög á tímabili fyrrv. vinstri stjórnar, og það leiðir til þess að árið 1979 er hið mesta verðlagshækkunarár, þá verða mestu verðlagshækkanir á einu ári, samfelldu hellu ári, frá því að útreikningar vísitölu hófust 1914, eða um 61%. Ég endurtek: Þegar tvenn verðstöðvunarlög eru sett til að eyðileggja löggjöfina um frjáls viðskipti verða mestu verðlagshækkanir á Íslandi allar götur síðan verðútreikningar og útreikningar vísitölu hófust árið 1914, eða um 61% — e.t.v. að einu ári undanteknu sem gæti verið með 63%, árið um 1917, þegar menn ráða ekki við verðhækkanirnar út af styrjöldinni. (Gripið fram í.) Það er ekki rétt. Þetta er sem sagt árangurinn af þessari óskaplegu vitleysu sem við höfum búið við.

Menn halda það mjög margir, og það er kannske ekkert óeðlilegt fljótt á lítið, að leiðin til að fást við verðbólgu, eða eitt af þeim atriðum, sem að gagni gætu komið gegn verðbólgu, sé mjög strangt verðlagseftirlit. Það er hægt að færa fyrir því ýmiss konar rök sem falla mönnum í geð og mönnum finnst vera heilbrigð skynsemi. En við verðum að horfast í augu við reynsluna, og hún er sú, að þegar minna hefur verið um verslunarfjötra og þar með líka gefin frjálsari álagning, eins og gert var 1960 og á áratugnum 1960–1970, þá tekst að kljást sæmilega við verðbólguna, þá er verðbólgustigið hér svipað og í nágrannalöndunum. En um leið og þessu öllu er kollvarpað fer allt saman úr skorðum. Þær þjóðir, sem afnámu öll slík höft fljótlega eftir stríðið, nokkrum árum eftir stríðið, hafa búið við allt annað verðbólgustig en við Íslendingar. Sumir segja: Þetta er bara tilviljun, þetta er af allt öðrum ástæðum o.s.frv. Það er hægt að slá slíku fram, en ég held að heilbrigða skynsemin sé einmitt að gera sér grein fyrir því, að verslunin þarf að hafa frjálsræði, það þarf að vera þar samkeppni til að einhverjar líkur séu til þess að verðlag geti verið sæmilega skynsamlegt.

Það síðasta, sem gerst hefur, er það, að í málefnasamningi núv. hæstv. ríkisstj. er talað um svokallaða niðurtalningu verðlags, það eigi ekki að leyfa nema 8% hækkun fyrst, síðan 7, þá 5 og allt muni þetta koma út í tölunni 31% o.s.frv. Við höfum séð slíka útreikninga og ágiskanir áður. Þar hefur aldrei staðið steinn yfir steini deginum lengur, og þetta er auðvitað það allra vitlausasta sem nokkru sinni hefur sést í sambandi við verðlagsmál. Hvernig í ósköpunum á að skammta íslenskum iðnaði 8% hækkun, ef kostnaðurinn hjá fyrirtækinu hækkar kannske um 15 eða 20%, og skammta honum svo 7%, þegar hann hækkar um 35–40? Auðvitað fer þá allur íslenskur iðnaður og allur íslenskur atvinnurekstur á hausinn. Þetta ákvæði á hins vegar ekki að taka til innfluttu vörunnar, það á að halda hinni vitleysunni áfram, prósentuvitleysunni, svo að þetta stangast náttúrlega allt á við röksemdir um að hér sé verið að glíma við verðbólgu eða jafnvel að örva íslenskt atvinnulíf og styrkja atvinnuvegi, svo að ekki sé nú talað um að bæta lífskjör fólksins, enda þora menn víst ekki að minnast á það. Sýnilegt er að nú á að skerða þau um allmörg prósent til viðbótar því sem fyrri vinstri stjórnir hafa gert ár frá ári nánast skipulega og án þess að nokkur af stjórnarsinnum reyndi að reisa rönd við eða koma einhverju viti í. Þó ber ekki að neita því, að Alþfl. var með ákveðnar till. um að reyna að stinga við fótum, en ekkert samkomulag varð um það í vinstri stjórn, enda verður þar aldrei samkomulag um eitt eða neitt nema um hringavitleysu, að láta allt vaða á súðum og allt fara úr skorðum.

Og nú er það síðasta dæmið um framkvæmd þessa ákvæðis málefnasamningsins. Það er sem sagt komið í ljós að verðlagsráðið sjálft er mótfallið því. Það er skipað níu mönnum, og það eru ekki ómerkari menn en Björgvin Guðmundsson, sem er formaður ráðsins og tilnefndur af viðskrh. og hans fulltrúi þar með og ber að fylgja hans skoðunum og framfylgja, Árni Árnason, tilnefndur af Verslunarráðinu, Þorsteinn Pálsson, tilnefndur af Vinnuveitendasambandinu, Kjartan Kjartansson, tilnefndur af SÍS, Ásmundur Stefánsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, Snorri Jónsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands; Einar Ólafsson, tilnefndur af BSRB, Unnsteinn Beck, tilnefndur af Hæstarétti, og Þórir Einarsson, tilnefndur af Hæstarétti. Þessir átta menn, að formanninum einum undanskildum, eru níu alls, formaðurinn auðvitað starfar þarna sem embættismaður, sem skrifstofustjóri viðskrn., þeir samþykkja allir einum rómi að hafna þeirri reglugerð sem þeim er send til umsagnar, á þeim forsendum m.a., að verðbólgan verði ekki kveðin niður með því einu að setja reglur um hámarksverðhækkanir, og svo líka á þeim forsendum, að það sé ekki lagastoð fyrir þessu. Þetta er orðið með þeim eindæmum að engu tali tekur. Aðilar allra stærstu hagsmunasamtaka landsins mótmæla eindregið reglugerð, sem þeim er send til umsagnar um verðlagsmál, og þeir gera það réttilega. Þetta er allt saman botnleysa, bæði lagalega séð og eins efnislega. Það stenst ekkert af þessu, og ég er alveg viss um að hæstv. viðskrh. gerir sér grein fyrir þessu þó að hann dansi með í þessum villta dansi af því að það er búið að semja um þetta í málefnasamningi verstu ríkisstj. sem nokkurn tíma hefur verið mynduð á Íslandi. Þetta er sem sagt eitt dæmið um hringavitleysuna.

Ég ætla sem sagt ekki að eyða dýrmætum tíma hér. Fundartíma er nú að verða lokið, og ég vil gjarnan að fleiri geti komist hér að lengur en orðið er. En ég vænti þess, að þetta frv. fái mjög greiðan byr hér í hv. d. og þinginu í heild, því að eins og ég sagði áðan hafa þrír flokkar þingsins, allir aðrir en Alþb., staðið meira og minna að samþykktum í þessa átt, t.d. Alþfl., sem ekki var heill í afgreiðslu, hvorki 1970 né aftur 1978. Ég hygg að flestir Alþfl.-menn geri sér nú orðið grein fyrir hvað gífurlega mikið hagsmunamál alþjóðar er hér um að ræða, enda benda a.m.k. skrif Alþýðublaðsins til þess að þeir geri sér fulla grein fyrir þessu máli ekkert síður en sjálfstæðismenn og framsóknarmenn. Þannig ætti að vera yfirgnæfandi meiri hluti í þinginu fyrir því að afgreiða þetta mál og afgreiða það með þeim hraða að ekki verði mikill dráttur á að það fái afgreiðslu. Þetta ætti aldeilis ekki að vera lítill stuðningur við hæstv. ríkisstj., auk þess sem það náttúrlega mundi styrkja stöðu hennar málefnalega, hjálpa henni í baráttu við verðbólguna þannig að hún yrði kannske ekki 100%, heldur kæmist niður í 60% eða svo. En allt útlit er nú fyrir að hún komist yfir 100% með þeim aðgerðum sem — (Gripið fram í: Með hjálp góðra manna.) Með hjálp góðra manna. Ég er að reyna að hjálpa henni til þess að draga úr verðbógunni og benda hæstv. ráðh. á hvernig hann eigi að fara að því. Ég veit að hann er mér algerlega sammála. Hann er mér algerlega sammála í hjarta sínu um þetta efni, það veit ég, þó hann hins vegar af hlífisemi við ríkisstj. og stjórnarsáttmálann muni kannske ekki játa það. En ég vona að hann komi hér í pontuna á eftir og lýsi skoðunum sínum. Raunar get ég líka aðeins getið um skoðanir hæstv. ráðh. úr því að hann er að grípa fram í fyrir mér. Hann sagði t.d. á aðalfundi Verslunarráðs Íslands nýverið orðrétt mjög skynsamlega, eins og hans er von og vísa, með leyfi forseta:

„Eins og kunnugt er voru hin nýju verðlagslög samþ. á Alþ. í maí 1978, en tóku gildi í nóv. 1979. Þegar lögin voru fyrst samþ. var hugmyndin með þeim að stefna að meira frjálsræði í verðlagsmálum, en með þeim breytingum, sem gerðar voru á lögunum á árinu 1979, var anda þeirra því miður breytt í verulegum atriðum.

Ég hef ekki farið leynt með þá skoðun mína, að frjálsari stefna í verðlagsmálum sé miklu líklegri leið til þess að lækka vöruverðið í landinu heldur en aðhaldssöm prósentálagningaraðferð. Ég þarf raunar ekki að gera grein fyrir þessari skoðun á þessum fundi, hún er augljós. Aðalástæðan er sú, að með prósentálagningunni er kippt í burt hvatningunni til þess að leggja aðaláhersluna á ódýr og hagkvæm innkaup. Auk þess stuðlar þessi prósenturegla að því að slæva verðskyn neytenda þar sem treyst er á einhverja forsjá opinberra aðila, sem því miður er ekkert nema misskilin trúgirni.“

Þetta er eins og talað út úr mínu hjarta og allra manna sem gera sér einhverja skynsamlega grein fyrir þessum málum. Það þyrfti raunar ekkert að segja hér í pontunni annað en þessar setningar hæstv. viðskrh. Samkv. þessu ætti að vera betra að treysta honum fyrir þessum málum en nokkrum öðrum. Og t.d. ættu sjálfstæðismenn að styðja að því að hann einn fengi að ráða þessu, þá mundi þetta mál alveg örugglega komast í skynsamlega höfn. En af einhverjum sökum vill hæstv. ráðh. frekar sitja í stólnum og framkvæma stefnu andstæða skoðunum sínum en taka upp baráttu fyrir eigin hugsjónum og eigin sannfæringu. Þetta er nú svona í þessu vinstra liði og hefur lengi verið.

Ég var að geta um það áðan, að málið ætti að geta fengið byr, ekki eingöngu vegna fylgis almennra þm., heldur kannske fyrst og fremst vegna þess að það eru hvorki meira né minna en sjö af tíu ráðh. eindregnir stuðningsmenn þessarar stefnu. Það er kannske ný kenning að minni hlutinn eigi alltaf að ráða og þess vegna eigi hinir þrír ráðherrarnir að stjórna ferðinni. Ég veit ekki hvort sú verður niðurstaðan. Það væri í samræmi við ýmislegt annað sem gerst hefur, en ég hefði nú haldið að í þessari ríkisstj. ættu málin að vera tekin eitthvað fastari tökum er gert hefur verið. Og fyrir utan það að hafa þarna sjö af tíu ráðh. eru náttúrlega aðrir af helstu forustumönnum lands og þjóðar, eins og t.d. forseti SÞ. sem ég vitnaði til áðan, eindregnir stuðningsmenn þessarar stefnu, og auðvitað er hann í einni mestu áhrifastöðu þessa lands. Þess vegna ætti ekki að þurfa að vera að ræða um þetta, maður ætti ekkert að þurfa að vera að eyða í þetta tíma, það ætti allt að vera í slíku himnalagi. En það er eitthvað sem á bjátar engu að síður.

Herra forseti. Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr. hér. Ég bendi á að það þarf auðvitað að gera breytingu á t.d. gildistökuákvæðinu. Við flm. gerðum okkur vonir um það, í samræmi við málflutning nú, að málið mundi renna í gegnum þingið á örfáum dögum, þar sem yfirgnæfandi meiri hl. styddi það. Því settum við gildistökuna 1. mars, sem nú er reyndar liðinn þar sem til þinghlés kom og ýmislegs slíks, svo að við verðum sjálfsagt að breyta henni í t.d. 1. apríl. Það ætti væntanlega að vera búið að afgreiða málið þá með miklum meiri hl. þingsins, — kannske einróma ef ráðh. sjö, sem allir eru mjög hlynntir þessu máli, beittu sér fyrir því að ríkisstj., og þá að sjálfsögðu forsetarnir, hröðuðu framgangi þess.