12.03.1980
Efri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1041 í B-deild Alþingistíðinda. (1112)

115. mál, verðlag

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég var eiginlega búinn að lofa hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni að taka til máls í þessu máli, en það er kannske óþarfi vegna þess að hann hefur þegar rakið þann málflutning sem ég hef haft uppi í þessum málum almennt séð. Ég fer ekkert leynt með það, enda liggur það fyrir í skjölum Alþingis, að ég var á sínum tíma fylgismaður hinna nýju verðlagslaga sem sett voru í maímánuði 1978, og ég hef ekki skipt um skoðun í þeim efnum síðan. Hins vegar er annað, sem við verðum auðvitað allir að hafa í huga, og það er að við lifum við samsteypustjórnafyrirkomulag. Við verðum að gera það upp við okkur, þegar við tökum þátt í stjórnarsamstarfi, hvað það er af stefnumálum okkar sem við viljum gefa eftir til að ná fram öðru sem við teljum þá e.t.v. meira virði. Ástæðan fyrir því að ég stóð að breytingu á verðlagslögunum á árinu 1979 var sú, að það var liður í stjórnarsamstarfi sem ég átti þátt í. Það er sú skýring sem ég gef á afstöðu minni þá.

Ég vil segja að illu heilli verðum við að lifa við samsteypustjórnafyrirkomulag. Ég spáði því á sínum tíma, þegar Sjálfstfl. hafði forustu um að taka upp stóru kjördæmin að það mundi leiða til þess að flokkum mundi fjölga og tryggja samsteypustjórnafyrirkomulag. Nú hefur það verið alveg greinilegt síðan að það eru tilhneigingar til klofnunar í flokkum. Ég spái því að svo verði áfram, flokkar muni klofna áfram, með hverjum hætti skal ég ekki segja. En við munum því miður, ef við ætlum áfram að byggja á stórum kjördæmum, þurfa að lifa við samsteypustjórnafyrirkomulag og þurfa að halda áfram að taka tillit til þeirra sem við vinnum með í það og það skiptið.

Ég fer ekki leynt með það, að ég álít besta verðlagseftirlitið í þessum málum vera heilbrigða samkeppni milli samvinnuverslunar og einkaverslunar. Hitt er annað mál, að á tímum mikillar verðbólgu er þörf á sterku verðlagseftirliti, sem er allt annað mál, vegna þess að verðbólga brenglar verðskyn almennings, menn vita ekki hvað vörurnar kosta frá degi til dags og hafa þess vegna ekki aðstöðu til að bera saman verð í verslunum. Samhliða verðbólgu þarf að vera sterkt verðlagseftirlit. Verðbólgan hefur því miður slæm áhrif á nægilega trygga samkeppni, sem er auðvitað undirstaða undir heilbrigðum verslunarháttum.

Í stjórnarsamningnum, og það er nú raunar það sem ég vildi aðeins koma að í þessum orðum, eru ákvæði um verðlagsmál. Þar er sett fram stefna um niðurtalningu verðbólgu, sem auðvitað er byggð á þeim forsendum að aðrir þættir efnahagsmála gangi á eftir, eins og t.d. launamál sem menn þora aldrei að nefna í þessum efnum. Ég tek undir það með hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni, að náttúrlega er fásinna að festa verðlag nema aðrir kostnaðarþættir gangi á eftir í takt. Með því móti mundi allt atvinnulíf í landinu verða lagt að velli á tiltölulega stuttum tíma. Stefnan um niðurtalningu verðbólgunnar er því að mínu mati háð því að aðrir þættir, sem eru kostnaðartilefni, gangi á eftir.

Það hefur þegar komið fram í fjárlagafrv. ríkisstj. að það byggist á ákveðinni launastefnu, ákveðnum launaforsendum sem eru í takt við þau áform sem eru í stjórnarsamningnum um verðlagsmál, og fleira kemur þar til. Hitt er annað mál, að það er auðvitað erfiðleikum bundið að ganga inn í svona kerfi þegar allt er á fleygiferð og við búum við svo mikla verðbólgu sem raun ber vitni.

Varðandi vöruverðið sérstaklega eru ákvæði í stjórnarsamningnum. Þau fjalla um að unnið verði að lækkun vöruverðs m.a. með eftirtöldum aðgerðum, með leyfi hæstv. forseta:

„a) Að efla samtök neytenda til þess að þau geti gegnt því mikilvæga verkefni að gera verðlagseftirlit neytendanna sjálfra virkt. b) Að auka verðlagskynningu af opinberri hálfu. c) Að haga verðlagsákvæðum þannig að þau hvetji til hagkvæmra innkaupa“.

Ég hef þegar mælst til þess við verðlagsstjóra að hann hefji viðræður við bæði samvinnuverslunina og einkaverslunina í landinu um það, með hverjum hætti hyggilegast yrði að standa að innkaupum til landsins með tilliti til þess að gera vöruna ódýrari. Ég bíð eftir því, að hann gefi mér skýrslu um þær viðræður, sem verður sjálfsagt áður en mjög langt um líður.

„d) Að greiða fyrir því að unnt sé að lækka vöruverð með innkaupum í stórum stíl“. — Það er eitt af því sem því miður hefur viljað brenna við hjá okkur á undanförnum árum og fram á þennan dag, að innkaup í stórum stíl, sem hafa í för með sér afslátt oft og tíðum, hafa verið erfiðleikum bundin vegna þess að innflytjendur og þeir, sem fást við verslunina, hafa minna upp úr því að kaupa ódýrt inn. Það er enginn vafi á því, að fyrirkomulagið, sem hefur ríkt hjá okkur, þessi prósentuálagning, er neikvætt og hefur ekki í för með sér þá hvatningu til að gera eins hagkvæm innkaup og æskilegt væri.

Síðan segir í stjórnarsamningnum, að hin nýju verðlagslög komi til framkvæmda undir eftirliti verðlagsráðs, sem fái bætta aðstöðu til að gegna hlutverki sínu, og sett verði lög um afborgunarkaup. — Þetta eru atriði sem ég vildi koma að í sambandi við þetta mál, um leið og ég svaraði hv. þm. um hvernig á því stæði að menn slá af stefnu sinni þegar þeir taka þátt í stjórnarsamstarfi. Hann þekkir þetta sjálfur og veit að skýringarnar eru fólgnar í því.

Hv. flm. gerði að umræðuefni fjársvelti verslunar. Ég veit ekki hvort verslunin er í meira fjársvelti en aðrar atvinnugreinar. Svarið við því er náttúrlega ekkert annað en að lækka verðbólguna. Það er svarið. Við getum ekki vænst þess að við slíka verðbólguþróun sem við höfum búið við hér í landinu verði mögulegt að tryggja nægilega mikið sparifé í landinu til að fjármagna atvinnuvegina. Ég er honum sammála um það, að að vissu marki sé skynsamlegt að heimila versluninni að taka lán erlendis. En þó verður að hafa ýmislegt í huga í því sambandi. Það er að vísu gert að nokkru marki, en ég tek undir að það er skynsamlegt að gera það. En hvað menn eiga að fara langt í þeim efnum getur aftur verið álitamál.

Ég verð nú víst að hryggja hv. þm. með því, og það er best að vera hreinskilinn strax í byrjun, að eins og ástatt er mun hann sennilega ekki geta vænst stuðnings af minni hálfu við að drífa þetta í lög. En hver veit nema Eyjólfur hressist síðar meir og við stöndum aftur saman að því að gera þetta að lögum og framkvæma þau. (EKJ: Það ættum við að reyna.)