12.03.1980
Neðri deild: 42. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (1118)

111. mál, lántaka Framleiðsluráðs landbúnaðarins

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. komst svo að orði í inngangi sínum áðan, að það frv., sem hér væri á ferðinni, væri ávöxtur málefnasamnings ríkisstj. Ég hefði orðað þetta öðruvísi. Ég hefði orðað það svo, að frv. væri ávöxtur rangrar landbúnaðarstefnu.

Ég held að það sé verulega tímabært í þessari stofnun að málefni landbúnaðarins verði tekin til ítarlegrar umr. Þetta frv. gefur vissulega nokkurt tilefni til þess. Hins vegar mun ég ekki taka þátt í þeirri umr. sem hefur átt sér stað um landbúnaðarmál á Íslandi á undanförnum árum, þar sem öfgarnar hafa verið slíkar að menn hafa yfirleitt ekki getað talað saman af nokkru minnsta viti. Þar á ég ekkert síður við þá, sem gagnrýnt hafa landbúnaðarstefnuna einhliða, en þá liðsodda bændaforustunnar sem hafa gengið fram með ótrúlegum öfgum í þessu máli.

Ég er ekki þeirrar skoðunar, að bændur í þessu landi séu ölmusumenn sem lifi á skattpeningi þjóðarinnar almennt. En ég er þeirrar skoðunar, að stefnan í landbúnaðarmálum í heild undanfarna tvo áratugi hafi verið röng, eins og ég hef margoft sagt úr þessum ræðustól. Þeir, sem mótuðu þá stefnu, voru Framsfl. og Sjálfstfl. Sú stefna, sem þeir mótuðu, er orðin að þeim vítahring að svo virðist sem þjóðin ætli ekki að komast út úr honum.

Ég hef lýst því þráfaldlega yfir, að ég tel góðan og gróskumikinn landbúnað eitt af undirstöðuatriðum að hagsæld þessa þjóðfélags. En um leið og landbúnaður er orðinn á þann veg að það þarf að greiða á hverju ári mjög umtalsverðar upphæðir, sem hlaupa á milljörðum og tugum milljarða kr., er hann ekki gróskumikil grein sem gerir þjóðarbúinu gott.

Ég vil aðeins minna á það, að þó að við séum hér í dag að ræða um 3 milljarða, sem ég ætla persónulega ekki að sjá eftir til bænda er enn eftir að greiða rösklega 8 milljarða á þessu ári og í niðurgreiðslur 24.4 milljarða. Nú vil ég ekki setja dæmið þannig upp að niðurgreiðslur séu styrkur til bænda, eins og sumir vilja vera láta. Niðurgreiðslur eru hagstjórnartæki sem er beitt til þess að jafna greiðslugetu almennings í landinu til að geta keypt landbúnaðarafurðir. Ég held að þetta sé afskaplega sósíaldemókratískt kerfi til þess að stjórna landbúnaðarvöruverðinu.

Mig langar aðeins að geta þess, að landbúnaðarvandinn er ekki að koma upp á yfirborðið núna. Hann hefur verið þar lengi. Mig langar að minna á að á árunum 1970–1976 var vinnuafl í landbúnaði 10.7% heildarvinnuafls þjóðarinnar. Miðað við það hefði verið eðlilegt að hlutdeild landbúnaðar í þjóðarframleiðslu væri 10– 11%. En hún var aðeins 6.5% eða um 2/3 hlutar þess sem hún hefði átt að vera á þessu árabili.

Þá vil ég geta þess, að árið 1976 var fjármagn í landbúnaði 80.2 milljarðar kr. Það hafði aukist um 34% frá árinu áður. En landbúnaðarframleiðslan sjálf jókst hins vegar aðeins um 7.5%. Fjármagnsaukningin hafði m.ö.o. ekki skilað neinum arði.

Ég vil líka taka dæmi sem er að vísu orðið tveggja ára gamalt, en hefur orðið enn þá verra á þessu ári og var verra á síðasta ári. Ég ætla að taka dæmi frá árinu 1978 og fjalla þá örlítið um útflutningsuppbæturnar. Það ár greiddu íslenskir skattgreiðendur um 3 milljarða í útflutningsuppbætur, m.ö.o. greiddum við árið 1978 útlendingum 300 kr. fyrir að borða hvert kg. af dilkakjöti eða um 40% af kostnaðarverði. Við greiddum þeim 578 kr. á því ári fyrir að borða eitt kg af Óðalsosti eða 49% af kostnaðarverðinu. Og við greiddum þeim 860 kr. fyrir að kaupa eitt kg af Goudaosti eða 73% af kostnaðarverðinu. (Gripið fram í: Og þótti vel sloppið.) Og þótti vel sloppið.

Mig langar aðeins að geta þess merkilega þáttar sem Alþb. hefur leikið í þessum landbúnaðarleik. Fyrir kosningarnar 1978 háðu Alþb.-menn mikla baráttu fyrir því að sækja fylgi sitt til bænda. Þetta þótti mér og ýmsum öðrum býsna fölsk barátta. Þeir gáfu út sérstakt blað, sem mér er mjög minnistætt, þar sem getið var helstu lausna Alþb. á landbúnaðarvandanum. Ég hef ekki séð að í hæstv. núv. ríkisstj. hafi bólað á þessum lausnum, a.m.k. sjást þær ekki í málefnasamningi. En ein af þessum lausnum var afskaplega snjöll. Hún var í þá veru að hækka kaupgjaldið, hækka kaupið á eyrinni svo að launþegar gætu keypt upp það samansafnaða magn af landbúnaðarafurðum sem var til í geymslum hinna ýmsu kaupfélaga og samvinnuhreyfingarinnar. (Gripið fram í: Étum meira kjöt.) Étum meira kjöt. Það getur vel verið að einhverjir hafi efni á því, en ekki allir.

Mig langar að minna á bókun sem einn af fulltrúum Alþb. gerði í nóv. 1978 á fundi framleiðsluráðslaganefndar. Það var ekki ómerkari maður en Ásmundur Stefánsson hagfræðingur. Þar lét hann bóka orðrétt eftir sér, með leyfi hæstv. forseta:

„Á árinu 1977 var um það bil þriðjungur kindakjötsframleiðslu fluttur út og um sjötti hluti framleiddra mjólkuraturða. Fyrir þessar afurðir hefur fengist allsendis ófullnægjandi verð eða aðeins 25–50% af grundvallarverði. Ljóst má vera, að umframframleiðslan veldur þjóðinni allri lífskjaraskerðingu bæði í bráð og lengd og að brýna nauðsyn ber til að nú þegar verði spyrnt við fótum og dregið úr framleiðslu þessara búgreina“.

Þetta sagði Ásmundur Stefánsson Alþýðubandalagsmaður og foringi í verkalýðshreyfingunni í nóv. 1978. Ég held að þeir Alþb.-menn, sem nú vilja stuðla að óbreyttri landbúnaðarstefnu, ættu að fara í skóla til Ásmundar Stefánssonar.

Þá langar mig að víkja aðeins að nokkrum samanburðartölum um framlög til landbúnaðar og hins vegar frá árinu 1979 eða frá í fyrra. Þá kemur í ljós að framlög til landbúnaðar á fjárlögum eru 4.2 milljarðar kr. Hlutfallið á fjárlögum þess árs er 2.02% og hækkun milli ára 34.2%. En hvað skyldi nú iðnaðurinn fá á sama tíma á fjárlögum? Nú held ég að menn ættu að hlusta grannt vegna þess að iðnaðinum er ætlað, a.m.k. í hátíðaræðum, að taka við megninu af því vinnuafli sem kemur hér á markað á næstu árum. Berum saman það sem iðnaðurinn fékk á framlögum í fjárlögum árið 1979. Þá fékk iðnaðurinn 951 millj. á móti 4.2 milljörðum kr. til landbúnaðar eða 0.46% af öllum fjárlögum. Svo skulum við líta á sjávarútveg, grundvallaratvinnugrein þessarar þjóðar. Hvað fær hann árið 1979 á fjárlögum? Það eru rösklega 4.2 milljarðar eða nær nákvæmlega sama tala og landbúnaðurinn fær á árinu 1979. En þar með er ekki allt talið, vegna þess að hér er um að ræða tölur sem teknar eru beint upp úr fjárlögunum. Við eigum eftir að telja útflutningsuppbæturnar 1979, sem voru 5.3 milljarðar, og niðurgreiðslurnar, ef menn vilja leggja þær við, sem ég tel þó að vísu ekki rétt, sem eru 18.9 milljarðar árið 1979.

Það væri kannske rétt að geta örlítið annarra talna sem koma fram í sambandi við framlög til landbúnaðar árið 1979 og fara til einstakra stofnana landbúnaðarins. Þetta getum við líka séð í fjárlögum þessa árs. Þar hefur orðið mjög veruleg hækkun frá árinu 1979. Þá fær Búnaðarfélag Íslands 300 millj. Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort einhver önnur atvinnugrein á Íslandi, sem rekur skrifstofu af svipuðu tagi og Búnaðarfélagið, fái viðlíka styrki. Þetta er aðeins spurning.

Á árinu 1979 eru lagðar fram til veðdeildar Búnaðarbankans 10.3 millj. — tala sem ég raunverulega hef aldrei skilið og væri gott að fá skýringar á. Stofnlánadeild landbúnaðarins fær 643 millj. Svo væri kannske rétt að nefna ýmis af þeim atriðum sem þarfnast skýringa, hinar einstöku stofnanir landbúnaðarins. Við skulum nefna fyrirhleðslur og landþurrkun á síðasta ári, 56.8 millj. litlar, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir 13 millj., búfjártryggingar 200 þús. Hvað er það? Hvað eru þær búfjártryggingar sem ríkinu ber að greiða? Nautgripasambandið fær 1/2 millj. Mjólkurbúin fá á þessu ári 12.9 millj. Til hvers? Í hvað eru þessir fjármunir notaðir? Þannig mætti tengi telja. Til búfjárræktar eru lagðar 188 millj., og mér er spurn: Er það til þess að auka dilkakjötsframleiðsluna eða til að kynbæta búféð? Framræsla fær 260 millj. Á sama tíma og við berjumst gegn offramleiðslu eru lögð hundruð milljóna til aukinnar túnræktar og framræslu í landinu. En er hugsað fyrir því t.d. að breyta búskaparháttum þannig að bændur fari að huga meira að votheysverkun, sem gæti sparað stórlega fjármagn í landbúnaði og fjárfestingu í landbúnaði? Það er ekki veitt ein króna til þess, nema kannske til Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. En hverjir taka upp þá verkunarhætti? Það eru menn á Ströndum og við Ísafjarðardjúp og hefur gengið aldeilis prýðilega (Gripið fram í: Við Ísafjarðardjúp?) Við Ísafjarðardjúp. (Gripið fram í: Hvaða bæir eru það?) Ég kann illa við, herra forseti, að skrifari deildarinnar sé að kalla fram í, a.m.k. voru það ekki þeir siðir sem mér voru kenndir þegar ég var skrifari deildarinnar. (Gripið fram í).

Áður en ég held þessari upptalningu áfram væri kannske rétt að koma aðeins að því, að bændur sjálfir eru farnir að sjá hversu alvarlegt ástandið er. Þó að margir fulltrúar þeirra hér á þingi haldi áfram að prédika óbreytta stefnu eru það óbreyttir bændur, og kannske eru það þeir bændur sem minnst eiga undir sér, sem átta sig á hvert stefnir í þessum málum. Eða gæti hugsanlega verið að fulltrúar bænda á þessu þingi væru aðallega talsmenn stórbændanna? Getur það hugsast?

Mig langar — með leyfi forseta — að víkja örlítið að bréfi sem gagnmerkur bóndi á Suðurlandi skrifaði mér fyrir skömmu. Þar segir orðrétt:

„Stefnan í landbúnaðarmálum hefur verið sú að láta hlutina velta áfram samkv. ráðandi kerfi í þeirri von að málin leysist einhvern veginn. Gagnrýni Alþfl. hefur verið réttmæt“, segir þessi bóndi. Hann heldur áfram: „Það fer ekki á milli mála, að útflutningsuppbótakerfið er sprungið. Það var að vísu mjög æskileg trygging á sínum tíma, en hún hefur verið misnotuð undanfarin ár.“

Þetta segir einn úr röðum bændastéttarinnar, og ég er sannfærður um að undir þessi orð taka fjölmargir bændur.

Herra forseti. Alþfl. hefur um langt árabil gagnrýnt þá stefnu sem nú er að leiða þjóðina í slíkar ógöngur að m.a. hæstv. fjmrh. hlýtur að vita það og hlýtur að vera fullljóst að kerfi það, sem við búum við nú, getur ekki gengið. Þess vegna vil ég segja það við fulltrúa bænda hér á þingi: Væri nú ekki nær, að við reyndum að nálgast hver annan í hugmyndum okkar um landbúnað og reyndum að finna lausn á þessu máli, heldur en að halda áfram enn þá lengra út í fenið, þar til við erum sokknir upp að hnjám og komumst ekki upp?

Ég hef orðið rækilega var við, og það hafa fleiri orðið, að sú umræða, sem hefur átt sér stað um landbúnaðarmál að undanförnu, er svo ofsafengin, oft á báða bóga, að menn draga upp afskaplega misjafnar myndir af þeim hópum sem hér eiga hlut að máli. Þá á ég við neytendur í þéttbýli annars vegar og bændur hins vegar. Það er því miður orðin allt of algeng skoðun í þéttbýli að bændur séu einhvers konar ölmusumenn sem heimti og heimti og fái allt sem þeir biðji um, þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur af tilverunni, af lífinu, því þeir geti sótt allar sínar þarfir og allar sínar nauðsynjar út í fjós eða út í móa. Á sama hátt tel ég að bændur álíti að neytendur í þéttbýli hafi nægt fjármagn til að kaupa afurðir þeirra og til að rétta hlut þeirra. En þetta er því miður ekki rétt. Og það, sem verst er í þessu máli, er að núverandi niðurgreiðslukerfi, sem á að verka jafnandi, sem á að verka þannig að almenningur geti keypt landbúnaðarafurðir, hefur því miður snúið á þann veg að mínu mati að þeir, sem mesta fjármunina eiga í þjóðfélaginu, hagnast mest á niðurgreiðslunum því að hinir geta lítið keypt.

Ég óttast mjög að það sambandsleysi, sem ég tel að sé nú að verða á milli sveitanna annars vegar og þéttbýlisins hins vegar, sé að verða stórhættulegt. Skilningsleysi á milli þessara tveggja þjóðfélagshópa leiðir aðeins til ófarnaðar. Úr því verður að bæta.

Alþfl. hefur bent á að það væri þess virði að fara að huga m.a. að ýmsum milliliðakostnaði í landbúnaði. Hér með er ekki verið að segja berum orðum að stolið sé fjármagni frá bændum. En það skal hins vegar fullyrt hér og nú, að rekstrarfjármunir ákveðinna stofnana í þessu þjóðfélagi, og það er best að koma beint að því, Sambands ísl. samvinnufélaga m.a., eru fengnir úr útflutningsuppbótakerfinu og notaðir á þann hátt að ég tel ekki sæmanlegt. Ég tel m.a. að samvinnuhreyfingin, hversu góð og gegn sem hún er, hafi farið inn á villigötur á undanförnum árum og að hún eigi að snúa af þeirri leið. Ég tel að samvinnuhreyfingin hafi ekkert með það að gera að reisa kexverksmiðju suður í Reykjavík fyrir fjármagn sem ætti að koma bændum til góða. Dæmi af þessu tagi mætti rekja endalaust.

Það þarf nú að vinna bráðan bug að því að breyta framleiðsluráðslögunum til nútímalegra horfs. Og ég held, herra forseti, að ég ljúki þessum orðum mínum með því að setja fram í hnotskurn þá stefnu sem Alþfl. hefur bent á að ætti að fara. Þá stefnu þarf að útfæra og hún hefur verið útfærð og mun verða útfærð. En í grundvallaratriðum hlýtur stefnan að vera sú að miða framleiðsluna við innanlandsmarkað og draga smám saman og skipulega úr offramleiðslu og útflutningi. Það getur enginn maður neitað því, að þetta sé réttmæt stefna. Ég held að stefnuleysið hafi fyrst orðið til þegar forkólfar Sjálfstfl. og Framsfl. í bændastétt tóku til við að hvetja bændur til að stækka bú sín og auka framleiðsluna. Í þeim efnum var ekkert hugað að landshögum, það var ekkert hugað að gróðurlendi, hvar væri hagkvæmt að framleiða mjólk, hvar væri hagkvæmt að framleiða dilkakjöt, heldur anað áfram. (Gripið fram í: Túnin voru stækkuð.) Túnin voru mikið stækkuð. Sum þeirra eru orðin að engjum. Það á að hætta styrkjum og lánum til þeirrar framleiðslu sem nú er meira en nóg af, en nota styrktarféð til þess að stuðla að aukinni fjölbreytni og til að greiða bætur til þeirra bænda sem leggja niður búskap á óarðbærum búum. Það væri hægt að veita eldri bændum fulla tekjutryggingu ef þeir hættu óarðbærum búskap. Auk þess ber brýna nauðsyn til að auka ráðgjöf um hagnýtan búskap, þ.e. til þess að auka raunverulega framleiðni í landbúnaði. Þetta eru þau atriði sem við hljótum að verða að stefna að. Það skal játað, að hv. þm. Steingrímur Hermannsson og fyrrv. landbrh. beitti sér fyrir mörgum nýjungum í þessum efnum, en hann fékk ekki nægar undirtektir, og það sem kannske er lakara: tillögurnar, t.d. kvótakerfið, eru engan veginn fullnægjandi.

Herra forseti Ég held að það hljóti nú að vera ljóst af orðum mínum, að Alþfl. er ósammála því að haldið verði áfram á sömu braut í landbúnaðarmálum. Ég held að öllum mönnum hljóti að vera orðið ljóst að þetta gengur ekki lengur. Þjóðfélagið hefur einfaldlega ekki efni á slíkri pólitík. Menn verða að gera sér ljósa grein fyrir þessu. Í þessu felst hvorki lítilsvirðing á bændastéttinni né að menn séu að beina geirum sínum að þeirri stétt.

Menn eru að gagnrýna landbúnaðarstefnuna eins og henni er fylgt eftir, en það er eins og það sé nákvæmlega sama á hvaða staðreyndir bent er í þessu máli, menn lemja ævinlega og ávallt hausnum við steininn.

Og að lokum, herra forseti, aðeins þetta vegna frammíkalls ágætis ritara deildarinnar: Ég held að það væri snjallt fyrir hann, af því að Ísafjarðardjúp er í hans kjördæmi, að fylgjast með því hvað bændur voru að gera í flatgryfjumálum við Djúpið í sumar.