13.03.1980
Neðri deild: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í B-deild Alþingistíðinda. (1153)
45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Varðandi þá brtt., sem um getur á þskj. 191, er hér um grundvallarbreytingu að ræða. Brtt. á þskj. 191, ef hún nær fram að ganga, um heimild til sveitarstjórna til að hækka útsvar um 10% til viðbótar þeim 11% sem nú á að lögfesta, mun stórauka skattbyrðina í landinu. Þó hér sé um sambærilegt heimildarákvæði að ræða og er í núgildandi lögum um tekjustofna sveitarfélaga er samkv. frv. því, sem hér liggur fyrir, ráð fyrir gert að útsvar verði 11% af tekjum, auk þess sem með brtt., sem nú liggur fyrir, er gefin heimild til 10% hækkunar þannig að þau geta farið í 12.1%.
Reynslan hefur sýnt að flest sveitarfélög hafa nýtt sér fyrri heimild, og efalítið munu þau gera það áfram. Nái heimildin á þskj. 191 fram að ganga nú og sveitarfélögin fullnýti sér hana mun hún leggja 5.1 milljarðs aukna skattbyrði á landsmenn. Í þessu sambandi tel ég fróðlegt fyrir stjórnarsinna að rifja upp eitt atriðið í stjórnarsáttmála þeirra, um kjaramál, sem virðist hafa gleymst í skattagleði þeirra við að leggja aukna skattbyrði á landsmenn. Í kaflanum um kjaramál stendur, að athuguð verði lækkun útsvars á lægstu tekjum. Væri nú ekki ráð fyrir stjórnarsinna að staldra ögn við í ákafanum að leggja á aukna skatta og athuga hverjar verða tekjur ríkissjóðs og skattbyrði landsmanna í ár, sjá hver reynslan af nýju skattlögunum verður, áður en hlaupið er til með nýjar skattaálögur á landsmenn?
Þeir, sem flytja brtt. á þskj. 191, ættu að íhuga vel hvort orð hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar gætu e.t.v. haft við rök að styðjast, að með þessu frv. væri verið að taka heljarstökk út í náttmyrkrið án þess að nokkur þekkti afleiðingarnar. En hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson virðist varla svo mjög kvíða afleiðingunum af stökkinu fyrir skattborgara þessa lands, því hann vílar ekki fyrir sér að gerast meðflm. að umræddri brtt. án þess að hafa hugmund um hvar stökkið endar. Nei, væri nú ekki ráð að doka aðeins við og sjá hvar okkur ber niður úr stökkinu, enda hafa flestir viðurkennt að með nýju skattalögunum er rennt blint í sjóinn og hefur hæstv. fjmrh. reyndar látið þau orð falla að e.t.v. yrði óhjákvæmilegt síðar á árinu að leggja á aukna skatta eða þá lækka þá þegar séð veður fyrir hver útkoman verður? Væri það nokkur goðgá að bíða eftir útkomunni áður en hlaupið er til með heimildir til aukinnar skattbyrði á landsmenn upp á 5.1 milljarð kr., sem reynslan hefur sýnt að oftast er nær fullnýtt? Ég tel að allur almenningur beri mikinn kvíðboga fyrir e.t.v. mjög aukinni skattbyrði þó þm. séu ekki hér í einhverju snarhasti að gefa heimild til útsvarshækkunar sem efalitið verður nýtt og mun þyngja skattbyrði fólksins í landinu verulega.
Ég tel hins vegar að finna verði leið til þess að koma til móts við fjárhagsvanda sveitarfélaga. En þegar óvissan er svo mikil um skattbyrðina, samfara stórfelldum breytingum á skattalögunum, verðum við að leysa það mál á annan hátt en með nýjum óvæntum skattaálögum á landsmenn.
Sú brtt., sem ég flyt á þskj. 199, miðar einmitt að því að leysa tímabundinn fjárhagsvanda sveitarfélaga á annan hátt en með aukinni skattbyrði á landsmenn. Brtt. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Við a-lið 9. gr. laganna bætist:
Aukaframlag úr ríkissjóði sem nemur 4% af söluskatti þeim sem innheimtur er í ríkissjóð á árinu 1980 samkv. lögum nr. 10/1960, um söluskatt, með síðari breytingum, sem renni til að greiða úr sérstökum fjárhagserfiðleikum sveitarfélaga, sbr. b-lið 8. gr.“
Eins og fram kemur í brtt. verður fjárhagsvandi sveitarfélaga leystur á yfirstandandi ári með aukaframlagi úr ríkissjóði sem nemi 4% af söluskatti þeim sem innheimtur er í ríkissjóð á árinu samkv. lögum um söluskatt. Þetta aukaframlag mun gefa 4 milljarða 470 millj. til viðbótar þeim 8.9 milljörðum sem renna nú af söluskattstekjum í jöfnunarsjóð sveitarfélaganna. Hér er því ekki langt frá því að vera um sömu upphæð að ræða og heimildin á þskj. 191 mundi gefa sveitarfélögunum. Það er auðvitað ljóst, að hér er um tilfærslu á fjármagni að ræða frá ríkissjóði til sveitarfélaganna, og tekjur ríkissjóðs munu því skerðast að sama skapi, ef þessi brtt. nær fram að ganga, ef það verður þá ekki halað inn aftur á skattstiganum þegar hann sér dagsins ljós. En meginmálið er samt það, og það er tilgangurinn með flutningi brtt., að fjárhagsvandi sveitarfélaganna verði ekki leystur á kostnað skattborgaranna, heldur verði útgjöld ríkissjóðs skert að sama skapi.
Meginmálið er að samstaðá geti skapast um tilfærslu á fjármagn til sveitarfélaganna sem væri tímabundin og miðuð við þetta ár. Svo má endurskoða málið í lok ársins, þegar séð verður hvert nýju skattalögin leiða okkur. Það mun ekki standa á okkur Alþfl.-mönnum að leggja fram sparnaðartillögur í ríkisbúskapnum, enda má minna á að fjárlagfrv. núv. ríkisstj. er 5.2% hærra en fjárlagafrv. minnihlutastjórnar Alþfl. Ekki er síður ástæða til að minna á að í fjárlagafrv. ríkisstj. nú er gert ráð fyrir 26.4% hækkun á tekjusköttum einstaklinga eða um 8 milljarða kr. hækkun frá fjárlagafrv. fyrrv. fjmrh. Sighvats Björgvinssonar. Stjórnarsinnar geta því óhræddir stutt brtt. á þskj. 199, og verði hún samþ. mun ekki, eins og ég sagði, standa á okkur Alþfl.-mönnum að leggja fram sparnaðartillögur á móti við afgreiðslu fjárlaga.
Það er ekki endalaust hægt að seilast í vasa skattborgaranna þegar útgjöld ríkis og sveitarfélaga keyra úr hófi fram. Það verður að leita annarra leiða. Og það væri með ólíkindum ef þm. Sjálfstfl. gætu ekki greitt götu þessarar brtt., þegar minnst er 35 milljarða niðurskurðar þeirra á ríkisútgjöldum frá síðustu kosningum og stöðugra yfirlýsinga um lækkun á sköttum. Ég trúi því ekki heldur að óreyndu, að þeir hv. þm., sem standa að heimildarhækkun á útsvari um 5.1 milljarð kr., séu ekki tilbúnir að draga till. sínar til baka þegar komin er fram brtt. sem leysir fjárhagsvanda sveitarfélaganna án þess að leggja aukna skattbyrði á landsmenn.
Herra forseti. Það skulu því verða lokaorð mín nú, að ég er andvíg brtt. á þskj. 191 og mun greiða atkv. gegn henni. Ég skora á hv. þm., sem standa að brtt. á þskj. 191, að draga hana til baka og greiða atkv. brtt. á þskj. 199, sem nær því markmiði, sem að er stefnt með till. á þskj. 191, án þess að þyngja skattbyrðina frekar. Það er hægt, ef vilji er fyrir hendi að íþyngja ekki skattborgurunum, en á sama hátt að leysa vanda sveitarfélaga. Og ég geri ráð fyrir því, að þeir kjósendur, sem veittu brautargengi í kosningum hv þm. sem standa að brtt. á þskj. 191, hafi ekki síður veitt þeim brautargengi til þess að gæta hagsmuna sinna, skattborgaranna, en sveitarfélaganna.