13.03.1980
Neðri deild: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)
45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Hv. þm. Magnús H. Magnússon hefur nú tekið af mér verulegt ómak við að svara nokkrum rangfærslum í málflutningi hv. þm. Alexanders Stefánssonar, sem fullyrti að þingflokkur Alþfl. hefði orðið til þess að stöðva hækkun á útsvari á sínum tíma. Það er allt í lagi að endurtaka það sem hv. þm. Magnús H. Magnússon sagði hér, að það var fjmrh. Framsfl. sem það gerði í ríkisstj.
Ég held að menn verði að gera sér nokkra grein fyrir því, hver mismunurinn á þeim tveimur till. sem hér eru til umr., annars vegar brtt. á þskj. 191 og hins vegar brtt. á þskj. 199. Brtt. þeirra fjórmenninganna, Alexanders Stefánssonar, Guðmundar J. Guðmundssonar, Jóhanns Einvarðssonar og Eggerts Haukdals, er að vísu heimildarákvæði. En þurfa menn að láta segja sér það tvisvar, að þessi heimildarákvæði verði ekki notuð til fulls? Þarna eru heimildarákvæði upp á 4.5 milljarða kr. sem koma beint ofan í mjög verulegar tekjuskattshækkanir sem fyrirsjáanlegar eru. Ég hafði litið svo á í sakleysi mínu, að það hefði verið eðlilegra að þessari brtt. hefðu þá fylgt einhver heimildarákvæði til þess að auka persónuafslátt eða lækka tekjuskatta á láglaunafólki hér á landi, en það er ekki svo gott.
Ég vil benda á það, að í till. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur er gert ráð fyrir að þessara fjármuna verði aflað á annan hátt en með beinni álagningu skatta eða útsvara. Hv. þm. Alexander Stefánsson spurði að því áðan, hvar ætti að spara og hvernig ætti að spara þessa 4.5 milljarða sem gert er ráð fyrir í till. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur að verði færðir á milli ríkis og sveitarfélaga. Ég hafði af því spurnir í dag, að í kjördæmi hv. þm. Alexanders Stefánssonar væru hugmyndir uppi um að halda áfram smíði Borgarfjarðarbrúar, en til þess verks skyldi nú tekið lán utan fjárlaga eða aflað fjár utan fjárlaga upp á hálfan annan milljarð kr. Það væri kannske spurning, hvort ekki mætti geyma þennan hálfan annan milljarð eða útvega hann til þess að hjálpa sveitarfélögunum eilítið í þeirra vandræðum, sem enginn dregur í efa að eru mjög veruleg. Það mætti kannske spara, ef vilji væri fyrir hendi, eitthvað á útflutningsuppbótum landbúnaðarvara — eða væri það ekki hugmynd? Það er hægt að spara á mjög mörgum sviðum, er vilji er fyrir hendi. Og ég er alveg sannfærður um að sú till. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hér liggur fyrir, er margfalt betri en till. fjórmenninganna.
Ég vil minna á ummæli hv. þm. Friðriks Sophussonar, sem hann viðhafði hér og ég tel afskaplega eðlilegt að verði orðið við, að þessi till hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur verði könnuð í n. áður en 2. umr. lýkur. Og ég tek ekki undir þau orð hv. þm. Alexanders Stefánssonar, að það þurfi að vera mikil vinna sem felist í því að kanna þá till. og það jákvæða sem í henni felst umfram till. á þskj. 191.