13.03.1980
Neðri deild: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1123 í B-deild Alþingistíðinda. (1165)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Það er eins og einhverju sinni var sagt, að mikið líti heimurinn öðruvísi út frá tröppum Landsbankans heldur en tröppum Alþingishússins. Í stjórnarmyndunarviðræðum í des. minnist ég þess, að Alþfl. lagði á það ríka áherslu að sveitarfélögin sjálf hefðu óskerta heimild, þannig að hámarksákvæði um útsvör væru afnumin og þetta væri algerlega á hendi sveitarfélaganna sjálfra. Eitthvað hefur þessi skoðun tapast á leiðinni. Í Sambandi ísl. sveitarfélaga býst ég við og þykist vita að séu menn úr öllum flokkum. Þeir leggja á það ríka áherslu, að þessi till. verði samþykkt, og benda á það með rökum, að verkefni hafi bæst á sveitarfélögin án þess að tekjur kæmu á móti.

Það, sem mann undrar og hefur undrað um árabil, er að um a.m.k. 20 ára skeið hefur því verið lofað og sett nefnd í málið, að nú skuli koma á staðgreiðslukerfi skatta. Opinberir starfsmenn í toppi skattkerfisins hafa tekið sér frí frá störfum til að vinna að frv. þessa efnis. Sendinefndir hafa verið sendar vítt og breitt um heiminn til þess að kynna sér þessi mál. En aldrei bólar á einu eða neinu. Þó eru það ein helstu rök sveitarfélaga, að raunverulegar tekjur eða raunveruleg prósenta af álögðum útsvörum sé vegna verðbólgu ekki nema í kringum 7–8%, og er það sjálfsagt rétt. En hvernig í ósköpunum stendur nú á því, að í iðnvæddum þjóðfélögum, þar sem tekjusveiflur á milli ára eru 1 og 2% og þykir vera stórtíðindi ef tekjur hafa aukist um eins og 2%? Sennilega eru hvergi, burt séð frá allri verðbólgu, jafn sveiflukenndar tekjur eins og hér á Íslandi. Þetta byggist á okkar atvinnulífi, það byggist á veðurfari, aflabrögðum o.s.frv., að tekjur geta hlaupið til um 10, 20, 30%. Engu að síður baslast allt opinbera „apparatið“ í 20 ár, endasendist fram og aftur um veröldina á fullu kaupi við að kynna sér þessi mál. Aldrei kemur nokkur till., nema þá þess efnis, að þetta skuli ganga í gildi 1976, því sé frestað síðan til 1977, til 1980, 1980 er því frestað til 1982. Hvert skyldi eiga að fara næst í heiminn til þess að kynna sér þessi einföldu mál?

Ég þekki það af eigin raun í starfi mínu, hvernig það er fyrir verkafólk, sem býr við sveiflukenndar tekjur, að fá á sig seinni hluta ársins skatta sem teknir eru af því mánaðarlega og nema kannske rauntekjum þess fyrir hvern mánuð, sept., okt., nóv. og des. Og ætli hv. þm. Pétur Sigurðsson, sem var að ljúka máli sínu áðan, kannist ekki býsna vel við þessi dæmi einmitt af sjómönnum, þegar er uppgripaloðnuvertíð, uppgripasíldarvertíð, góður afli — síðan dettur allt niður næsta ár — hvað þetta kostar, þjáningar, erfiðleika, vonbrigði og algert tekju- og úrræðaleysi? Engu að síður virðist engin ríkisstj. ráða við þetta. Embættismannakerfið endasendist fram og aftur um heiminn, endurskoðar þessi lög og fær engu áorkað. Hvernig í ósköpunum er nú hægt að þola slíkt í 20 ár? Ég hef ekki verið í 20 ár hér á Alþ. En þeir, sem hafa verið það, ættu nú að vera farnir að sjá við þessum vinnubrögðum.

Það er einmitt tvennt, sem allar ríkisstj. byrja á að lofa í upphafi ferils síns. Þær byrja alltaf örugglega á því að lofa að nú skuli stöðvað Parkinsonslögmálið í útþenslu ríkisbáknsins, og síðan koma ráðstafanir gegn skattsvikum. Ekki ein einasta ríkisstj. hefur nokkru sinni getað gengið í þessi mál af neinni festu, ekki af neinu öryggi. Þetta virðist leika meira og minna allt saman laust án þess að viðkomandi ríkisstjórnir fái þar við nokkuð ráðið. Þetta er sennilega kerfið sem hv. þm. Vilmundur Gylfason talar sem mest um. Ég held að yfirleitt sé raunin sú, að sveitarfélög haldi betur á sínum fjármálum en ríkið. Það þarf ekki að gilda um allar ríkisstofnanir, en ákaflega mikið vantar nú á að einhvern tíma væri tekið á ríkiskerfinu sjálfu og reynt að skera þar eitthvað niður öðruvísi en með ræðuhöldum og yfirlýsingum.

Ég skal ekki — þar sem er svo áliðið fundar — vera að egna menn hér upp í ræðustól með einhverjum eggsvörum. Það er að vísu svona, ef ég missi það út úr mér innan gæsalappa, það er dálítið spaugilegt að heyra hv. þm. Friðrik Sophusson og Halldór Blöndal býsnast þessi lifandis ósköp, innblásna heilagri þrenningu, yfir því að nú skuli ekki eiga að leyfa grunnkaupshækkanir hjá opinberum starfsmönnum. Þetta eru leiftursóknarmenn. Það eru fulltrúar flokka sem kröfðust vísitölubreytinga, kröfðust að vísitala væri afnumin á láglaunafólki.

Hv. 5. þm. Suðurl. sagði í ræðu sinni að útsvar á þeim tekjuminnstu hækkaði mest í prósentum og hann boðaði brtt. við 3. umr. Að vísu kom nú hæstv. félmrh. með ýmsar skýringar á þessu, en ef svo er, að þetta frv. er þannig vaxið að það auki mest skatta á þeim sem lægstar hafa tekjur, þá er ég fullkomlega til viðræðu um það, eftir að ég er búinn að athuga málið, — og ef hv. 5. þm. Suðurl. hefur rétt fyrir sér, sem ég skal ekkert um segja á þessu stigi málsins, — að vera meðflm. með honum að brtt. þess eðlis, ef sú er raunin að skattar hækki mest eða útsvör hækki mest á þeim sem eru lægst launaðir.