13.03.1980
Neðri deild: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1128 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)
45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Ólafur Þ. Þórðarson:
herra forseti. Hér hefur farið fram ákaflega skemmtileg skrautsýning í dag og kvöld. Höfuðpaurinn situr aðgerðalítill, en sendir lið sitt fram til orrustu til að halda uppi furðulegu málþófi um hluti sem formanni þingflokksins voru þó fullljósir þegar mál þetta kom fyrst á dagskrá, þ.e. að ekki er til umræðu að hækka útsvar á Íslandi. Það er samkv. íslenskum lögum 10%. Væri staðgreiðslukerfið komið á væri það mun þyngra en það er, það blasir við. Í reynd er það vegna verðbólgunnar 7.5%. Spurningin er aðeins sú, hvort sveitarfélögin eigi að fá þá leiðréttingu að útsvarið fari úr 7.5% í 8.1%. Þetta er kjarni málsins. Þetta er það sem er til umræðu.
Hvers vegna gerist það þá, að fyrst er alger þögn um hvort menn vilji styðja þau 10%, sem verið er að tala um að leggja ofan á, eða ekki? Það er engin samstaða fyrrv. ráðh. Alþfl. um að gefa eftir af tekjum ríkisins til sveitarfélaganna í gegnum söluskattinn. Þess vegna var ekki hreyft við þessu máli meðan sú stjórn sat. Þá bar hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, 10. landsk. þm., ekki fram neina till. um að færa til frá söluskattinum til sveitarfélaganna. En svo kemur í ljós að Alþfl.-menn eru í ábyrgð, þó þeir séu það ekki hér í þinginu í bili að því er virðist, — þeir eru í ábyrgð vítt og breitt um land í sveitarstjórnum. Og þessar sveitarstjórnir þurfa að vera ábyrgar áfram. Ef sú leið er farin, að hækkun sé heimil, er ábyrgðin færð til sveitarfélaganna. Þá geta t.d. Alþfl. og Sjálfstfl. stöðvað það í Reykjavík að hækkun verði og á mörgum stöðum öðrum víðs vegar um landið. Ég tel ekki að hv. þm., Karvel Pálmason, 6. landsk. þurfi að hafa neinar áhyggjur af Bolungarvík.
Ef sú till. verður aftur á móti samþ., að það verði tekið af söluskattinum og fært til sveitarfélaganna er búið að taka ákvörðun um skattlagningu, e.t.v. aukna skattlagningu, einfaldlega vegna þess að skattstiginn er ekki kominn fram og ekki til umr. Þegar hann kemur fram er fyrst verið að ræða um hver verður raunveruleg skattálagning hjá þjóðinni, heildarskattálagningin. Fyrr er málið ekki á dagskrá. Þetta blasir við. Þetta viðurkenndi m.a. Karvel Pálmason í ræðu sinni. Ekkert er vitað hver skattstiginn verður.
Það er nefnilega fróðlegt að sjá í reynd hvernig gengur hjá Alþfl.-mönnum og fleiri aðilum, sem eru í ábyrgðarstöðum í sveitarfélögunum, að vera samstíga þeim aðilum sem nú virðast hafa lagt höfuðkapp á að draga úr tekjum sveitarfélaganna, - draga úr þeim því að ekki er um aukningu að ræða, það blasir við í þeirri verðbólgu sem er í landinu, hvernig svo sem ástandið verður. Það er allt annað mál og hlýtur að verða tekið til umr. þegar þar að kemur.