17.03.1980
Sameinað þing: 32. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1148 í B-deild Alþingistíðinda. (1175)
116. mál, fjárlög 1980
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Ég fékk leyfi forseta til þess að segja örfá orð aðeins til þess að leiðrétta misskilning í ræðu hv. 1. þm. Reykn.
Hann komst svo að orði, að forsrh. hefði ekki gert Alþ. grein fyrir stefnu ríkisstj. eins og þingsköp gera ráð fyrr. Í þessari stuttu setningu gætir tvenns konar misskilnings.
Í fyrsta lagi: Ríkisstj. var mynduð 8. febr. s.l., og á fyrsta fundi Alþ. eftir það, 11. febr., flutti ég ræðu um stefnu ríkisstj. þar sem ég las upp stefnuskrá hennar, sem er allítarleg, og þar sem sýnilegt er að hv. þm. er ekki nægilega fróður í því sem þar stendur skal ég gefa honum eintak af stjórnarsáttmálanum og vil biðja hv. þm. Friðrik Sophusson að færa honum það eintak. (Gripið fram í: Áritað.) Eftir ósk hv. þm. skal ég árita það með kærri kveðju. En þessum stjórnarsáttmála held ég að sé rétt að fylgi þá nafntogað heilræði, sem hæstv. núv. utanrrh. gaf eitt sinn, og það er að lesa kverið bæði kvölds og morgna. Ég segi þetta ekki vegna mín eða ríkisstj., heldur vegna hv. þm. sjálfs, til þess að hann komi síður ólesinn aftur í þennan ræðustól.
Varðandi hins vegar tilvitnun hans í þingsköp er um annan algeran misskilning að ræða. Í 52. gr. þingskapa segir: „Þá skal og útvarpa innan tveggja vikna frá þingsetningu stefnuræðu forsrh. og umr. um hana.“ — Þetta ákvæði á við það, að hvaða ríkisstj. sem situr þegar Alþ. kemur saman skuli forsrh. hennar innan tveggja vikna gera grein fyrir stefnu ríkisstj. og síðan fari fram umr. Vitanlega á þetta ákvæði ekki við þegar ríkisstj. tekur við á öðrum tíma. Engu að síður hefur verið gerð grein fyrir stefnu stjórnarinnar og urðu umr. um hana.
Ég vildi nota þetta tækifæri til að leiðrétta strax þann tvenns konar misskilning sem kom fram hjá hv. þm. að því er þetta varðar.