18.03.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1183)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Ólafur Jóhannesson utanrrh.):

Herra forseti. Samkv. bréfi, sem lesið var hér af forsetastóll áðan, hefur kjörbréfanefnd komið saman á fund og fjallað um kjörbréf Sigrúnar Magnúsdóttur kaupmanns, sem er 2. varaþm. Framsfl. í Reykjavík, en 1. varaþm. dvelst erlendis. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréfið, ekkert fundið við það athugavert og leggur því til að kosning Sigrúnar Magnúsdóttur verði tekin gild og kjörbréf hennar samþ.