19.12.1979
Neðri deild: 6. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í B-deild Alþingistíðinda. (119)
44. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Ég vil þakka þeim þm., sem hér hafa talað, fyrir góðar undirtektir við málaleitan minni.
Ég geri mér fyllilega ljóst, að menn hafa fengið mislangan tíma til að kynna sér málið, og held að það hafi verið rétt sem hv. þm. Svavar Gestsson sagði áðan, að mönnum er nokkur vandi á höndum. Þó er tíminn að sjálfsögðu mismikill, því sumir, sem um fjalla, hafa fengið nokkuð góðan tíma til að skoða frv. og sumir hafa raunar átt hlut að því að semja það. Hins vegar vil ég láta koma fram, að auðvitað er umdeilanlegt hvað af því, sem hér er lagt fram, er talin tæknileg nauðsyn á að afgreiða. Sumir gætu verið þeirrar skoðunar að raunar sé tæknileg nauðsyn á að afgreiða frv. allt, en um það verður að nást samstaða í hv. fjh.- og viðskn. Ég treysti því að samstaða náist þar um hvað menn telja óhjákvæmilegt að afgreiða af þessu frv.
Meginatriði málsins er að þarna er ekki stefnt að neinni kerfisbreytingu frá gildandi skattalögum sem koma eiga til framkvæmda nú um næstu áramót, heldur er fyrst og fremst, eins og tekið hefur verið hér fram, verið að styrkja þá framkvæmd sem mikil samstaða var um hér á þinginu þegar skattalög nr. 40 frá 1978 voru samþ. Tilgangur þess frv., sem hér er flutt, er fyrst og fremst að styrkja þá framkvæmd gildandi laga sem mikill stuðningur var víð í þinginu þegar þau lög voru afgreidd á sínum tíma.
Ég ítreka svo þakkir mínar til þeirra þdm., sem hér hafa talað, og óska eindregið eftir því, að menn reyni að afgreiða fyrir áramótin það sem þeir sjálfir telja og samstaða verður áreiðanlega um í n. að sé eðlilegt og nauðsynlegt að afgreiða, bæði tæknilega og eins að svo miklu leyti sem menn eru reiðubúnir að afgreiða önnur atriði sem styrkja þá framkvæmd núgildandi skattalaga sem almenn samstaða er um.