18.03.1980
Neðri deild: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)
122. mál, landflutningasjóður
Frsm. (Árni Gunnarsson):
Herra forseti. Hér er á ferðinni lítið mál, nánast leiðrétting á lögum um landflutningasjóð. Þetta er frv. til l. um breyt. á lögum nr.62 31. maí 1979 um þennan sjóð, og frv. er flutt af samgn. þessarar hv. deildar. Til skýringar er rétt að geta þess, að víð gerð síðasta frv. urðu þau mistök, að ekki kom fram hver gjaldstofninn væri sem leggja ætti á 1% gjald sem um er getið í lögunum. Lög þessi voru samþ. hér á hinu háa Alþingi 23. maí 1979. Hér er því á ferðinni einfalt leiðréttingaratriði. Það mun vera ástæðulaust að vísa þessu frv. til n., þar eð n. stendur að því einhuga. Tel ég þá erindi mínu hingað lokið.