18.03.1980
Sameinað þing: 34. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (1205)

92. mál, málefni farandverkafólks

Flm. (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Atvinnulíf okkar Íslendinga hefur löngum verið árstíðabundið. Mikil vinna, einkum við fiskveiðar og vinnslu sjávarafla, skapast við sjávarsíðuna og stendur um nokkurn tíma í senn. Vetrarvertíðin frá janúar og fram í maí er að sjálfsögðu sú vertíð sem fyrst kemur í hugann í þessu sambandi. Þá er skemmst að minnast síldveiðanna fyrir norðan og austan. Nú hin síðari ár hefur mikil vinna verið við loðnuveiðar og vinnslu hennar þann tíma er hún gengur upp að landinu. Reyndar hafa árstíðabundnar sveiflur við þessi störf heldur minnkað á síðari árum og vinnan orðið jafnari og samfelldari. Áður varð nokkurt hlé á milli vertíða, en nú tekur ein vertíðin við af annarri. Engu að síður er það svo, að enn skapast mikil vinna í einstökum byggðarlögum um tiltekinn tíma og þá er þörf fyrir aukið vinnuafl.

Víða er meiri vinna en svo, að heimafólk eitt geti annað henni. Þess vegna er það, að hópar fólks úr öðrum byggðarlögum, jafnt bæjum sem sveitum, eru ráðnir til margra þeirra staða þar sem aflinn berst á land og er unninn. Þetta er hið svokallaða farandverkafólk, þar sem það dvelur lengri eða skemmri tíma fjarri heimilum sínum við vinnu. Von um miklar tekjur er að sjálfsögðu hvetjandi í þessu sambandi, oft samfara lítilli vinnu á heimaslóðum. Farandverkafólk er reyndar ekki aðeins í sjávarútvegi, það má einnig finna í landbúnaði og við ýmsar framkvæmdir, svo sem virkjunarframkvæmdir, brúarsmíði o.fl.

Skortur á vinnuafli í sjávarplássum hefur oft verið tilfinnanlegur. Á árunum 1955–1965 keyrði um þverbak, og var þá gripið til þess ráðs að ráða erlenda sjómenn til starfa á fiskiskipum okkar. Einkum var leitað til frænda okkar Færeyinga á sínum tíma og voru þeir hundruðum saman við störf hér á landi.

Ýmis samskiptavandamál komu upp, en þau voru yfirleitt leyst farsællega, enda tungumálið ekki til trafala. Þessi samskiptavandamál voru einkum varðandi skatta og skyldur, en í ljós kom að Færeyingarnir höfðu við ráðningu ekki fengið fullnægjandi upplýsingar um skattakerfið hér og einnig voru þeir tvískattaðir. Oft á tíðum var þeim erfitt um vik að fá leiðréttingu mála sinna.

Þegar við Íslendingar gátum aftur mannað bátana með íslenskum áhöfnum var innflutningi Færeyinga að mestu hætt og innflutningur erlends vinnuafls lagðist þar af leiðandi niður.

Á síðustu árum hefur innflutningur erlends vinnuafls hafist á ný. Einkum hefur skort vinnuafl í fiskiðnaðinum og hefur þetta fólk því leitað í þá atvinnugrein. Um hefur verið að ræða staðbundinn vinnuaflsskort er gert hefur vart við sig hvað eftir annað. Einkum hefur skort vinnuafl í fiskiðnaði í sjávarplássum þar sem ör uppbygging hefur átt sér stað. Nú eru það ekki Færeyingar, sem sækja hingað atvinnu, þeir búa vel að hag sínum í Færeyjum, enda lífskjör þeirra sennilega betri í dag en okkar Íslendinga. Nú er það einkum enskumælandi fólk, aðallega kvenfólk frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi, og jafnvel sækir hingað fólk frá Asíulöndum, en ekki er það í miklum mæli.

Ég tel ekki óeðlilegt að hingað sé ráðið erlent fólk til starfa, fáist ekki innlent vinnuafl til að sinna brýnum verkefnum. En það, sem stingur í augu í þessu sambandi, er sá algjöri upplýsingaskortur sem útlendingarnir búa við. Það hefur komið í ljós, að þetta fólk hefur því miður ekki hugmynd um hvaða réttindi og skyldur eru því samfara að vera verkamaður á Íslandi. Erlent farandvinnufólk, er ég hef átt viðræður við, hefur gefið ófagrar lýsingar á aðbúnaði og kjörum sínum. Ráðning þessa fólks mun fara fram í gegnum söluskrifstotur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í London. Þar er gefið í skyn að hér sé um óþrjótandi vinnu að ræða, fólk geti reitt sig á það að koma heim með fullar hendur fjár. Ekkert er sagt um aðbúnaðinn og himinháan fæðiskostnað, hvað þá að þess sé getið, hvaða skatta fólkið þarf að greiða. Ráðningaraðilar gefa ekki heldur upplýsingar um kjarasamninga og launakerfi sem fólk þarf við að búa.

Það segir sig sjálft, að fólk, sem ekki hefur annað veganesti en hálfsannleika, hlýtur að vera illa statt í fjarlægu og ókunnu landi. Mig langar til að tilfæra hér lýsingu, er ein stúlkan gaf af ástandinu. Hún sagði að fyrsta áfallið eftir komuna hingað til lands hefði verið að sjá það húsnæði sem henni og félögum hennar var ætlað. Þær voru settar þrjár í lítið herbergi, sem gerði ekki betur en rúma þau þrjú rúmstæði sem þar voru. Önnur húsgögn voru þar engin, þannig að fatnað sinn og aðrar föggur urðu stúlkurnar að geyma á gólfinu. Þrifnaðaraðstaða var þannig, að ein sturta var fyrir íbúa sex slíkra herbergja, eða 18 manns. Má nærri geta hvernig ástandið er við slíkar aðstæður eftir vinnudag í fiski. Þvottavél var í húsinu, en íbúunum var bannað að nota hana, hún var í eigu fyrirtækisins. Eftir ítrekaðar áskoranir, þegar allt var komið í óefni vegna vandræða með fataþvott, fékkst þó leyfi til að nota vélina, en þá var notkunin svo mikil, að hún var alltaf að bila, sagði stúlkan. Það var líka talsvert áfall er hún og hinir erlendu félagar hennar komust að því, hve fæðið, sem þær áttu kost á, var dýrt. Vegna lítillar vinnu fyrst í stað varð þetta til þess, að kaupið fór meira og minna í matarkaup í mötuneytinu, vinnuföt o.þ.h. Það var lítið eftir af þeim hugmyndum sem þetta fólk hafði fengið um dýrðina á Íslandi eftir viðræðurnar við fólkið á ráðningarskrifstofunni í London. Um matseld á eigin vegum var ekki að ræða, því engin aðstaða var til slíks á staðnum.

Það eru ýmsar fleiri og það ófagrar lýsingar sem þetta fólk gefur, og því er ekki að leyna, að tungumálaerfiðleikarnir gera þessu fólki mjög erfitt um vik.

Vissulega er reynsla þessa fólks misjöfn. Sums staðar hefur allt gengið vel og þá einkum á Vestfjörðum, en þar hafa ráðningar útlendinga í fiskvinnu tíðkast um árabil. Þar er aðbúnaður yfirleitt góður og næga vinnu að fá. Þegar farið var að ráða útlendinga til fiskvinnu hér syðra var raunin önnur. Hafa hv. alþm. vafalaust fylgst með þeim umræðum sem verið hafa í fjölmiðlum um aðbúnað og launakjör þessa fólks, bæði það, að fólkinu er ætlað að dvelja í verbúðum sem vart geta talist mannabústaðir, og eins og kom fram hér áðan er fæðið rándýrt, atvinna stopul og upplýsingaskorturinn algjör.

Þótt sums staðar sé svo málum háttað, að vel gangi hjá útlendingunum, þá kvarta þeir alls staðar um upplýsingaskort. Þegar útlendingur er ráðinn til starfa hér þarf atvinnuleyfi að vera fyrir hendi. Atvinnuleyfi til handa útlendingum eru veitt á grundvelli laga frá árinu 1951 um rétt erlendra manna til að stunda atvinnu á Íslandi. Samkv. lögunum er um tvenns konar atvinnuleyfi að ræða. Orðrétt segir í 3. gr. laganna, með leyfi forseta:

„Félmrh. veitir atvinnuleyfi samkv. lögum þessum, að fengnum tillögum verklýðsfélags á staðnum í hlutaðeigandi starfsgrein, og skulu þau veitt vinnuveitendum.“

Og síðan segir í sömu lögum: „Þegar sérstaklega stendur á getur félmrh., ef sérstakar ástæður mæla með því, veitt erlendum mönnum leyfi til að stunda atvinnu á Íslandi, án þess að leyfið sé veitt ákveðnum vinnuveitanda, og þurfa þá atvinnurekendur þeir, sem leyfishafi vinnur hjá, ekki að sækja um atvinnuleyfi fyrir hann samkv. 3. gr.“

Það eru atvinnuleyfi bundin ákveðnum atvinnurekanda sem einkum eru gefin hér á landi, en sjaldgæfara er að útlendingar fái hið svokallaða sjálfstæða atvinnuleyfi. Ég tel að það sé ástæða til að efast um réttmæti þess, að launafólk sé bundið einum atvinnurekanda á þann hátt sem lögin gera ráð fyrir. Ef útlendum verkamanni líkar ekki vistin einhverra hluta vegna og vill ráða sig í vinnu annars staðar, þar sem e.t.v. væri meiri þörf fyrir vinnu hans, þá á hann á hættu að missa atvinnuleyfið og vera vísað úr landi. Reyndar hefur víst oft komið fyrir að fólkinu hafi verið hótað því.

Þar sem útlendingar í fiskvinnu eru ráðnir venjulega til hálfs eða heils árs, þá get ég ekki betur séð en þessi ákvæði stríði á móti þeirri meginreglu sem gildir í íslenskum vinnurétti um gagnkvæman uppsagnarfrest, sem á báða bóga er frá einni viku og lengst þrír mánuðir.

Ýmislegt fleira mætti nefna, er lýtur að kjörum þessa fólks, en ég læt staðar numið að sinni.

Ég hef leyft mér ásamt þeim Karvel Pálmasyni og Jóhönnu Sigurðardóttur að flytja þáttill. um málefni farandverkafólks og er það 92. mál. Till. er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fram fara endurskoðun á lögum nr. 39/1951, um rétt erlendra manna til að stunda atvinnu á Íslandi.

Meginmarkmið endurskoðunarinnar skulu vera:

1) Að leiða í lög fyllri ákvæði um upplýsingaskyldu þeirra; sem vilja ráða erlenda menn í þjónustu sína, gagnvart þeim sem ráðnir eru, um launakjör, vinnutíma og aðbúnað við vinnu hér á landi. Enn fremur um skatta og önnur opinber gjöld svo og hverjar þær skyldur sem erlendir menn takast á hendur við vistráðningu hérlendis.

2) Að tryggja með lögunum félagsleg og kjaraleg réttindi þeirra erlendra manna, sem fá atvinnuleyfi hér á landi, til jafns við heimamenn, eins og þau eru samkvæmt lögum og gildandi kjarasamningum á hverjum tíma.

3) Að skylda þá, sem leita eftir erlendu vinnuafli, til þess að hafa samráð við hlutaðeigandi stéttarfélag áður en erlendir starfskraftar eru vistráðnir.

Við endurskoðun þessa, sem skal hraðað eftir föngum, skal haft samráð við heildarsamtök aðila vinnumarkaðarins.“ Það er von mín, að endurskoðun þessara laga taki ekki langan tíma. Hér þarf að vinna hratt, því það er okkur Íslendingum vissulega til skammar, hvernig við höfum búið að því erlenda fólki sem hingað kemur til hjálpar við bjarga verðmætum sjávarafla.

Ég legg til að að loknum umræðum verði till. þessari vísað til hv. atvmn.