18.03.1980
Sameinað þing: 34. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)
92. mál, málefni farandverkafólks
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Þessi till. til þál. um málefni farandverkafólks, sem flutt er af Karli Steinari Guðnasyni og fleirum, virðist nú í seinni tíð hafa vikið úr umr. fyrir persónulegri skilgreiningu á hv. þm. Pétri Sigurðssyni. Það eru ýmist fluttar á hann skammir eða haldnar um hann minningarræður hér, sem ég sé nú reyndar ekki að komi þessu máli svo mjög við.
Ég held að till. sem hér liggur frammi og ég styð mjög eindregið, þess efnis að endurskoða lög um rétt innlendra manna til að stunda atvinnu á Íslandi og leiða í lög fyllri ákvæði um upplýsingaskyldu þeirra sem vilja ráða erlenda menn í þjónustu sína o.s.frv., — ég held að það sé fullkomlega tímabært að þessi ályktun komi fram og endurskoðun og breyting á þessum lögum, eins og þáltill. gerir ráð fyrir, komi til framkvæmda. Ég vil taka undir með þm. Karli Steinari í lýsingu hans áðan á upplýsingum, oft og tíðum röngum og villandi, sem þetta erlenda fólk fær, og taka í einu og öllu undir ummæli hans þar að lútandi.
Ég held að ef farið er að ræða málið vítt og breitt, sem ég ætla ekki að gera hér og væri efni í langa ræðu, þá sé skylt og rétt að taka fram — það er hættulegt að alhæfa hluti — að á fjölda staða eru þessi mál í mjög góðu ásigkomulagi, verbúðir góðar og fæðiskostnaður í mörgum tilfellum nokkuð hóflegur. Og eins er hitt, að þegar minnst er á að þetta fólk hafi ekki haft með sér samtök, þá er náttúrlega hægt að ræða það mál sérstaklega. Vitanlega er þetta fólk eða á að vera í samtökum verkafólks og einstakra verkalýðsfélaga. Þar er hins vegar á töluverður misbrestur, og má saka um það bæði viðkomandi starfsmenn og verkalýðsfélög.
Hins held ég að sé líka skylt að geta, að formenn og stjórnir fjölmargra verkalýðsfélaga víða á landinu hafa barist fyrir því, og orðið mjög vel ágengt víða, að reistar væru verbúðir sem væru mannsæmandi og fullkomlega uppfylltu eðlilegar kröfur. Á einstaka stað hefur þetta gengið svo vel, og þar hefur komið til m.a. barátta verkalýðsfélaga á viðkomandi stöðum, að einstaka verbúðir hafa verið notaðar sem sumargistihús. Á öðrum stöðum hefur þetta verið svona sæmilegt og á enn öðrum forkastanlegt. Þar hefur ráðið, eins og hætt er við í þessum atvinnuvegi, að hrúgað hefur verið á land afla og kannske ekki alltaf skilyrði til þess að vinna strax úr honum. Eins hafa einstakir forstöðumenn fiskvinnslustöðva og frystihúsa lítið á þetta verkafólk eins og hráefni og skort ákaflega mikið á að þeir uppfylltu þær kröfur sem gera verður.
Það er hins vegar ákaflega athyglisvert og segir í sjálfu sér nokkuð langa og mikla sögu, að þótt sjávarafurðir séu um það bil 90% af útflutningi þjóðarinnar ef álflutningurinn er undan skilinn, þá er virðingu fyrir þeim störfum, sem allt þetta þjóðfélag meira og minna hvílir á, ákaflega ábótavant. Við seljum fisk á fiskmörkuðum þar sem verðlag okkar afurða er víða 30% hærra en samkeppnisþjóðanna. Okkar styrkleiki á erlendum mörkuðum byggist ekki á lágu verði, hann byggist á gæðum. En einmitt þar sem framleitt er fyrir þessa viðkvæmu markaði er þannig ástatt og þannig að starfsfólkinu búið, að þetta verða afgangsstaðir þar sem hvað erfiðast er að fá fólk til starfa. Ég held að það hljóti að vera eitthvað öfugsnúið við slíkt þjóðfélag. Við gætum lítið til Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, sem keppast um að segja að allt sé svart í Bandaríkjunum og svart í Rússlandi og hvítt hjá sér heima. Einkenni á báðum þessum þjóðum — hvora sem menn vilja nú styðja eða hvoruga — er það, að í ýmsum grunnatvinnuvegum, eins og t.d. stáliðnaði, er best launaða vinnuaflið og fólk sem býr við bestu kjörin. En hér þar sem þessi atvinnuvegur hefur miklu meiri úrslitaþýðingu — og er sennilega vandfundin nokkur þjóð sem lifir eins algerlega einhæft og Íslendingar á fiskveiðum og fiskvinnslu — þá er reiknað með að það séu um 5 þús. starfandi sjómenn og um 8 þús. manns að staðaldri — það er að vísu dálítið sveiflukennt — sem vinna við þetta.
Nú er ég ekki að gera lítið úr ýmsum öðrum atvinnugreinum. En hvernig má á því standa, að slíkt frumatriði í allri þjóðarframleiðslunni, allri efnahagslegri gæfu þjóðarinnar, skuli beinlínis vera hornreka? Það er bara auglýst í dagblöðum: menn vantar, bónusvinna, og ég veit ekki hverju er slegið upp sums staðar til þess að bjarga þessu til bráðabirgða. Það vantar hjá þessari þjóð dýpri virðingu fyrir fiskimönnum. Maður heyrir jafnvel hér í sölum Alþingis á fagmáli talað um uppsafnað óhagræði. Á máli iðnaðarsérfræðinga heita skattaívilnanir, sem litlar eru til sjómanna, uppsafnað óhagræði. Það er nú meiri spekin þegar þeir leggja til, þessir tæknisérfræðingar okkar, að svo ákveðin hlunnindi til fiskimanna verða uppsafnað óhagræði. En þetta er andinn, nákvæmlega þannig, að það fólk, sem við þennan undirstöðuatvinnuveg vinnur, er hornrekur. Það þarf að berjast með hnúum og hnefum í þjóðfélaginu fyrir því, að ákveðnar verstöðvar — undirstrika: þó alls ekki allar og alls ekki alls staðar — uppfylli lágmarksskilyrði.
Það er svo mál út af fyrir sig, sem væri freistandi að ræða, hvort það fólk — og það mætti gjarnan gilda um sjómenn líka — sem vinnur og er orðið sérhæft í þessum störfum, sem allt okkar efnahagslíf hvílir á, — hvort það væri ekki einhver ástæða til þess að viðurkenna í launum þessa fólks þekkingu þess í meðhöndlun fisks. Það hefur aldrei verið gert. Til einföldustu skrifstofuvinnu, við ýmis mjög einföld störf verður að leggja fram svo og svo mörg prófvottorð. En hvort markaður okkar stendur eða fellur, það fáum við með auglýsingum.
Svona er ekki hægt að standa að málum. Málið ristir nefnilega miklu dýpra en þetta. Það er tímanna tákn — og vil ég alls ekki vera að hnýta í opinbera starfsmenn, það er víst eldfimt efni — en það er tímanna tákn, að meðan þeir margir hverjir eru hér í frábærlega góðum mötuneytum, þá borga þeir — ég er ekki að telja það eftir í sjálfu sér — örlítið brot af fæðiskostnaði á móts við það fólk sem vinnur hörðum höndum í þessari undirstöðuatvinnugrein allt í kringum landið. Opinberir starfsmenn borga kannske 1/5, og maður skyldi halda að fólk, sem hefur 10, 12 og 16 stunda vinnudag, þyrfti engu síður viðunandi aðbúnað og viðunandi fæði. Og einhverjum yrði hugsað til að það væri kannske ekki síður ástæða til að fæði þess fólks væri með svipuðum kjörum og tíðkast í ýmsum helstu stofnunum ríkisins.
Ég skal ekki fara ítarlegar út í þetta mál að sinni, ætli málið komi ekki fyrir aftur. Ég vil taka fram, að það má ekki alhæfa þetta mál, þetta er víða í nokkuð góðu lagi, og jafnframt leggja á það áherslu, að fjölmörg verkalýðsfélög allt í kringum landið hafa átt drjúgan þátt í að breyta og koma upp verbúðum og lagt þar mjög gott til mála.
Ég vil aðeins taka það fram í sambandi við ummæli hv.
11. þm. Reykv., að reglugerð um hollustuhætti og aðbúnað í verstöðvum hefur verið samþykkt í vetur og bíður nú aðeins staðfestingar dómsmrn., sem Öryggiseftirlitið fellur undir, þannig að þar ætti að vera kominn grundvöllur til að breyta þessu þar sem þörf er á. Svo vil ég aðeins að endingu, um leið og ég lýsi ánægju minni með þessa till. og stuðningi, ítreka það, að þetta er bara spegilmynd, örlítil spegilmynd af þessu þjóðfélagi. Þeir sem allt hvílir á og þjóðfélagið stendur og fellur með, þeir eru afgangsmenn.