18.03.1980
Sameinað þing: 34. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (1213)
59. mál, flugsamgöngur við Vestfirði
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég fagna þeirri þáltill., sem hér hefur komið fram, og tel að upphaf hennar, þar sem sagt er: „Alþingi ályktar að fela samgrh. að láta athuga nú þegar með hvaða hætti tryggja megi sem bestar og öruggastar flugsamgöngur við Vestfirði“ — eigi fullt erindi til samþykktar óbreytt. Aftur á móti get ég ekki varist þeirri hugsun, að þeir fjórir liðir, sem tíndir eru til á eftir, þrengi till., minnki gildi hennar raunverulega. Ég vil rökstyðja það á þann veg, að með þeim virðist aðeins vera hugsað til þeirra staða á Vestfjörðum sem njóta þjónustu Flugleiða. Jafnframt virðist mér að sú upptalning sé ekki fullnægjandi ef horft er á aðstæður.
Það fyrsta, sem blasir við ef litið er á Holtsflugvöll, er að fjarlægja verður þá háspennutínu sem sett var við enda flugvallarins. Verður að telja alveg forkostuleg vinnubrögð að setja háspennulínu svo nálægt flugvelli að hún beinlínis komi í veg fyrir að hægt sé að stækka völlinn og leyfa ýmsum flugvélategundum lendingu á vellinum.
Hitt atriðið, sem ég held að þurfi að koma inn í svona athugun og ég hef áður minnst á, er að það skiptir máli hvaða flugvélategundir eru notaðar. Persónulega er ég þeirrar skoðunar, að Fokker-vélarnar séu ekki þær heppilegustu sem við höfum til samgangna við Vestfirði. Ég tel að við þurfum á vélum að halda sem þola styttri flugvelli og gætu þess vegna lent á fleiri stöðum.
Ég get nú ekki stillt mig um að geta þess, að mér virðist sem hv. þm. Karvel Pálmason sé í heldur slæmum félagsskap hvað þingflokk snertir, því að á sama tíma og hann var að flytja mál sitt áðan sátu samflokksmenn hans hvað glottaralegastir undir ræðu hans og virðast enn hafa heldur gaman af umr. um flugsamgöngur við Vestfirði. Það væri kannske betur við hæfi að hann veitti þeim ráðningu í einkatímum en hér í þinginu.
Allt, sem hann talaði hér um mikilvægi flugsins sem samgöngutækis við Vestfirði, er rétt og verður ekki nógsamlega undirstrikað. Og það ástand, sem nú er, að ekki sé hægt að fljúga á milli aðalsvæða Vestfjarða og Reykjavíkur þegar veður er milt, sunnanandvari, er algerlega óþolandi. Nokkur vindstig að sunnan eða suðaustan koma í veg fyrir að hægt sé að lenda á Ísafjarðarftugvelli.
Ég vil sem sagt undirstrika stuðning minn við þessa þáltill. og vænti þess, að flm. séu hlynntir því að rýmka svið hennar.