19.03.1980
Neðri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)
45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Ég held að það heyri til undantekninga að í hv. Nd. sé verið að ræða jafnmikið ágreiningsmál og það frv. er, sem hér er á dagskrá, og á sama tíma sitji fjvn. að störfum með stórum hluta þm. Ég held að þetta sé mjög óvenjulegt og sýni með hvaða hætti vinnubrögðin eru hér á Alþ. í dag.
Hæstv. fjmrh. lagði á það mikla og þunga áherslu við 1. umr. fjárl., að afgreiðsla fjárl. gæti farið fram fyrir páska. Það hefur ekki staðið á stjórnarandstöðunni í þeim efnum og er jafnvel farið að ræða um hvenær 2. umr. fari fram. En til þess að hún geti farið fram á ákveðnum degi í næstu viku og svo 3. umr. fyrir páska verður fjvn. að fá tækifæri til að starfa. Á sama tíma kemur hæstv. félmrh. og óskar eftir að það frv., sem hér er til umr., verði keyrt áfram með þeim mikla hraða sem mér sýnist að hér eigi að vera, svo miklum hraða að forseti d. má ekki vera að því að sitja hér og stjórna fundi, heldur situr á fjvn.-fundi að störfum. Þetta eru vinnubrögð sem ég held að séu einsdæmi. Ég skil mjög vel forseta, þ.e. þann þm. sem situr í forsetastól nú. Hann er varaforseti. Honum eru fengin og gefin fyrirmæli af þeim manni sem er starfandi aðalforseti í dag og má ekki vera að því að sitja hér fundi vegna þess að hann er á nefndarfundum í þinginu. Ég skil mjög vel að hann láti fundinn ganga fram. En ég held að hann sjái eins o við hinir að slík vinnubrögð eru Alþingi til vansæmdar. Ég vil því mega mælast til þess við forseta, að hann geri örstutt hlé á þessum fundi og ráðgist við þann forseta sem er aðalforseti þd. núna, ef hann má þá á annað borð vera að því að koma í þinghúsið og ræða við varaforseta sinn og þá þm. sem sitja í þeirri d. sem hann gegnir forsetastörfum í.