19.03.1980
Neðri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1279 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)
45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég harma að sjálfsögðu hver afdrif þessa máls ætla að verða, um leið og ég lýsi undrun minni yfir því, að hæstv. landbrh. skuli misnota svo þolinmæði forseta að hefja almennar umr. undir dagskrárliðnum þingsköp, eins og hann gerði áðan, algerlega að ástæðulausu, að því er mér fannst. Ég vil um leið láta í ljós — ég vil segja hryggð mína yfir því, að þessi hæstv. ráðh., sem bæði á fundum og í opinberum fjölmiðlum hefur hvað eftir annað látið í ljós einlægan vilja sinn til þess að ná megi sættum og betra samkomulagi innan Sjálfstfl. og innan þingflokks hans, kveðst hvað eftir annað hafa rétt fram sáttarhönd sína til þess að svo mætti verða, — hann skuli nú standa hér upp og reyna að gera lítið úr þingflokkssamþykkt okkar í dag. Hafði ég satt að segja vænst þess, að hann mundi standa á bak við það að við fengjum þessari umr. frestað í svo sem tvo daga — Það er ekki beðið um mikið — þangað til tekjuskattstigarnir verða lagðir hér fram í frv.-formi. En hann verður náttúrlega sjálfur að ráða sínum sáttavilja, og ég hlýt að taka viðbrögð hans hér í ræðustólnum rétt eins og þau eru sögð.
Ég vil jafnframt láta þess getið, úr því að þessi umr. um þingsköp hófst, og taka undir það sem hv. 1. þm. Reykn. sagði, um leið og ég vek athygli forseta þingsins á því, að ég lagði fsp. fyrir hæstv. fjmrh. sem mjög snerta það mál sem hér er til umr., en hann er nú horfinn á braut úr húsinu án þess að svara þessum fsp.
Þegar allt þetta er nú lagt saman: tilmæli tveggja þingflokka, bæði Alþfl. og sjálfstfl., fundur fjvn. og eins hitt, að fjmrh. skuli synja um sjálfsagðar upplýsingar, sem spurt er um í umr. um málið, þá finnst mér það ganga furðu næst, að ekki skuli verða orðið við þeirri beiðni að þessari umr. sé frestað. Um leið tek ég undir það sem hv. 1. þm. Vestf. sagði, að við skiljum það svo sem að 2. varaforseti skuli ekki vilja breyta fyrri úrskurði, en ég vona að hæstv. félmrh. sjái sóma sinn í því að verða við þessari beiðni.