19.03.1980
Neðri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (1264)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Albert Guðmundason:

Herra forseti. Ég hef ekki lagt það í vana minn að vera langorður þegar ég hef kvatt mér hljóðs hér á hv. Alþ., en hv. 9. þm. Reykv. beindi áðan til mín spurningum og ég vil svara þeim.

Líklega kvaddi hann mig hér upp í ræðustól, eins og hann sagði sjálfur, vegna þess að hann hefur saknað þess að heyra ekki nógu oft til mín, en hann tók fram að ég skipti um skoðun oftar en hinir skiptu um buxur nú orðið. Ég er nú þekktur fyrir annað, svo að ég vona að það sé ekki rétt. Ég er ekki hissa á því, að hv. þm. hafi ekki hingað til skilið mig, vegna þess að ég hef lagt það í vana minn að taka afstöðu til manna og mála af eigin dómgreind eftir að hafa kynnt mér málin hverju sinni og án ótta við afleiðingarnar, og það er kannske það í mínu fari sem hv. 9. þm. Reykv. og kannske aðrir þm. eiga hvað erfiðast með að skilja.

Ég vil svara spurningu hv. 9. þm. Reykv., ef ég hef heyrt hana rétt, vegna þess að ég var að ganga í salinn þegar hann hafði borið fram þá spurningu. Ég giska á að spurningin hafi verið um það, hvort ég styðji frestunar­beiðni þingflokks sjálfstæðismanna í þessu máli. Ef það er rétt skilið hjá mér, þá er svar mitt já.