19.03.1980
Neðri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (1268)

111. mál, lántaka Framleiðsluráðs landbúnaðarins

Frsm. minni hl. (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Eins og fram kom hjá hv. formanni fjh.- og viðskn. og frsm. meiri hl., klofnaði nefndin í afstöðunni til þessa máls og á þskj. 208 er nál. frá minni hl. nefndarinnar og á þskj. 209 brtt. að þessu máli lútandi.

Það er út af fyrir sig rétt hjá hv. þm. Halldóri Ás­grímssyni, að um þetta mál hefur verið mikið fjallað. En þrátt fyrir það hefði auðvitað verið full ástæða til þess að ræða þetta mál allítarlega, því hér er auðvitað um stór­mál að ræða. Ég skal þó ekki gera það í löngu máli, en áður en ég kem að nál. og brtt. langar mig í stuttu máli að fara svona almennum orðum um landbúnaðarmálin og kannske eitthvað af þeim umr. sem um þau hafa orðið nú upp á síðkastið.

Ég held að þeirri skoðun vaxi fylgi, ekki síst innan bændastéttarinnar, að röng stefna hafi verið höfð að því er varðar landbúnaðarmálin, stefna sem hefur leitt til slíkra ógangna, að vart verður séð hvernig komist verður út úr þeim vandamálum sem nú blasa við.

Það er hins vegar mjög misjafnt hverju menn kenna um þessa röngu stefnu. Því hefur verið haldið fram af mörgum, að Alþfl. og forustumenn hans væru sérstakir andstæðingar og óvinir bændastéttarinnar í landinu og þeir væru í raun og veru sá pólitíski aðili, sem allt hefði á hornum sér gagnvart þeirri stefnu sem fylgt hefur verið.

Það er skoðun mín að þau vandamál, sem upp eru komin varðandi landbúnaðinn, séu ekki bændum að kenna. Þau eru fyrst og fremst þeim pólitísku öflum í landinu að kenna, sem ráðið hafa ferðinni í þessum efnum á undanförnum árum og áratugum, og þá jafnframt ýmsum forustumönnum bændastéttarinnar í landinu.

Mér sýnist að þessi stefna sé langt komin að reyra slíka fjötra um bændastéttina að vart verði séð hvernig úr verður leyst. Ég vil a.m.k. alfarið vísa því á bug, það er mín skoðun, að sú stefnubreyting, sem Alþfl. hefur talað fyrir í málum landbúnaðarins, sé óvinveitt bændum í landinu og þá auðvitað síður en svo óvinveitt þjóðar­heildinni.

Ég held hins vegar að skynsamlegt væri að taka það upp, sem fram kom hér í umr., að ég held í síðustu viku, að menn töluðu af meiri gætni og þá báðir aðilar eða allir sem um þessi mál fjalla. En það hefur heyrst hér á Alþ. a.m.k. ein rödd, kannske fleiri — ég heyrði eina slíka rödd hér í umr. s.l. miðvikudag, sem ég tel að sé ekki til þess fallin að bæta stefnuna í landbúnaðarmálum. Á ég þá við hv. þm. Ólaf Þórðarson, sem talaði s.l. miðvikudag við 1. umr. þessa máls. Ég vænti þess, að sá hv. þm. vilji bænda­stéttinni og þjóðfélaginu í heild vel. En ég held að hann sé eitt dæmi þess, að það kann aldrei góðri lukku að stýra að sjálfskipaðir bændavinir eða talsmenn, fulltrúar bændastéttarinnar í landinu tali með þeim hætti sem þessi hv. þm. gerði. Ég held að það sé ekki líklegt til þess að afla bændastéttinni neinna sérstakra vinsælda eða þeirri stefnu í landbúnaðarmálum sem við hefur verið höfð á undanförnum árum.

Ég held að menn ættu að breyta til í þessu og tala um þessi mál ofurlítið meira yfirvegað en gert hefur verið. En auðvitað verða menn að segja hug sinn í þessu sem og öðru.

Mér fannst t.d. athyglisvert hjá þessum hv. þm. að hann byrjaði á því að tala um að hann vonaðist svo sannarlega eftir því, að stefna Alþfl. í landbúnaðarmál­um næði aldrei til Vestfjarða. Þessu til rökstuðnings bætti hann við að þeirrar stefnu mætti sjá merki á Vest­fjörðum. Menn sjá hversu mjög svo óskynsamlega — vægast sagt — er þarna að orði komist og að mínu viti hálfgert rugl, því auðvitað er augljóst mál, að hafi ein­hver stefna aldrei komið til ákveðins landshluta, þá er ógjörlegt að sjá merki hennar í þeim sama landshluta. Þetta sýnir kannske, þó lítið dæmi sé, hvað þessir sjálf­skipuðu málsvarar og fulltrúar bænda eru í raun og veru fjarri því að tala um hlutina eins og þeir í raun og veru eru. Væri ég bóndi, þá vildi ég a.m.k. ekki eiga mína hagsmuni undir slíkum rökstuðningi og málsvara sem hér er um rætt. Ég tel að það kunni ekki góðri lukku að stýra og það sé fremur til þess að spilla fyrir, að um þessi mál sé rætt á eðlilegan hátt, heldur en að það þjóni hagsmunum bændastéttarinnar i þessum málum.

Ég sagði áðan að ég a.m.k. teldi að sú stefna, sem fylgt hefur verið í þessum málum á undanförnum árum og áratugum, væri í höfuðatriðum að kenna þeim stjórn­völdum sem ráðið hafa i landinu á hverjum tíma. Og að því er þessa stefnu varðar og málefni bænda er augljóst mál og að því hefur verið komið hér oft áður, að höfuð­ábyrgð á þessari stefnumörkun bera auðvitað Sjálfstfl. og Framsfl. Um það verður ekki deilt.

Alþfl. hefur um langt árabil talað fyrir breyttri stefnu í þessum málum. Hann hefur verið sakaður um að vera svarinn óvinur bændastéttarinnar með því að tala fyrir breyttum viðhorfum að því er varðar stefnu í landbúnað­armálum. Nú skal ég ekkert fullyrða hér að sú breytta stefna, sem talað hefur verið fyrir af hálfu Alþfl., sé hin eina sanna, rétta og fullkomnasta sem hægt væri að hugsa sér. En ég fullyrði að þær hugmyndir, sem þar hafa komið fram, eru a.m.k. þess virði að þær verði gaumgæfilega skoðaðar til þess að komast út úr þeim vítahring sem þessi mál eru komin í.

Auðvitað er það svo innan bændastéttarinnar eins og annarra stétta, að einstaklingar innan þeirrar stéttar eru misjafnlega settir að því er varðar aðstæður og kjör. Mér hefur oft orðið hugsað til þess á undanförnum árum — og það ætti að vera íhugunarefni þeirra einstaklinga sem telja sig hvað mesta málsvara og vini bændastéttarinnar í landinu — að mér sýnist að mjög stór hluti bændastétt­arinnar sé á svipuðu stigi í dag og verkamenn og sjómenn voru um það leyti eða kannske áður en stéttarfélög í landinu urðu til. Á þeim tíma voru verkamenn og sjó­menn, eins og ég hygg að flestir hv. alþm. viti, í kladda­úttekt hjá kaupmannavaldinu í landinu. Ég sé ekki betur en að nokkuð stór hluti bændastéttarinnar, ég skal ekki segja hversu stór, en nokkuð stór hluti bænda­stéttarinnar sé nú í kladdaúttekt hjá öðru valdi í landinu, og það er það sem menn almennt kalla SÍS-valdið. Þar er um ræða kladdaúttekt eins og var hjá verkamönnum og sjómönnum fyrir 40–50 árum. Ég hygg að vert væri fyrir fulltrúa bændastéttarinnar að íhuga það, hvernig í ósköpunum geti á því staðið, að núna, árið 1980, sé svo og svo stór hluti bændastéttarinnar á því stigi sem verkamenn og sjómenn voru fyrir 40 – 50 árum að þessu leyti.

Það er auðvitað furðulegt, að bændastéttin skuli búa við það að fá ekki nema hluta af launum sínum greiddan með eðlilegum hætti. Stór hluti bændastéttarinnar þarf að bíða svo og svo lengi eftir því að fá greiðslu á launum sínum, allt upp í 11/2–2 ár, að mér skilst. Væri það nú ekki verðugt verkefni fyrir fulltrúa bændastéttarinnar í landinu að beita sér fyrir því og kannske byrja á því að rjúfa þann vítahring, til þess að bændur gætu búið við sambærileg kjör að þessu leyti og aðrar stéttir? Eða er það kannske líka að áliti þessara fulltrúa bændastéttar­innar eitt af því sem ekki má breyta? Ég vildi a.m.k. ekki búa við slík kjör. En þetta er bara eitt lítið dæmi um það, hvernig þessum málum er farið, og það má raunar furðulegt teljast, að breyting á þessu skuli ekki hafa átt sér stað. Hverju þar er um að kenna skal ég ekkert um fullyrða, en eitt er víst, að það væri ekki lítil bót til handa bændum ef þarna væri breytt um og þeir nytu þess að búa við sambærileg kjör í þessum efnum og aðrir landsmenn búa við.

Ég held að það sé brýn nauðsyn á því — og ég hygg raunar, eða a.m.k. vona að það komi að því fyrr en síðar — að stefnubreyting eigi sér stað í landbúnaðarmálum. Það er ekki bara nauðsynlegt fyrir bændastéttina sem slíka, það er þjóðarnauðsyn að hér verði breytt um. Með því er ekki verið að tala um að breyta á þann veg að rýra kjör bændastéttarinnar, síður en svo. Það er kannske miklu frekar að skapa viðunandi skilyrði til þess að bændur geti almennt lifað sambærilegu lífi og aðrar stéttir í landinu. Það er auðvitað hrein fásinna að ætlast til þess, að bændur búi um ófyrirsjáanlega framtíð að þessu leytinu til við óbreyttar aðstæður. Og það er öruggt mál, að með skynsamlegum breytingum í þessum efnum er hægt að bæta svo um, að bæði verði til hagsbóta fyrir bændastéttina og þjóðarheildina, og það er nauðsynlegt. Ég held að ef menn hugleiða þessi mál út frá þeim sjónarhóli, að þjóðin er komin í ógöngur í þessu efni, þá hljóti menn að sannfærast um að hér verður að leita ráða sem duga til þess að breyta núverandi ástandi í þessum málum.

Eins og ég sagði áðan, þá er á þskj. 208 nál. frá minni hl. fjh.- og viðskn. Í áframhaldi af því, sem ég hef nú sagt, ætla ég að snúa mér að því nál. En, þar segir svo:

„Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir að ríkissjóður ábyrgist allt að 3 milljarða kr. lántöku Fram­leiðsluráðs landbúnaðarins, jafnframt því sem ríkissjóð­ur annist afborganir, vexti og kostnað allan af láni þessu, að því leyti sem aðrir bjóðast ekki til að taka á sig greiðslu, er álíta verður harla ólíklegan kost. Þannig er um það að ræða, að ríkissjóður lýsi því yfir fyrir fram og afli sér lagaheimildar til þess að standa undir greiðslu á láni, sem aðili úti í bæ tekur með ríkisábyrgð.

Þessi aðferð á sér tæpast fordæmi og brýtur að líkind­um í bága við lög nr. 52/1966 um ríkisreikninga eða verður a.m.k. að teljast mjög vafasöm í því sambandi, auk þess sem hér er farið inn á stórvarasama braut.

Ákvæði 2. gr. frv. um að Byggðasjóður greiði allt að helmingi lánsins breytir hér engu um, enda getur Byggðasjóður reyndar samkv. því valið að greiða ekkert af láninu, þar eð engin neðri mörk eru tilgreind á greiðslu af hans hálfu.

Frv., eins og það er á þskj. 197, má því ekki standa óbreytt.

Sú aðferð er hins vegar að ýmsu leyti rétt, að Fram­leiðsluráð landbúnaðarins geti tekið lán til að standa straum af sveiflum í landbúnaðarframleiðslu. Þá er á hinn bóginn sjálfsagt að Framleiðsluráð standi skil á afborgunum og vöxtum af því láni eins og aðrir lántak­endur gera. Af þessum sökum er rétt að fella niður 2. gr. frv. og breyta jafnframt lögunum um Framleiðsluráð landbúnaðarins þannig að það geti tekið lán af þessu tagi og risið undir þeim.

Nú er ljóst að sú offramleiðsla, sem ríkt hefur í land­búnaði, hefur leitt til öngþveitis og ófarnaðar. Þess vegna er nauðsynlegt að breyta þegar um stefnu í þessum efn­um og miða framleiðslu við innanlandsþarfir, en hætta útflutningi á óarðbærum landbúnaðarafurðum. Þjóðin verður ekki skattpínd öllu lengur til þess að standa undir niðurgreiðslu á mat ofan í útlendinga, og bændur hafa ekki geð i sér til að gerast eilífir og sívaxandi ölmusu­menn skattborgaranna og stefna þannig málum sínum í stórhættu. Fjárhagslega fyrirgreiðslu nú til úrlausnar á stundarvanda á því að tengja nýrri stefnumörkun í land­búnaðarmálum, þjóðinni til heilla og lífskjarabóta, jafn­framt því að tryggja frambúðaröryggi og sjálfstæði bænda. Útgjöld á líðandi stund eiga því að vera aðgöngumiði að framtíðinni, en ekki skilyrðislaus ávísanaútskrift á skattþegnana, eins og frv. gerir ráð fyrir. Af þessum sökum er nauðsynlegt að því frv., sem hér liggur fyrir, verði breytt með tilliti til heillavænlegrar frambúðarstefnu.

Alþfl. hefur um alllangt árabil talað fyrir stefnubreyt­ingu í þessum efnum og varað við því, í hvert óefni væri komið. Nýverið hefur þessi stefnumörkun m.a. birst í tillögum flokksins um niðurtalningu útflutningsbóta, sbr. tillögur í stjórnarmyndunartilraunum formanns flokks­ins, Benedikts Gröndals. Sú braut mun gæfusamleg fyrir bændur þessa lands og þjóðina í heild.

Samkv. frv. ríkisstj. er gert ráð fyrir allt að 3 milljarða kr. lánafyrirgreiðslu. Í svonefndri harðindanefnd mælti meiri hl. nefndarinnar með því, að 2/3 hlutum svokallaðs útflutningsvanda, sem hér um ræðir, yrði mætt með opinberri aðstoð af þessu tagi, en minni hl. vildi mæta honum að 1/3 hluta. Eðlilegt má telja að fara hér bil beggja og mæta vandanum, sem nú er áætlaður 3.5 mill­jarðar kr., að hálfu eða með 1 milljarði 750 millj. kr. Deiling byrðanna er auðvitað eðlileg og má í því sam­bandi benda á að sjómenn og útgerðarmenn láta sér lynda skerðingu á afla sínum og aflatekjum á líðandi stund frá því sem þeir bæru úr býtum, ef engar aflatak­markanir væru fyrir hendi, í því skyni að tryggja framtíð­arhag sinn og afkomuöryggi. Hið sama á auðvitað að gilda um aðrar stéttir, þ. á m. bændur.

Til þess að greiða úr því að lántaka á vegum Fram­leiðsluráðsins geti verið með eðlilegum hætti og stangist á engan hátt við lögin í landinu, jafnframt því að tryggja stefnubreytingu í stjórn landbúnaðarmála og skynsam­lega dreifingu byrða af stundarvanda, leggur minni hl. nefndarinnar fram brtt. á sérstöku þskj. við fyrirliggjandi frv.

Tillögur þessar fela í sér að í stað 2. gr. frv, komi breyting á framleiðsluráðslögunum, sem nái þessum markmiðum. Meginatriði breytinganna á framleiðslu­ráðslögunum eru þessi:

1) Í stað ákvæða í gildandi lögum um hámark útflutn­ingsbóta komi ákvæði um að ríkissjóður greiði Fram­leiðsluráði landbúnaðarins tilteknar fjárhæðir næstu fjögur árin í formi framleiðslu- og framfarastyrks, sem miðist við 10% heildarverðmæti landbúnaðarfram­leiðslunnar fyrstu tvö árin þar á eftir.

Hér er að nokkru leyti farið inn á þá stefnumörkun Framsfl. sem hann talar um í sambandi við verðbólgu­vandann, niðurtalningu verðbólgunnar. Hér er talað um niðurtalningu útflutningsbótanna.

2) Þessum framleiðslu- og framfarastyrk skal Fram­leiðsluráðið verja til eftirfarandi atriða:

a) útflutningsbóta samkv. einstökum reglum, sbr. 3;

b) til þess að standa undir lánum sem ráðið kann að taka til afkomujöfnunar, sbr. fyrirliggjandi frv.;

c) til þess að greiða fyrir því að bændur, sem þess æskja, geti hætt búskap;

d) til þess að styrkja nýjar arðvænlegar búgreinar, svo sem í ylrækt, garðrækt, fiskeldi og loðdýrarækt.

3) Við ákvörðun útflutningsbóta skal gilda eftirfar­andi:

a) Hámark heildarupphæðar í þessu skyni sé 9% af heildarframleiðsluverðmæti næstu tvö árin, en þar á eftir 8% og síðan 7% af heildarframleiðslu af sauðfjár- og nautgripaafurðum.

b) Útflutningsbætur fari aldrei fram úr 100% af út­flutningsverðmæti af hverri einstakri sölu.

Með þessum hætti verður Framleiðsluráðið sjálfstæð­ur stjórnunaraðili innan þeirra marka sem lögin setja og fær svigrúm til að ryðja braut nýrri stefnumörkun, jafn­framt því að geta staðið undir greiðslum af lánum eins og fyrirliggjandi frv. gerir ráð fyrir.

Þá er í brtt. gert ráð fyrir að stundarvanda verði að hálfu mætt af bændum, en að hálfu með lánsfyrirgreiðslu. Samkv. því er lántökuábyrgðin miðuð við 1 milljarð 750 millj. kr., en sá umframframleiðsluvandi, sem hér um ræðir, er talinn nema 3.5 milljörðum kr. fram yfir gild­andi útflutningsbótahámark.

Íslenskur landbúnaður er í ógöngum. Öngþveiti birtist í því, að íslenskir bændur slíta sér út fyrir aldur fram við að framleiða vörur sem ekki eru seljanlegar nema til komi stórkostleg skattlagning fólksins í landinu til að greiða meðlag með útflutningi þeirra. Í heild er afleiðing landbúnaðarstefnunnar: útslitnir bændur, ofnýtt gróð­urlendi, skattpíndur almúgi og þjóðhagsleg lífskjara­skerðing.

Þrátt fyrir mikla umr. um þennan vanda er sífellt troðin sama taktfasta, venjubundna hringrásin, og fyrir­liggjandi frv. er enn eitt skrefið í hringrás vanans og uppgjafarinnar, þar sem raunhæfum aðgerðum er skotið á frest, en stundleg friðþæging keypt á kostnað skatt­borgaranna.

Í þeim brtt., sem minni hl. leggur hér fram, er lagt til að þessi vítahringur vitleysunnar verði rofinn, bændur fái sjálfstæði um ákvörðun sinna mála innan stefnumark­andi ramma og skattborgurunum verði tryggt, að þeim sé ekki ætlað að standa undir óarðbærri framleiðslu til frambúðar. Útgjöld núna, miðað við skynsamlega dreifingu byrðanna milli bænda og fólksins í landinu, eru skoðuð sem aðgangseyrir að frambúðarstefnu á skyn­samlegum grunni.

Minni hl. leggur því til að frv. verði samþ. með þeim breyt. sem birtast á þskj. 209.“

Í áframhaldi af þessu er rétt að hlaupa hér yfir þessar brtt., sem til er vitnað í nál.

„1) Í 1. gr. komi: 1 750 millj. kr. — í stað „3000 millj. kr.“

2) 2, gr. frv. orðist svo:

12. gr. laga nr. 101 frá 8. des. 1966, um Framleiðslu­ráð landbúnaðarins, verðskráningu verðmiðlun og sölu á landbúnaðarafurðum o.fl., orðist svo:

Óheimilt er að bæta upp söluverð landbúnaðarvara á erlendum markaði með því að hækka söluverð þeirra innanlands.

Til þess að treysta afkomu bænda og stuðla að fram­förum í landbúnaði í samræmi við þjóðhagsleg mark­mið og markaðsaðstæður skal ríkissjóður leggja Framleiðsluráði landbúnaðarins til fé á hverju ári næstu fjögur ár, sem reiknast með eftirgreindum hætti, sbr. næstu mgr., og sé ráðstafað af Framleiðsluráði landbún­aðarins eins og segir í 4. mgr. þessarar greinar.

Ríkissjóður skal greiða Framleiðsluráði landbúnað­arins framleiðslu- og framfarastyrk á næstu fjórum árum sem hér segir:

Fyrir framleiðsluárin 1979–80 og 1980–81: 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslu viðkomandi verðlagsár.

Fyrir framleiðsluárið 1981–82: 9% af heildarverð­mæti sauðfjárafurða og 9% af heildarverðmæti nautgripaafurða.

Fyrir framleiðsluárið 1982–83: 8% af heildarverð­mæti sauðfjárafurða og 8% af heildarverðmæti nautgripaafurða.

Með heildarverðmæti er átt við það sem framleiðend­ur fá fyrir afurðir sínar. Hagstofa Íslands reiknar fjárhæð þá er ber að greiða Framleiðsluráðinu vegna ákvæða 2. mgr, þessarar greinar.

Framleiðsluráð landbúnaðarins getur ráðstafað þess­um framleiðslu- og framfarastyrk til eftirgreindra verk­efna:

a) til þess að greiða útflutningsbætur á útfluttar land­búnaðarafurðir samkv. því sem segir í næstu mgr.;

b) til þess að standa undir lánum til afkomujöfnunar sem ráðið kann að taka;

c) til þess að greiða fyrir því að bændur geti hætt búskap;

d) til þess að styrkja nýjar arðvænlegar búgreinar, svo sem í ylrækt, garðrækt, fiskeldi og loðdýrarækt.

Við ákvörðun útflutningsbóta, sbr. staflið a í næstu mgr. hér á undan, skal gilda eftirfarandi:

a) Heildarupphæð þeirra má ekki nema meiru en 91/10 hlutum af framleiðslu- og framfarastyrkjum á framleiðsluárunum 1979–80 og 1980–81, 8/9 hlut­um á framleiðsluárinu 1981–82 og 7/8 hlutum á fram­leiðsluárinu 1982–83.

b) Útflutningsbætur ákveðast sem hlutfall af útflutn­ingsverði og mega aldrei fara yfir 100% af útflutnings­verði í hverri einstakri sölu.

Ríkisendurskoðun skal annast eftirlit með ráðstöfun Framleiðsluráðs landbúnaðarins á fjárframlögum úr ríkissjóði samkv. lögun þessum.

3) Við fyrirsögn frv. bætist: og um breyting á lögum nr. 1018. des. 1966, um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarafurð­um o.fl., með síðari breytingum.“

Þetta eru þær brtt. sem minni hl. flytur við þessa umr. Og að þeim brtt. samþykktum leggur minni hl. til að frv. verði samþ.