20.03.1980
Neðri deild: 47. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)
80. mál, Lífeyrsjóður sjómanna
Frsm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Heilbr.- og trn. hv. Nd. fékk mál þetta til umfjöllunar. Til n. barst erindi frá Sjómannafélagi Reykjavíkur með ábendingu um nokkrar nauðsynlegar breytingar sem þyrftu að verða á lögunum um sjóð þennan. Nefndin taldi sér þó ekki fært eða ástæðu til að taka upp nema eina þeirra, vegna þess að hér er um samkomulagsmál að ræða í stjórn sjóðsins. Eins og kunnugt er eru það margir aðilar sem aðild eiga að þeirri stjórn, en sjóðurinn orðinn til vegna samninga milli aðila á vinnumarkaðinum og sjóðsstjórnin skipuð fulltrúum þeirra.
Sú brtt., sem ég hafði lýst við 1. umr. málsins og reyndar er ein af þeim sem Sjómannafélag Reykjavíkur benti á, var send til umsagnar Lífeyrissjóði sjómanna, sem hefur afgreiðslu sína hjá Tryggingastofnun ríkisins, sem aftur fékk tryggingafræðing sjóðsins til þess að líta á hana. Hefur borist svar frá stjórn sjóðsins sem mælir eindregið með að þessi breyting verði gerð á frv., en breytingin er á 14. gr. laganna og varðar makalífeyri. Er lagt til, eins og á var bent, að þetta atriði komi inn í lög þessa lífeyrissjóðs. Þetta er sambærilegt atriði við það sem er í reglugerðum og lögum sjóða sem starfandi eru, t.d. hinna almennu lífeyrissjóða.
Þetta varðar makalífeyrinn. Breytingin, sem n. er sammála um að flytja samkv. og í samræmi við ábendingu tryggingafræðingsins, er á þessa leið, með leyfi forseta:
„Nú lætur sjóðsfélagi ekki eftir sig maka, en einstæð móðir hans, ógift systir eða sambýliskona hefur sannanlega annast heimili hans um árabil, þó ekki skemur en fimm ár fyrir andlát hans, og er þá stjórn sjóðsins heimilt að greiða hlutaðeigandi makalífeyri svo sem um ekkju væri að ræða. Á sama hátt er sjóðsstjórn heimilt að greiða sambýlismanni lífeyri í samræmi við ákvæði 3. og 4. mgr.“
Sú breyting er gerð frá ákvæðinu í lögum hinna almennu lífeyrissjóða, að hér er sett inn ákvæði um að það verði að hafa liðið fimm ár áður en þetta ákvæði geti tekið gildi.
Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, að fara aftur yfir sjálft frv, eða einstakar greinar þess. Það var skýrt mjög ítarlega við 1. umr. málsins. En allir nm. í heilbr.og trn. eru sammála um að mæla með samþykkt þess. Og það er von þeirra, sem að málinu standa, og reyndar þeirra, sem njóta eiga, að málið nái fljótt fram að ganga, en gert er ráð fyrir því í 2. gr. frv. að lögin taki gildi frá og með síðustu áramótum. Mun það verða mörgum til hagsbóta þegar þessi lög hafa tekið gildi.