12.12.1979
Sameinað þing: 1. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (13)

Kosning forseta og skrifara

Aldursforseti (Gunnar Thoroddsen):

Í þingsköpum segir svo: „Rétt kjörinn forseti er sá, er hefur meira en helming greiddra atkv., þeirra er á fundi eru. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð við fyrstu kosningu, skal kosið af nýju óbundnum kosningum.“ Þar sem enginn hefur hlotið tilskilinn atkvæðafjölda fer kosning fram að nýju.