24.03.1980
Neðri deild: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (1309)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Það mun hafa verið í lok febrúarmánaðar sem ég var spurður um álit mitt á vanda frystihúsanna, og ég mun hafa látið orð falla á þá lund, að sérstök úrræði vegna vanda frysti­húsanna væru ekki eins bráðaðkallandi og stundum áður vegna afkomu frystihúsanna undanfarin ár. Það, sem við var átt, var auðvitað að alloft hafa frystihúsin og fisk­vinnslan lent í miklum vanda, t.d. vegna aflabrests, verðfalls á afurðum okkar erlendis eða af öðrum ástæð­um, og þá hefur slíkt stundum dunið á eftir erfið ár fyrir fiskvinnsluna. Það, sem ég átti við, var að sá vandi, sem nú væri upp kominn, væri ekki eins erfiður eða úrræði jafnbráðaðkallandi af því að frystihúsin hefðu haft þokkalega afkomu undanfarin ár. Að vísu létu sumir talsmenn fiskvinnslunnar í ljós undrun yfir þessum um­mælum, eða kannske réttara sagt, tilteknum blaða­mönnum tókst að toga út úr þeim slík undrunarummæli. En mér þykir vænt um að hv. 1. þm. Vestf., Matthías Bjarnason, hefur nú algerlega staðfest þessa skoðun mína, því að hann komst svo að orði í ræðu sinni áðan alveg réttilega. Hann sagði: Það er satt og rétt, að öll vel rekin frystihús hafa haft góða afkomu um nokkurt bil. - Þetta er hverju orði sannara. Hitt er svo jafnrétt, sem hann sagði, að frystihúsin hafa ekki safnað peningum í sjóði, heldur að sjálfsögðu notað sína góðu afkomu til að bæta rekstur sinn, auka hagræðingu, kaupa tæki, vélar, byggja upp hús o.s.frv.

Þótt hagnaði vel rekinna húsa hafi verið varið á und­anförnum árum í því skyni að búa sem best í haginn kemur það auðvitað allt að góðu gagni. Vitanlega þarf að halda því starfi áfram að reyna að bæta sem mest afköst, vinnubrögð eða framleiðni fiskvinnslunnar. Það er, eins og hv. þm. Pétur Sigurðsson gat um, ekki nýtt mál. Þetta hefur verið í fullum gangi annað kastið, með mismunandi miklum hraða og árangri, og mörg frystihúsanna hafa unnið afrek í þessu efni. Þessu verður að sjálfsögðu að halda áfram. Það er eitt af stefnuskráratriðum núv. ríkisstj. að greiða fyrir slíkum aðgerðum, og þeirra er þörf, ekki síst hjá þeim húsum sem lakasta hafa afkomu, því að það fer oft saman — eða oftast — að þau húsin, sem lakasta hafa afkomu, hafa minnsta möguleika, minnst bolmagn til að hagræða og auka framleiðni hjá sér. Það hefur m.a. komið til orða að sjóðir, og þá ekki síst Byggðasjóður, kæmu hér í auknum mæli til aðstoðar. Að undirbúningi þessarar áframhaldandi og auknu hagræðingar og aukinnar framleiðni er nú unnið hjá ríkisstj.

Þegar ríkisstj. var mynduð virðast sumir telja nú að ríkisstj. hefði átt að vera ljóst um leið að mjög alverlegur vandi væri á höndum fyrir fiskvinnsluna eða sérstaklega frystiiðnaðinn. Nú var það að vísu þannig, að þegar ríkisstj. var mynduð og tók til starfa, 8. febr., hafði það gerst um það bil tveim vikum áður að Verðlagsráð hafði ákveðið 11% hækkun á fiskverði. Þessi hækkun var ákveðin með samkomulagi allra aðila, m.ö.o. með sam­þykki frystihúsanna. Það lá því á þessum tíma ekki alveg í augum uppi, að eftir að frystihúsin sjálf höfðu samið um eða fallist á að greiða seinni hluta janúarmánaðar 11% hærra fiskverð en áður væri svo alvarlegur og brýnn vandi á höndum eins og nú er talið. En nokkru eftir að ríkisstj. var mynduð, ég ætla að það hafi verið 22. febr., ef ég man rétt, komu fulltrúar frystihúsanna á fund full­trúa ríkisstj. og gerðu grein fyrir þeim vanda sem væri upp kominn. Sú greinargerð þeirra var ákaflega ítarleg og var rædd þar mjög rækilega.

Þegar fulltrúar frystiiðnaðarins voru spurðir hvaða ráð þeir hefðu að gefa eða á hvaða úrræði þeir vildu benda til að ráða bót á þessum vanda var það breyting á genginu sem þeim varð fyrst að orði. Nú er það þannig með gengið, að í stefnuskrá núv. ríkisstj. segir m.a., að stefn­an sé að beita aðhaldi í gengismálum og reyna að treysta gengi gjaldmiðilsins. Vitanlega verður það að vera eitt af okkar meginsjónarmiðum í efnahagsmálunum að reyna að treysta gjaldmiðilinn og beita aðhaldi í gengismálum. Ekki síst þegar það er eitt aðalstefnumál ríkisstj. að veita verðbólgunni viðnám og reyna að vinna að hjöðnun hennar er auðvitað ljóst að sérhver gengisfelling vinnur þar á móti. Talið er að fyrir hver 3 prósentustig, sem gengi krónunnar lækkar, hækki vísitalan um eitt stig þegar áhrifin eru komin fram, sem eru nokkuð fljótt yfirleitt.

Áhrif gengislækkana, í hvaða formi sem er, hvort það er kallað gengisfelling, gengissig, gengisaðlögun eða hvaða heiti menn vilja nefna, en lækkun á gengi íslensku krónunnar er auðvitað ákaflega mikilvægur þáttur í sambandi við efnahagsmálin og vinnur almennt gegn hinu markmiðinu að draga úr verðbólgu. Um leið er auðvitað ljóst, að hver ríkisstj. á hverjum tíma verður að hafa vakandi auga á því, að aðalframleiðsluatvinnuvegir og ekki síst útflutningsatvinnuvegir þjóðarinnar hafi starfsgrundvöll og geti borið sig, og þá á ég varðandi starfsgrundvöll fyrir útflutningsatvinnuvegina og skrán­ingu gengisins að sjálfsögðu ekki eingöngu við sjávarút­veginn, heldur einnig útflutningsiðnaðinn, sem er mjög vaxandi í landi okkar. Þessi almennu sjónarmið verðum við að sjálfsögðu að hafa í huga.

Þegar fulltrúar fiskvinnslunnar komu á fund ráðh. 22. febr. og fluttu þau uggvænlegu tíðindi, að stórfelldur hallarekstur væri fram undan hjá frystihúsunum, var auð­vitað hlustað á þær upplýsingar með athygli,en um leið ljóst að svona alvarlegt mál þyrfti að kanna mjög vandlega.

Það koma auðvitað upp margar spurningar í þessu efni. Ein var sú sem ég drap á áðan, hvers vegna þessi sami atvinnuvegur hefði sjálfur skömmu áður samið um verulega hækkun á fiskverðinu innanlands.

Annað atriði, sem kom mjög inn í þessa mynd, var sú lækkun sem Coldwater, sem er systur- eða dótturfyr­irtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, hafði um mánaðamótin janúar-febrúar ákveðið á nokkrum fisk­tegundum í Bandaríkjunum, m.a. þorskblokkinni. — Ég nefni þetta hér — ekki vegna þess að ég vilji nokkurn dóm á það mál leggja, heldur vegna þess að þess varð strax vart að um þá verðlækkun þar vestra voru mjög skiptar skoðanir. Það er kunnugt að hvorki hafði verið haft samráð við annan aðalsöluaðilann á frystum fiski þar af Íslendinga hálfu né að því er virðist við ýmsa aðra sem eiga mikilla hagsmuna að gæta á þessum markaði. Og það var einnig bent á að þessi verðlækkun á Banda­ríkjamarkaði hefði gerst um sama leyti og samningar voru að hefjast af okkar hálfu við Sovétríkin um fisksölu þangað. Það er fullyrt af þeim, sem stóðu að þeim samn­ingum, að þessi verðlækkun hafi haft skaðleg áhrif fyrir okkur á þá samninga. Ég tek fram, að ég legg engan dóm á hvort verið hafi réttilega eða ekki réttilega staðið að þessari verðlækkun. Ég skýri aðeins frá þeim upplýsing­um sem bárust okkur úr mörgum áttum.

Hitt er auðvitað ljóst, að ákaflega margvíslegir kostn­aðar- og útgjaldaliðir fyrir frystihúsin hafa aukist mjög verulega á undanförnum mánuðum og misserum, sem auðvitað er afleiðing hinnar geigvænlegu verðbólgu, því að það er nú þannig með atvinnuvegi okkar að verðbólg­an er þeirra versti óvinur.

Öll þessi atriði, sem fulltrúar frystihúsanna báru fram, hafa verið athuguð mjög vandlega af fulltrúum ríkisstj. En ég vænti þess, að menn skilji að ekki var ástæða til þess þegar í stað að grípa til róttækra aðgerða, eins og t.d. þeirra sem talsmenn frystihúsanna orðuðu, nema fyrst væri kannað vandlega hvort allar ástæðurnar, sem fram voru færðar, væru á óyggjandi rökum reistar og hvort aðrar leiðir væru færar, vegna þess að eitt meginsjón­armiðið er að beita aðhaldi í gengismálum.

Nú hefur það ekki komið fram í þessum umr., t.d. af hálfu hv. fyrirspyrjanda sem hóf þessar umr. í dag, hv. 1. þm. Vestf., hvort hann vill benda á einhver sérstök úrræði í þessu sambandi. En það var athyglisvert, að í ræðu hans komu fram ummæli sem virtust draga nokkuð í efa að gengisbreyting eins og sú, sem talsmenn frystihúsanna höfðu nefnt, væri það rétta eða æskilega úrræði. Hv. 1. þm. Vestf. benti réttilega á að ýmis hin góðu áhrif gengis­breytingar fyrir atvinnuvegina kæmu ekki lengur að fullu gagni. Það er vitað að í þessu efni hefur á marga lund orðið breyting á hinum síðari árum eða áratug af mörg­um ástæðum sem ég skal ekki rekja hér.

Ég vildi láta þessi sjónarmið koma fram. Ég vil taka undir það, að mjög væri æskilegt að fiskverð yrði ákveðið sem fyrst. En við skulum þó hafa í huga í sambandi við ákvörðun fiskverðs, sem er samkv. lögum landsins ekki í höndum ríkisstj., heldur Verðlagsráðs, sem sérstök lög gilda um, og geta þess í fyrsta lagi, að þegar fiskverð var ákveðið seinni hluta janúarmánaðar var ákveðið að það skyldi gilda frá 1. jan. til 31. maímánaðar. Það var tíma­bilið sem allir aðilar sömdu um og samþykktu. Hins vegar var svo heimild til uppsagnar fyrir aðila á tímabil­inu. Allir aðilar notuðu sér þá heimild og málið stendur þannig, að samtök sjómanna og Landssamband ísl. út­vegsmanna segja upp vegna þess að þau krefjast hækk­unar á fiskverðinu innanlands um 6.67% og fiskvinnslan segir upp af því að hún krefst lækkunar frá því sem nú er. Hvorugur aðilanna hefur viljað víkja frá sínum sjón­armiðum í meginatriðum og hefur þó formaður Verðlags­ráðs og oddamaðurinn, sem er Jón Sigurðsson hagrann­sóknastjóri, lagt sig mjög fram um að leita að samkomu­lagsleiðum, í fyrsta lagi náttúrlega milli allra aðila eða til vara við einhverja af þessum aðilum. Því miður hefur það ekki tekist enn og málið stendur þannig að sjómenn og útvegsmenn krefjast hækkunar frá því sem er og fisk­vinnslan krefst lækkunar. Hvaða leiðir verða finnanlegar til að leysa þetta vandamál skal ég ekki segja á þessu stigi, en vitanlega hljótum við öll að óska þess, að sem fyrst verði fundin lausn á því.

En til viðbótar því, sem ég sagði almennt um gengis­skráninguna og stefnu ríkisstj. í þeim efnum, — og ég tek undir þau ummæli sem hæstv. viðskrh. hafði um þau efni og þá varfærni sem þar verður að hafa bæði í fram­kvæmdum og tali, — má að sjálfsögðu aldrei missa sjónar á því hlutverki okkar allra að tryggja aðalatvinnuvegum þjóðarinnar traustan starfsgrundvöll.