24.03.1980
Neðri deild: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Eins og síðasti hv. ræðumaður mun ég fylgja því samkomulagi, sem gert hefur verið milli þingflokkanna, og ekki hafa langt mál um þetta frv. að þessu sinni. Engu að síður vil ég eins og hann fylgja eftir spurningu sem hv. 3. þm. Vestf., Sighvatur Björgvinsson, bar fram á fimmtudaginn var og hv. 1. þm. Vestf. hefur raunar ítrekað hér. Það er alveg ótvírætt í 5. gr. laga um stjórn efnahagsmála frá því í apríl 1979, að kveðið er á um samráð við hagsmunaaðila vinnumark­aðarins um meiri háttar efnahags- og kjaraaðgerðir eins og þær sem við hér erum að nefna.

Nú er alveg ljóst, það kom fram í umr. á fimmtudag, að hæstv. félmrh. höfðu orðið á mikil og alvarleg mistök þegar hann hegðaði sér ekki í samræmi við þessi lög. En að lokum hafði meiri hl. þessarar hv. þd. sitt mál fram og umr. var frestað á fimmtudag. Hæstv. ráðh. lét undan, sem er vel. Nú vil ég þess vegna spyrja hæstv. félmrh.: Hefur hann ekki áreiðanlega notað tímann síðan á fimmtudag til að hafa samráð við aðila vinnumarkaðar­ins, eins og skýrt er kveðið á um í lögunum sem við áttum báðir aðild að að samþykkja hér. Ég veit að þessa grein mátum við báðir mikils. Hefur samráð ekki áreiðanlega farið fram síðan þá? Í framhaldi af því: Hver eru við­brögð aðila vinnumarkaðarins við fyrirhugaðri útsvars­hækkun?

Ég treysti því að hæstv. ráðh. svari þessum spurning­um. Ég treysti því auðvitað að svarið sé já, að samráð hafi farið fram, og ég treysti því, að það sé innlegg í þessa umr. hver eru viðbrögð t.d. verkalýðshreyfingarinnar við fyrirhugaðri útsvarshækkun.

Herra forseti. Það er samkomulag á milli þingflokka, að menn lengi ekki mál sitt að þessu sinni. Við það sam­komulag vil ég og við jafnaðarmenn standa. svo að ég, herra forseti, segi ekki meira um þetta mál að þessu sinni.