24.03.1980
Neðri deild: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1317)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Í framhaldi af svörum hæstv. félmrh. vænti ég þess, að hæstv. ráðh. geri sér ljóst það sem allir aðrir þm. í d. gera sér ljóst: Hann mælir hér fyrir lögbrotum. Burt séð fráöllum öðrum efnis­atriðum málsins treysti ég því, að þau mistök verði leiðrétt í Ed. þessarar virðulegu stofnunar.