24.03.1980
Neðri deild: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í B-deild Alþingistíðinda. (1325)
45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hefði haft sterkar tilhneigingu til að styðja fram komna brtt. Magnúsar H. Magnússonar. En við nánari athugun kemur í ljós að þá verður tekjuskerðing sveitarfélaga hátt á annan milljarð, en mundi hins vegar spara ríkissjóði mest vegna þess að ónýttur persónuafsláttur, sem gengi til greiðslu á útsvörum, mundi verða mjög sparandi fyrir ríkið og mundi verða ríkinu hagstæðari en þeim sem útsvör eiga að greiða. Þingflokkur Alþb. hefur samþykkt að hafna till. Magnúsar H. Magnússonar vegna þess að fyrir liggur yfirlýsing frá fjmrh. og nú hefur verið dreift í d. frv. til l. um hækkun persónuafsláttar í 440 þús. og að ónýttur persónuafsláttur upp í útsvar tvöfaldist frá því sem verið hefði að óbreyttu skattkerfi. Þar með fellur útsvar niður af allra lægstu tekjum umfram það sem verið hefði. Þess vegna segi ég nei.