24.03.1980
Neðri deild: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1348 í B-deild Alþingistíðinda. (1327)
45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Steinþór Gestsson:
Herra forseti. Við þá breytingu sem gerð var á þessu frv. við 2. umr. með samþykkt till. um 12. prósentið þóttist ég greina það, að erfitt yrði að koma þessu frv. þannig í gegn að í því væri fullkomið vit. Þess vegna vil ég ekki bera ábyrgð á frv. frekar og greiði ekki atkv. um þessa tillögu.