24.03.1980
Efri deild: 52. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (1333)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Það frv. sem hér er til 1. umr., var á sínum tíma rætt allítarlega á sameiginlegum fundum félmn. beggja deilda, þannig að við, sem erum í hv. félmn. þessarar hv. d., höfum komið áður við sögu þessa máls. Á þessum sameiginlegu fund­um ræddum við frv., sem hér er nú á dagskrá, sérstaklega með tilliti til breytinga sem talið var nauðsynlegt að gera á frv. Á fundi til okkar komu menn eins og ríkisskatt­stjóri og framkvæmdastjóri BSRB og þeir höfðu verið með í ráðum við samningu brtt. sem við ræddum á þess­um sameiginlegu fundum.

Á þessum fundum varð samkomulag um að styðja þetta frv. og styðja þær brtt. sem við ræddum og höfðu verið undirbúnar með aðstoð þeirra aðila sem ég nefndi. En á þessum sameiginlegu fundum urðu þó mestar umræður um brtt. sem hafði orðið til með sérstökum hætti og þessir embættismenn höfðu ekki staðið að, en það var brtt. um að leggja mætti 10% á útsvarsupphæð­ina, á þau 11% sem frv. í upphafi gerði ráð fyrir. Um þetta var deilt, og við fulltrúar Sjálfstfl. á þessum fundum lögðum áherslu á það, að ekki væri hægt að taka ákvörð­un um íþyngingu útsvarsins, sérstaklega með tilliti til þess, að við vissum þá ekki hver heildarskattbyrðin yrði, vegna þess að þá var ekki vitað hverjir yrðu skattstigar varðandi tekjuskattinn.

Það varð því samkomulag á þessum sameiginlegu fundum að sleppa þessari till. um 10% hækkunina eða hafa hana ekki með hinum sameiginlegu till. Eftir þessu var farið við afgreiðslu málsins í hv. félmn. Nd. Í ítarleg­um brtt., sem sú n. gerði og voru í samræmi við það sem við höfðum rætt á þessum sameiginlegu fundum, var ekki þessi till. Í meðferð hv. Nd. á þessu máli var þessi till. fram borin og samþykkt, eins og kunnugt er, og frv. kemur í þessari mynd til okkar í þessari hv. deild.

Ég vil í þessu sambandi taka það fram, að að áliti okkar sjálfstæðismanna hefur það komið í ljós nú, að það var ekki að ástæðulausu að við vildum ekki þá þegar á hinum sameiginlegu fundum félmn. fallast á þessa hækkun út­svarsins. Við komumst endanlega að raun um það við framlagningu frv. til l. um breyt. á tekju- og eignarskatt­inum á þskj. 219, sem við ræddum fyrr í dag. Þar kemur í ljós, að í stað þess, sem hefði mátt ætla, að það frv. fæli í sér lækkun skatta til þess að mæta þeirri hækkun útsvars sem orðin er í þessu frv., sem við nú ræðum, þá er frv. um breyt. á lögum um tekju- og eignarskatt einnig íþyngj­andi. Ég skal ekki hér fara að ræða það frv., og ég skal ekki við þessa umr. fara að ræða sérstaklega frv., sem hér liggur fyrir nú og er á dagskrá, enda ekki ástæða til að ræða það almennt eða þau atriði sem samkomulag hefur verið um. En að sjálfsögðu er ástæða til þess að ræða þá breytingu sem hefur orðið á frv. í meðferð Nd. varðandi hækkun útsvarsins.

Ég tel þó ekki rétt á þessu stigi málsins að fara að ræða það mál efnislega. Ég vil leyfa mér að vona, þegar þetta mál kemur til hv. félmn. þessarar d. þar sem ég á sæti, að þar verði málið athugað með þeim árangri að hægt sé að ná samkomulagi um að þessi deild afgreiði málið eins og samkomulag var um í hv. félmn. Nd. að afgreiða það. Með tillíti til þessa vil ég geyma mér að ræða þetta mál ítarlega.

Ef svo fer mót von minni, að hv. stjórnarliðar halda áfram við þá stefnu sem fram kemur í afstöðu þeirra til þessara mála, að íþyngja almenningi í landinu með auk­inni skattbyrði, munum við að sjálfsögðu ræða það mál ítarlegar við 2. umr. ef þörf gerist.

Hæstv. félmrh. vitnaði í ræðu sinni áðan í stjórnar­sáttmálann. Hann sagði að í stjórnarsáttmálanum væri lögð áhersla á að styrkja stöðu sveitarfélaganna. Hann vitnaði og til þess starfs sem hefur verið unnið á undan­förnum árum við endurskoðun á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Ég kannast við þetta hvort tveggja. Ég kannast við það sjónarmið, að nauðsynlegt sé að styrkja stöðu sveitarfélaganna. Við sjálfstæðismenn höf­um lengi haft það á stefnuskrá okkar og talið það eitt af þýðingarmestu þáttum í allri viðleitni til þess að auka valddreifingu, auka lýðræðið í þessu landi.

Það var líka fyrir frumkvæði núv. hæstv. forsrh., að sú nefnd var sett á laggirnar sem unnið hefur að þessu á undanförnum árum. Hæstv. félmrh. vék hér að því sem þessi nefnd hefði þegar starfað. Ég vona að störf þessarar nefndar haldi áfram hér eftir sem hingað til. En ég vil vekja athygli á því, að þó að við sjálfstæðismenn teljum nauðsynlegt að styrkja stöðu sveitarfélaganna og gæta þess, að þau hafi tekjustofna til þess að standa undir þeim verkefnum sem þeim eru fengin á hverjum tíma, þá höfum við alltaf litið svo á, að sveitarfélögin væru til vegna fólksins í landinu og það væri grundvallaratriði, að fólkinu í landinu yrði ekki íþyngt um of með skattbyrð­um til sveitarfélaganna og til ríkisins. Um leið og við aukum hlutverk sveitarfélaganna verðum við að sjálf­sögðu að auka tekjustofna þeirra. En það þýðir það, að við verðum jafnframt að draga úr þeirri skattlagningu sem lögð er á til tekjuöflunar fyrir ríkið.

Ég minntist í þessu sambandi á hæstv. forsrh. Ég hef litið svo á, að hann væri og hefði verið á undanförnum árum samþykkur þeim grundvallarsjónarmiðum sem ég hef hér aðeins vikið að. Ég vil því leyfa mér að vona að undir forsæti hans verði ekki stigin spor í öfuga átt í þessum efnum, að það verði ekki aukin skattheimta til tekjuöflunar fyrir sveitarfélögin í landinu án þess að gerðar verði viðeigandi ráðstafanir til þess að draga úr skattbyrðum til ríkisins. Það voru hugleiðingar sem þessar, sem gáfu mér tilefni til þess að lýsa þeirri von minni nú, að svo kynni að fara að það gæti náðst sam­komulag í hv. félmn. þessarar deildar um að breyta frv. hér í Ed. á þann veg sem samkomulag var um í félmn. Nd. að hafa það.

Það er þá ekki i fyrsta sinn sem það kæmi fyrir, að þessari hv. deild tækist að betrumbæta verk þeirra í hv. Nd.