24.03.1980
Efri deild: 52. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1334)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Karl Steinar Guðnason:

Forseti. Það hefur komið fram í Nd., að Alþfl.-menn eru algjörlega andvígir þeirri útsvarshækkun sem nú á að eiga sér stað samkv. þeirri samþykkt sem gerð hefur verið í Nd. Við gerum okkur vissulega grein fyrir því, að sveitarfélög þurfa að hafa góða tekjustofna, en við höfum það einnig í huga, að almenningur í landinu hefur visst greiðsluþol og til þess þarf að taka tillit.

Það kom fram hjá hæstv. félmrh. áðan, að ef sveitar­félögin ættu að hafa þær rauntekjur, sem 10% eða 11% álagningin segir til um, þyrfti álagningin í dag að vera 13 – 14% og því hærri prósenta því meiri sem verðbólgan er. Við teljum að stærsta tekjutrygging fyrir sveitarfélögin væri sú að ráðast gegn verðbólgunni og freista þess að minnka hana. En það er ekki að sjá að að því sé stefnt af hæstv. ríkisstj., heldur þvert á móti.

Það hefur og komið fram, að í umfjöllun Nd. hefur hvergi verið leitað samráðs við aðila vinnumarkaðarins um þá útsvarshækkun sem nú á að eiga sér stað. Ég vil minna á að 7. apríl 1979, þ.e. í fyrra, voru sett lög um stjórn efnahagsmála o.fl. Í 5. gr. er fjallað um samráð og þar segir svo, með leyfi forseta:

„Verkefni samráðs þessa skal m.a. vera:

Að ræða meginþætti í efnahagsmálum og helstu efna­hagsmarkmið ríkisstj. frá ári til árs og til lengri tíma, í því skyni að leggja grundvöll að samræmdum ákvörðunum á sviði opinberra fjármála, peninga- og lánamála, lífeyris­mála, verðlagseftirlits af opinberri hálfu, og á sviði kjaramála af hálfu aðila vinnumarkaðarins.“

Svo segir aftur í 3. tl.: „Að fjalla um önnur þau atriði, sem horfa til framfara á sviði atvinnu-, verðlags-, kjara- ­og launamála og efnahagsmála almennt.“

Mér sýnist, fyrst ekki hefur verið haft samráð við launþegasamtökin um þessa útsvarshækkun, að þá sé beinlínis verið að brjóta lög, þau lög sem ég minntist á hér áðan, og mun ég í félmn., sem ég á sæti í, leggja til að þar verði óskað umsagnar Alþýðusambands Íslands um þær till. um útsvarshækkun sem fram hafa komið og verið samþykktar í Nd.

Það er greinilegt, að hugleiðingar ríkisstj. um að hækka útsvarið verða beinlínis eins og verið sé að hella olíu á eld. Verkalýðshreyfingin gengur nú til samninga, hefur sett fram sínar kröfur, en mitt í þeirri samninga­gerð rýkur ríkisstj. í það að hækka útsvarið, sem vissu­lega hlýtur að koma við hvern einstakling í landinu og þá sérstaklega launþega.

Ég ætla ekki að fara frekari orðum um þetta að sinni, nema að mér sýnist að hækkun útsvarsins verði ekki til að greiða fyrir kjarasamningum, heldur þvert á móti. Og ég árétta það, að með því að hundsa launþegasamtökin hvað samráð snertir sé verið að brjóta lög. Ég mun freista þess í félmn. að fá því breytt og vona að eftir þær um­sagnir, sem þar fást, fái menn gleggri mynd af því, hvað launþegasamtökin hafa um þessar till. eða samþykkt Nd. um útsvarshækkun að segja.