25.03.1980
Sameinað þing: 36. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1342)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Jón Helgason):

Áður en gengið er til dagskrár vil ég benda á það, að eins og hv. alþm. er kunnugt hefur að undanförnu verið vitnað í orð mín við atkvgr. um undanþágu fyrir Benedikt Gröndal fyrrv. forsrh. að flytja stefnuræðu í upphafi þings eins og þingsköp kveða á um. Af þeim sökum vil ég benda á að í þingsköpunum er kveðið á um útvarpsumr. a.m.k. tvisvar á hverju þingi, þ.e. um stefnuræðu í upphafi þings og almennar stjórn­málaumr. á síðari hluta þingsins. Þegar Benedikt Gröndal var veitt undanþágan 18. des. var þess vænst að ný ríkisstj. mundi taka við völdum á næstu vikum, og taldi ég því ekki rétt að útiloka þann möguleika að útvarps­umr. um stefnuræðu gætu farið fram á fyrrihluta þingsins. En eins og öllum hv. alþm. er kunnugt dróst myndun nýrrar ríkisstj. fram á mitt þing, og taka þá við ákvæði þingskapa um almennar útvarpsumr. sem fram munu fara síðar á þessu þingi, en ákvæði þingskapa um stefnuræðu eiga ekki lengur við. Hins vegar er ljóst að vegna hinna sérstöku aðstæðna eiga ákvæði þingskapa um útvarpsumr. ekki að öllu leyti við nú, og vænti ég þess, að um það geti náðst samkomulag sem allir geti sætt sig við.