25.03.1980
Sameinað þing: 36. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1358 í B-deild Alþingistíðinda. (1343)

Umræður utan dagskrár

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég tafðist og var ekki kominn til þessa fundar þegar forseti las upp yfir­lýsingu sína, en hann hafði áður sýnt mér þessa yfirlýs­ingu. Ég geri ráð fyrir að hún sé samhljóða, sú er hann las upp nú.

Að gefnu tilefni vildi ég láta það koma fram, að í þingsköpum er áskilið að stefnuræða forsrh. skuli flutt í byrjun hvers þings, og í byrjun þessa þings, sem kom saman, að því er mig minnir, 12. des. s.l., voru fljótlega veitt afbrigði frá þingsköpum á þá leið, að fresta skyldi flutningi stefnuræðu forsrh. Mér sýnist því einsætt, að ef hæstv. forsrh, hyggst ekki flytja stefnuræðu nú hljóti þingið sjálft að verða að kveða á um að stefnuræðu skuli algerlega sleppt á þessu þingi. Ég skal ekki bregða fæti fyrir það. Ég tel eðlilegt og sjálfsagt að hæstv. forsrh. hafi heimild til þess af þingsins hálfu að sleppa því að flytja slíka stefnuræðu ef hann ákveður svo. En málið kemur mér þannig fyrir sjónir að það hljóti að vera þingsins að fallast á þá fyrirætlan. Þingið er búið að veita afbrigði á þá lund, að stefnuræðu skuli frestað, og því er eðlilegt að þingið sjálft kveði á um að henni skuli algerlega sleppt.