25.03.1980
Sameinað þing: 36. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1351)
Umræður utan dagskrár
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Hinn 18. des. s.l. var þetta málefni, skýrsla forsrh., tekið til afgreiðslu í Sþ. Þar er haft eftir hæstv. forseta, með leyfi hæstv. forseta:
„Í 2. mgr. 52. gr. þingskapa segir: „Þá skal og útvarpa innan tveggja vikna frá þingsetningu stefnuræðu forsrh. og umr. um hana, en eftirrit af ræðunni skal afhent þm. sem trúnaðarmál eigi síðar en viku áður en hún er flutt.“
Forsrh. telur að eins og nú er ástatt sé þetta ákvæði ekki framkvæmanlegt og sé því nauðsynlegt að veita afbrigði um frestun stefnuræðunnar þar til síðar á þessu þingi er ný stjórn hefur verið mynduð.“
Síðan fer fram atkvgr. Afbrigði um frestun stefnuræðu forsrh. eru samþ. með 42 shlj. atkv.
Hæstv. forsrh. er tíðrætt um að menn séu haldnir algerum misskilningi. Ég ætla að í þeirri ræðu, sem hann flutti áðan, hafi hann sagt ekki sjaldnar en þrisvar sinnum, — má vera að hann hafi sagt það þrisvar sinnum þrisvar sinnum, — að við almennir þm., sem sitjum á hinum óæðri bekkjum, værum haldnir algerum misskilningi. En hitt held ég og hygg að það fari ekki milli mála, og um það ætla ég ekki að eiga orðaskipti við hæstv. forsrh. sem er svo gjarn á að misskilja hluti, en beini þeirri fsp. til hæstv. forseta, hvort hann sé ekki reiðubúinn til að taka það til athugunar, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, að afgreiða þetta mál með sama hætti og gert var hinn 18. des. s.l., að ef veita eigi afbrigði frá þingsköpum sé það óheimilt nema með samþykki þin síns sjálfs.
Ég held satt að segja að það sé kominn tími til þess, að framkvæmdavaldið, ríkisstj., hætti að ráðskast með Alþ. eins og hún sé hér á einhverjum sérstökum vildarkjörum fram yfir okkur hina. Það mundi lítið gagna fyrir almennan þm. að lýsa því yfir að eitt eða annað ákvæði þingskapa næði ekki til hans. Hér stendur svart á hvítu, að Alþ. hafi samþ. með 42 shlj. atkv. að stefnuræðu forsrh. skyldi frestað. Það er alger misskilningur að atkvgr. hafi verið að ástæðulausu, að hún hafi enga þýðingu, að hún sé málinu óviðkomandi. Í úrskurði sínum ber hæstv. forseta að hlíta því sem meiri hl. Alþ. hefur ákveðið, og hæstv. forsrh. ber sömuleiðis að fara eftir því sem Alþ. ákveður í þessum efnum, ef vilji hans stendur til þess að eiga gott samstarf við þingið. Hitt getur aftur verið annað mál, hvort hæstv. ríkisstj. óskar eftir því.
Ég býst við því, að þjóðin a.m.k. sé allforvitin, eins og komið er, og vilji fá að vita nánar um stefnu hæstv. ríkisstj. Ég get t.d. rifjað það upp, að í gær fóru hér fram allítarlegar umr. um ástand útflutningsatvinnuveganna. Þær umr. upplýstu á engan hátt þann djúpstæða ágreining sem upp er kominn í ríkisstj. í sambandi við hvernig eigi að halda á lausn þess máls, þar sem annars vegar ráðh. Framsfl. hafa hvað eftir annað, eins og hæstv. sjútvrh., lýsti því yfir að a.m.k. verulegt gengissig sé óhjákvæmilegt, en ætla má eða hefur spurst að ráðh. Alþb. séu þar á öðru máli. Þetta er atriði sem ekki hefur fengist upplýst og ýmislegt annað sem væri fróðlegt að fá nánari skýringar á.