25.03.1980
Sameinað þing: 36. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1362 í B-deild Alþingistíðinda. (1356)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ég vil leiðrétta hér það ranghermi sem kom fram hjá hv. 1. þm. Reykv., að ég hafi óskað eftir að felld yrði niður stefnu­ræða forsrh. Þetta hef ég ekki farið fram á og mun ekki fara fram á. Ég færist á engan hátt undan umræðum á Alþ., almennum umræðum eða útvarpsumræðum, um stefnu og störf ríkisstj. Það, sem málið snýst um, er eingöngu þetta, að ákvæði þingskapa um stefnuræðu forsrh. í byrjun þings eiga ekki við hér. Það, sem líka er um að ræða, er að sjálfsögðu það sem fram hefur komið hjá hæstv. forseta Sþ. Í upphafi þessa fundar lýsti hann skilningi sínum á þessu ákvæði þingskapa og á þeirri samþykkt sem gerð var í desembermánuði varðandi beiðni Benedikts Gröndals þáv. forsrh. um að fá undan­þágu frá því ákvæði. Þessi skilningur hæstv. forseta Sþ. liggur fyrir og það er hann sem flestir ræðumenn hér eru að vefengja. Mér finnst það mjög eðlilegt, sem hæstv. forseti hefur nú stungið upp á, að ef þess er óskað verði það borið undir þingheim hvort skilningur hans sé réttur eða ekki.