25.03.1980
Sameinað þing: 36. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1367 í B-deild Alþingistíðinda. (1365)

128. mál, stórvirkjun

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Sú þál., sem hér ræðir um og um er spurt, var, eins og kom fram í máli fyrirspyrjanda, samþykkt í þinginu 5. maí 1978, þ.e. fyrir u.þ.b. tveimur árum. Segir svo í þessari þál., eins og hún var ákveðin:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að sjá svo um að kennsla og fræðsla í öllum greinum móðurmálsins verði efld.“

Þetta var þál. eins og hún var samþykkt fyrir u.þ.b. tveimur árum.

Ég hef aflað mér upplýsinga hjá þremur fyrrv. menntmrh., Vilhjálmi Hjálmarssyni, Ragnari Arnalds og Vilmundi Gylfasyni, um aðgerðir þeirra í þessu máli. Einnig hef ég fengið upplýsingar um íslenskufræðslu eða kennslu í útvarpi og sjónvarpi eins og hún er um þessar mundir.

Vilhjálmur Hjálmarsson var menntmrh. í maí 1978, þegar þál. var samþ., og sat til ágústloka 1978. Hann segir mér að hann hafi ritað útvarpsstjóra og útvarpsráði bréf 22. júní 1978, þar sem hann greinir forráðamönnum útvarpsins frá samþykkt þál. og lætur í ljós vonir um að Ríkisútvarpið geri ráðstafanir í samræmi við ályktunina og sendi rn. skýrslu um gang málsins. Það verður ekki séð af heimildum, sem mér eru tiltækar, að útvarpsráð hafi aðhafst mikið í málinu til þessa, né heldur sýnist hafa verið um að ræða skjalfestan eftirrekstur málsins af hálfu menntmrn., svo að mér sé kunnugt. Hins vegar hefur útvarpsstjóri sent mér bréf sem er m.a. svar við þeirri spurningu sem ég óskaði að hann svaraði, hvaða kennsla og fræðsla fari fram í íslensku máli í útvarpi og sjónvarpi um þessar mundir. Bréf útvarpsstjóra er þannig, og ég les aðeins meginmál þess:

„Íslenskir kennslu- og fræðsluþættir í útvarpi og sjónvarpi í þrengri merkingu eru fljóttaldir.

Í útvarpi hefur verið fluttur um áratugaskeið þátturinn „Íslenskt mál,“ sem starfsmenn Orðabókar háskólans hafa séð um. Í þeim þáttum hefur mjög verið leitað upplýsinga til almennings um orð og orðtök, könnuð útbreiðsla og notkun og veittar margvíslegar skýringar. Þáttur þessi er fluttur vikulega meiri hluta ársins og jafnan endurtekinn.

Þátturinn „Daglegt mál“ hefur einnig lengi verið á dagskrá útvarpsins í umsjá kunnáttumanna. Í honum er fjallað um íslenska tungu samtímans, mælt mál og ritmál. Þáttur þessi er stuttur, hér um bil 5 mín., tvisvar í viku árið um kring.

Í sjónvarpi hefur í vetur verið á dagskrá þáttur um íslenskt mál. Er þar einkum um að ræða skýringar á myndhverfum orðtökum, en sjónvarp er hentugt tæki til slíkra skýringa. Umsjónarmaður þessa þáttar er Helgi J. Halldórsson cand. mag.

Önnur hlið íslenskufræðslu, sem snýr ekki beint að hlustendum, er fræðsla sem veitt er því starfsfólki sem jafnaðarlega talar í útvarp og sjónvarp, fréttamenn og þulir. Hafa háskólakennararnir Baldur Jónsson og Óskar Halldórsson haldið slík námskeið með fréttamönnum og prófað nýja þuli.

Segja má að sérhver manneskja sem talar í útvarp eða sjónvarp, leggi sinn skerf til málþróunar, góðrar eða illrar, en sérfróðir menn og vel að sér í íslensku máli stjórna dagskrárdeildum og hafa ætíð sýnt meðferð tungunnar áhuga, þó að sitthvað misjafnt fljóti með í þeim mikla orðaflaumi sem berst gegnum þessi tæki.

Ótaldir eru loks erindaflokkar, einstök erindi og umræður sem beinlínis flytja fræðslu um íslenskt mál og bókmenntir.“

Þannig er bréfútvarpsstjóra, Andrésar Björnssonar, og hann ritar undir þetta sjálfur.

Af þessu bréfi má sjá að Ríkisútvarpið miðlar nokk­urri fræðslu um móðurmálið og hefur lengi gert. Nýjasti þátturinn um þetta efni er sjónvarpsþáttur Helga J. Halldórssonar, sem útvarpsstjóri nefnir í bréfi sínu og hv. fyrirspyrjandi nefndi. Sá útvarpsþáttur er tilkominn eftir að þál. var samþ.

Ég vil geta þess í framhaldi af þessu, að í stjórnarsátt­mála núv. ríkisstj. segir að opinberum fjölmiðlum skuli ætlað fræðsluhlutverk bæði í þágu skóla og fræðslu full­orðinna. Áður en til framkvæmda svo viðamikils máls kæmi þarf mikinn undirbúning, sem m.a. mundi felast í því að koma á virku samstarfi útvarpsráðs og fræðslu­yfirvalda sem nyti stuðnings og velvilja fjárveitingavalds­ins. Hér er um að ræða mjög mikilvægt stefnuatriði sem þó verður hvorki hrundið í framkvæmd undirbúnings­laust né án sérstakra fjárveitinga, rétt eins og kom fram í máli hv. fyrirspyrjanda. Ég mun því leggja höfuðáherslu á vandaðan undirbúning málsins, bæði faglega og fjár­hagslega, að svo miklu leyti sem það kann að koma í minn hlut að framkvæma þetta stefnuskráratriði og áður en til kemur framkvæmd á þessu stefnuskráratriði í verki.

Að mínum dómi fellur aukin fræðsla um íslenskt mál í ríkisfjölmiðlum undir þá eflingu almennrar fræðslu sem stjórnarsáttmálinn gerir ráð fyrir á þessum vettvangi. Hins vegar er ég þess sinnis, að fræðsla um íslenskt mál mætti ganga fyrir öðru fræðslu- og kennsluefni, og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að hraða aðgerðum á því sviði öðrum fremur og þó þannig að vel sé vandað til slíkra framkvæmda. En ég hlýt enn að leggja á það áherslu, að aukin útvarpsfræðsla, hvort heldur er á sviði íslenskra fræða eða á öðrum sviðum, er ekki eingöngu háð hæfu starfsfólki, kunnáttumönnum í sérgreinum, heldur einnig samstarfsvilja dagskrárstjórnenda, fyrst og fremst útvarpsráðs, og nauðsynlegum fjárveitingunni. Ég end­urtek því, að hvers kyns fræðsla í útvarpi og sjónvarpi er æskileg og það er mikið menningarmál, en útvarpi og sjónvarpi verður ekki breytt í fræðslustofnun án rétts undirbúnings bæði faglega og fjárhagslega, eins og ég hef áður sagt.

Því miður get ég ekki að sinni svarað fsp. öllu ítarlegar en þetta.