20.12.1979
Neðri deild: 7. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (138)
9. mál, olíugjald til fiskiskipa
Frsm. minni hl.(Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Eins og fram kom í orðum frsm. meiri hl. n. varð n. ekki sammála um afgreiðslu þessa máls. Annars vegar standa fulltrúar meiri hl. í sjútvn., sem eru allir nánir aðstandendur ríkisstj. sálugu sem setti þessi brbl., og þeir standa nú yfir moldum hennar og mæla með samþykkt þessara brbl. óbreyttra, eins og hv. formaður n. sagði, en við fulltrúar Sjálfstfl. í n. höfum sitthvað við þessi brbl. að athuga.
Í fyrsta lagi skal ég koma að því, sem ég tel að við séum sammála um. Við urðum sammála um að leggja á fiskkaupanda að greiða útgerðarfyrirtækjum olíugjald sem nemur allt að 9% miðað við fiskverð eins og það er ákveðið af Verðlagsráði sjávarútvegsins á hverjum tíma. Hins vegar höfum við ekki getað kynnt okkur framkvæmd þessara mála sem skyldi, enda liggur auðvitað svo mikið á að afgreiða þessi brbl. að til þess gafst ekki tími og n. var ekki nema örfáar mínútur með málið, en þessi lög eiga að renna út 31. des. 1979. Það væri í leiðinni fróðlegt — sjútvrh. er hérna — að heyra hvað ríkisstj. hugsar sér í sambandi við framhald olíugjaldsins, hvort ríkisstj. hugsar sér að halda áfram þeim óbreyttu 9% ofan á fiskverð, eins og Verðlagsráð ákveður á hverjum tíma, og hvort ríkisstj. hugsar sér að framkvæmd þessa máls verði með sama hætti og hún er nú.
Það má segja að ágreiningur sé í sjálfu sér ekki um 1. gr. frv., um sjálft olíugjaldið. Hins vegar er ágreiningur á milli okkar og fyrrv. ríkisstj.-flokka um að verja 550 millj. kr. af tekjum Tryggingasjóðs fiskiskipa og 850 millj. kr. af tekjum Aflatryggingasjóðs af útflutningsgjaldi til þess að bæta upp verð á tveimur fisktegundum, karfa og ufsa, á tímabilinu frá 15. maí til 31. des. Í fyrsta lagi viljum við sjálfstæðismenn ekki að þessara tekna sé aflað með þessum hætti, vegna þess að við álítum að í öðru tilfellinu hefði átt að verja þeim tekjum í annað, — sem ég skal koma síðar að — og í hinu tilfellinu, sem er Aflatryggingasjóður, þá á sá sjóður að safna fjármunum þegar vel aflast og vel árar, eins og nú hefur gerst, og eiga fjármuni til þess að verja þegar áföll koma. Hlutverk Aflatryggingasjóðs og tilgangur hans upprunalega og allt fram til síðasta árs hefur verið þessi. En þá er gripið til þess ráðs að taka af honum fé til þess að standa undir verðbótum á tilteknum fisktegundum. Þetta álítum við sjálfstæðismenn vera ranga stefnu, því að við viljum að Aflatryggingasjóður sé byggður upp þegar vel árar, eins og ég sagði áðan, þannig að hann geti sinnt því mikilvæga hlutverki sínu að bæta úr þegar í nauðir rekur, eins og oft á sér stað í okkar sveiflukennda atvinnurekstri sem sjávarútvegur er.
Um Tryggingasjóð fiskiskipa er það að segja, að hann var stofnaður á árinu 1961 og tók þá gildi 1. ágúst fjáröflun til hans. Hins vegar var honum lagt á herðar að taka við skuldbindingum frá 1. jan. 1961, sem þýddi það í upphafi að sjóðurinn var alltaf á eftir með sínar skuldbindingar, þannig að biðtími eftir greiðslum var frá 9 og upp í 12 mánuði oftast nær á þessum árum og allt fram til áranna 1974–1975. En við endurskoðun sjóðakerfisins var Tryggingasjóðurinn gerður upp, og ég beitti mér þá fyrir því, að tekjur til Tryggingasjóðsins væru það ríflegar að hann gæti umsvifalaust staðið undir skuldbindingum sínum og ekki þyrfti að bíða með að greiða iðgjöldin, eins og gerst hafði öll þessi ár. Í reynd var það svo, að sjóðurinn stóð við allar sínar skuldbindingar frá því að nýja útflutningsgjaldið var sett á árinu 1976, í ársbyrjun, og séð var jafnframt að það mundi verða nokkur afgangur af tekjum sjóðsins. Þá var ráð fyrir því gert og haft um það mjög náið samráð við útgerðina í landinu eða samtök hennar, að þeim afgangi yrði varið til Aldurslagasjóðs fiskiskipa, sem hefur það hlutverk að bæta útgerðarmönnum upp gömul úrelt skip, sem er þjóðhagslega rangt að halda áfram útgerð á. Þessi sjóður er ekki nógu öflugur — enda ungur að árum — þó að hann hafi fengið allt stofnfé bráðafúadeildar Samábyrgðar Íslands og nokkrar árlegar tekjur með samþykki útvegsins, og því teljum við sjálfstæðismenn að þessa fjármuni hafi ekki átt að skerða eins og gert er ráð fyrir með þessum brbl. Þar með er alveg snúið við blaðinu, og fyrrv. ríkisstj. fleytti sér á s.l. ári áfram með þeim hætti, að eyða öllum tekjum Aflatryggingasjóðs að fullu og öllu og hirða ófrjálsri hendi afgang af Tryggingasjóði fiskiskipa, sem nota átti í þessum tilgangi, til þess að klóra sig fram úr því að verðbæta ákveðnar tegundir af fiski.
Nú spyr sennilega hæstv. sjútvrh. mig að því, hvernig ég vilji mæta þessum útgjöldum. Og þá vil ég svara honum því til, að ég tel að þegar svona er komið, að ákveðnir fiskstofnar eru ýmist fullnýttir eða ofveiddir og við þurfum að beina sókn í aðra stofna, svo sem hefur verið gert á undanförnum árum, þá séu það ekki einhverjir ákveðnir tveir sjóðir sjávarútvegsins sem á að hirða í því augnamiði. Það er sameiginleg skylda þjóðfélagsins í heild að leggja á gjöld til þess að standa undir slíku, ef þetta er talið réttlátt, sem ég tel, en ekki gripa til þeirra hundakúnsta að eyðileggja afkomu eins sjóðs, þannig að hann stendur eftir máttlaus ef útgerðin verður fyrir einhverju alvarlegu áfalli, og taka á þennan hátt tekjur frá þeim sjóði, sem ætlað var það mikilvæga hlutverk að reyna að taka úr umferð gömul og úrelt skip sem er ekki þjóðhagslega rétt að halda áfram útgerð á.
Þá kem ég að einu atriðinu enn sem við erum ósammála um, að í 2. gr. þessa frv. er talað um uppbætur á aðeins tvær tegundir. Það er aðeins talað um uppbót á ufsa og karfa á þessu tímabili. Ég minntist lítillega á það í ræðu minni við 1. umr. þessa máls, að stefnt væri að því að auka sóknina í fleiri tegundir afla en ufsa og karfa, t.d. grálúðu. Og ég spyr hæstv. sjútvrh. að því og hæstv. fyrrv. ríkisstj. þá í leiðinni — ekki hann eingöngu því að ríkisstj. ber öll ábyrgð á því: Hvernig stendur á því, að lögákveðið er með þessum brbl. að verðbæta aðeins ufsa og karfa, en sleppa grálúðu? Hvaða réttlæti er í því? Hvers vegna eiga þeir útgerðaraðilar og sjómenn, sem grálúðuveiðar stunda, enga verðuppbót að fá en aðeins þeir sem veiða ufsa og karfa.? Nú er ég algerlega sammála hæstv. ríkisstj. um það atriði, að uppbót sé veitt, bæði á ufsa og karfa, en um hitt er ég alveg ósammála henni, að sleppa grálúðunni, sem er þriðji stærsti fiskastofninn sem er verið að auka sókn í. Og ég vil endurtaka það, sem raunar kemur fram í nál., að 1. flokks ufsi hefur hækkað frá 1. júní 1977 til 1. júlí 1979 úr 56 kr. í 98 kr. eða um 76%, en uppbót á hann samkv. þessum brbl. er 25 kr., þannig að skiptaverð á honum fer upp í 123 kr., og þá er hækkunin á honum á þessu tímabili 120%. Karfi var í upphafi þess tímabils, sem ég nefndi, 46 kr. og hækkar í 70 kr. eða um 52%, en uppbót á hann er 21 kr. á kg, þannig að skiptaverð á karfa verður 91 kr. og hækkun á tímabilinu 98%. En þegar við lítum á grálúðuna, þá hefur hún hækkað á þessu tímabili úr 90 kr. í 117 kr. eða í rúm tvö ár um 30%. Ég hugsa að það sé hreinlega verið að stefna að því, að allir gefist upp að stunda þessar veiðar. Og það getur hver spurt sjálfan sig að því, hvort hann væri ánægður með að hafa fengið 30% hækkun í 25 mánuði. — Ég sé að formaður Verkamannasambands Íslands brosir. Ég held að hann geti verið mér sammála. Og hvers vegna eiga þá þeir, sem grálúðuveiðar stunda og gera út á grálúðu, að sætta sig við þetta? Og á minni grálúðunni, sem er 1–3 kg, hækkar verðið aðeins úr 60 kr. í 77 kr. eða um 28%.
Þetta er ekki mál Verðlagsráðs sjávarútvegsins, því að í 2. gr. brbl. eru því bara gefin fyrirmæli um að verja þessum fjármunum til uppbótar á tvær tegundir, karfa og ufsa, sem um er að ræða, svo að fyrrv. ríkisstj. hefur annaðhvort ekki vitað að grálúðuveiðar væru stundaðar eða hún hefur talið sjálfsagt að níðast algerlega á þeim sem þessar veiðar hafa stundað.
Þetta eru þær aths. sem ég vil gera við þessi brbl. Mér er alveg ljóst og okkur sjálfstæðismönnum, að þegar komið er að lokum þess tímabils sem þessi lög eiga að gilda, þá er auðvitað ekki um annað að ræða en staðfesta þau. Það er mér fyllilega ljóst. En hvort sem núv. hæstv. ríkisstj. verður langra lífdaga auðið eða ekki, þá væri fróðlegt að fá um það upplýsingar, hvað hún eða hæstv. sjútvrh. hugsar sér í þessum efnum þegar 1. jan. rennur upp. Ætlar hann að leggja til að þetta verði óbreytt og með hvaða hætti á þá að leita tekna til þess að verðbæta bæði karfa og ufsa? Eða ætlar hann að beita sér fyrir því, að leiðrétting verði gerð á þessu og grálúðan tekin með, því að ég tel það fullkomna skyldu að svo verði gert? Ég er því hlynntur, að uppbætur verði áfram greiddar á þessa fiskstofna og grálúðuna einnig til þess að hvetja menn til að veiða þessar fisktegundir og þá um leið að minnka sóknina í þorskstofninn.
Þessar athugasemdir vildi ég fyrir hönd okkar sjálfstæðismanna færa fram. Og með tilliti til þess, að við erum andvígir þeim aðferðum og þeirri fjáröflun sem 2. gr. fjallar um, sjáum við okkur ekki fært að greiða atkv. með þessu frv. í heild, þó að við séum sammála því að olíugjaldið sé lagt á og innheimt þó að við kunnum e.t.v. síðar að hafa einhverjar athugasemdir fram að færa í sambandi við framkvæmd þess, sem ég hef þó ekki gert að umræðuefni og ætla ekki að gera á þessu stigi.