25.03.1980
Sameinað þing: 37. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1389 í B-deild Alþingistíðinda. (1389)
Umræður utan dagskrár
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það, sem gaf mér tilefni til að kveðja mér hljóðs, var það undarlega frammíkall hæstv. ráðh., að ef Alþingi féllist ekki á svo og svo óhóflega skattlagningu af bensíni, þá þýddi það sjálfkrafa að drægi úr fjárveitingu til vegáætlunar. Ég get alls ekki séð að þarna sé neitt beint samband á milli. Ég fæ ekki annað séð en hann hafi, eftir að hann gerðist fjmrh., sýnt afskaplega mikinn dugnað og ég vil segja hugkvæmni á því að þyngja álögur á þjóðina. Það líður naumast sá dagur, að ekki sé lagt fram nýtt plagg um enn frekari álögur af því tagi. Hér í dag er ég með fyrir framan mig frv. til l. um flugvallagjald. Í því er talað um að nauðsynlegt sé að gjaldið hækki um nærfellt 60% til samræmis við almenna verðlagsþróun frá 1. jan. 1979 o.s.frv. Ég sé því ekki betur en hann — með þessu frv. og ýmsum öðrum — passi alldyggilega upp á það, að ríkissjóður haldi tekjum sínum í samræmi við verðlagsþróunina. Og ég vil einnig minna á það, að tekjuskattsfrv. hans og eignarskattsfrv. felur í sér mjög verulegar skattahækkanir, ekki síst í sambandi við eignarskattinn. Ég held því að ef hæstv. ráðh. vildi sýna fyllstu sanngirni, þá hlyti hann að fallast á það, að ef við því má búast, að ríkisvaldið haldi eyðslu sinni niðri til samræmis við það sem ríkisstj. ætlast til af heimilunum í landinu, þá mundi verða meira til skipta eftir en áður til verklegra framkvæmda en nú er áformað. Þess vegna held ég að það sé alveg óhætt að minnka pínulitið skattlagninguna í landinu án þess að ganga enn frekar á verklegar framkvæmdir en fyrirhugað er. Ég held að það dyljist engum manni.
En hæstv. ráðh. ýjaði einnig í annað hér, sem mér finnst mjög nauðsynlegt að fram komi. Hann ýjaði í að framkvæmdamáttur vegáætlunar mundi aukast, ríkisstj. stefndi að því að framkvæmdamáttur vegáætlunar mundi aukast. Þegar þessi ummæli hans hér áðan eru skoðuð í samhengi við yfirlýsingar hans í sjónvarpsþætti í síðustu viku, þá geta þau ekki þýtt annað. En ég er ekki alveg ánægður samt. Ég vil fá þetta pínulítið skýrar. Er þetta ekki rétt skilið hjá mér? (Fjmrh.: Ekki alveg.) Ekki það, nei, það er ekki rétt skilið, að framkvæmdamáttur vegáætlunar eigi að aukast. En þannig svaraði hæstv. ráðh. Ellert Schram samt í Ríkisútvarpinu þegar hann spurði hæstv. ráðh. beint að því í sjónvarpsþætti, hvort taka ætti vegáætlunina til endurskoðunar til hækkunar eða lækkunar. Þá svaraði ráðh. því svo, að það ætti að taka hana til endurskoðunar til hækkunar, og það skildi allur landslýður á einn veg, að með því væri ráðh. að gefa fyrirheit um að vegaframkvæmdir mundu aukast. (Fjmrh.: Hækkunar í krónutölu.) Hækkunar í krónutölu, ekki sagði ráðh. það í þessum sjónvarpsþætti. Allir vissu að krónan hefur minnkað. Það er engin yfirlýsing sem máli skiptir að krónutalan breytist frá einu ári til annars þegar verðbólgan er yfir 60%. En hitt kemur mér afskaplega á óvart, að hæstv. ráðh. skyldi með þessum hætti misbjóða sjónvarpshlustendum með því að gefa annað í skyn með ónákvæmu svari heldur en efni stóðu til. Og það er náttúrlega ekki við því að búast, að sjónvarpsþættir með stjórnmálamönnum þyki annað en lélegt skemmtiefni, þegar ráðherrar haga sér með þessum hætti, nota yfirburðaaðstöðu sína gagnvart spyrjendum með því að láta móðan mása, og þegar þeir eru beint spurðir annaðhvort snúa því þá upp í málæði eða gefa vísvitandi villandi svar, eins og var í þessu tilfelli. Ég vil nota þetta sérstaka tækifæri til þess að víta þessi svör hæstv. ráðh. sérstaklega. (Gripið fram í.) — Ég heyrði að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson var að gjamma fram í. Ég var nú satt að segja farinn að sakna hans. Það er nú svo, þó að hann eigi að heita í Ed., þessi hv. þm., að hann var alltaf eitthvað að stjákla hér í kringum forseta Nd. í gær, eins og hann væri að reyna að stjórna fundinum. En hann rak sig fljótt á það, að sá sem þar sat í forsetastól var annar en í síðustu viku. Alexander Stefánsson var sem sé farinn og Sverrir Hermannsson kominn í staðinn. Og hið sama sýndist mér að væri upp á teningnum í morgun, þegar við vorum að reyna að halda fund í samvinnunefnd samgöngumála. Þá var þessi maður alltaf eitthvað að stjákla þarna í kring, gekk að einstöku mönnum og hvíslaði einhverju að þeim, svo að ég var satt að segja farinn að sakna hans. Hvað ætlar þú að segja, Ólafur minn? (ÓRG: Þú mátt nú þakka fyrir að þessu er ekki sjónvarpað héðan. ) Ja, ég veit það ekki, ég er náttúrulega ekki eins vel greiddur og hv. þm.
En það var nú þetta, sem ég ætlaði að skjóta að, og skal svo ekki hafa þessi ummæli fleiri. Það er þetta tvennt. Ég er alls ekki samþykkur þeim skilningi hæstv. samgrh., að ríkisstj. geti markað skattana þannig að Alþ. hafi ekki fullt vald á því, hvernig skipt er þeim tekjum sem aflað er, og þess vegna mundu minni álögur að þessu leyti alls ekki þurfa að þýða minni vegaframkvæmdir. Og um leið vil ég svo harma hitt, að hæstv. ráðh. skyldi með þessum hætti vera með villandi ummæli í sjónvarpsþætti, þegar hann var spurður beint, og nota þá aðstöðu, sem hann var í, til þess að villa svo um fyrir fólki, að í staðinn fyrir það, að hann stefnir að því að draga úr vegaframkvæmdum miðað við það sem stefnt var að á s.l. ári, gaf hann í skyn að hann vildi auka þær.