20.12.1979
Neðri deild: 7. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í B-deild Alþingistíðinda. (139)
9. mál, olíugjald til fiskiskipa
Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég veitti því athygli, sem ég reyndar átti von á, að menn eru sammála um meginatriði þessa máls, annars vegar nauðsyn þess að hafa olíugjald eins og verið hefur að undanförnu og hins vegar að greiða uppbætur á þær fisktegundir sem vannýttar geta talist, þannig að jöfnuð sé sókn í þá nytjafiskstofna sem við byggjum afkomu okkar á. Engu að síður komu fram fáeinar athugasemdir hjá hv. 1. þm. Vestf. varðandi þetta mál. Að því er varðar þá sjóði, sem tekjur hafa verið skertar hjá til að standa undir verðuppbótunum, er það mitt mat að ekki hafi verið gengið hættulega nærri þeim á þessu tímabili. Hitt er ljóst, að framhaldi málsins þarf að hyggja vel að, og ég trúi að menn komist að þeirri niðurstöðu að betra sé að hafa sjálfstæðan tekjustofn, sem standi undir þessum verðuppbótum, en að hnýta það við ákveðna sjóði sem fyrir eru í kerfinu. Og ég get tekið fyllilega undir þau sjónarmið, sem hv. 1. þm. Vestf, rakti hér um nauðsyn þess að halda áfram að gera útgerðaraðilum kleift að taka úr rekstri óhagkvæm og úrelt fiskiskip.
Um verðuppbætur á grálúðuna er það að segja, að kaupin gerðust með þeim hætti á eyrinni í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins, að fyrir þetta tímabil voru ákveðnar uppbætur á karfa og ufsa, en ekki á grálúðu. Hlutverk ríkisstj. í þessum efnum var að sjá til þess, að fyrir hendi væri fé til að standa undir verðuppbótum af þessu tagi, en yfirnefndin tók ákvörðun um skiptingu á tegundir og það var gert samhljóða af öllum aðilum í yfirnefnd Verðlagsráðsins. En það er skoðun mín, að þegar þessi mál koma næst til umfjöllunar, sem er 1. jan. n.k., hljóti einmitt ábending hv. 1. þm. Vestf. áðan varðandi verðuppbætur á grálúðuna að koma til athugunar og ákvörðunar.
Hv. 1. þm. Vestf. spurðist fyrir um það, hvað væri framundan varðandi olíugjald og verðuppbætur af þessu tagi. Ég leyfi mér að vísa til þess sem ég sagði í framsögu minni fyrir þessu frv. fyrir nokkrum dögum í þessari hv. d., að þessi atriði bæði hljóta að koma til athugunar við næstu fiskverðsákvörðun. Það gildir um uppbótina, að það mál er svo nátengt fiskverðsákvörðuninni að það reynist líklega nauðsynlegt að gera sérstakar ráðstafanir á því sviði þegar línur fara að skýrast í þessum efnum. Og það sama gildir um olíugjaldið eða hliðstæðu þess. En það er hvorki staður né stund til að ganga frá neinu ákveðnu í þeim efnum núna. Það hlýtur að koma til umfjöllunar á hv. Alþingi þegar fiskverðsákvörðunin liggur fyrir og línur hafa skýrst í þeim efnum.
Ég vil að lokum láta í ljós ánægju mína með það, að hér skuli menn hafa tjáð sig sammála því meginefni sem um er að ræða, þeirri meginstefnu sem í þessu frv. felst, þó að menn geri að sjálfsögðu ýmsar athugasemdir við framkvæmdina og vilji gjarnan ganga betur frá hlutum næst.