25.03.1980
Sameinað þing: 37. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)
Umræður utan dagskrár
Birgir Ísl. Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir þau svör, sem hann gaf við þeim fsp. sem ég beindi til hans í upphafi míns máls, og reyndar þakka hæstv. forseta líka fyrir að hafa leyft að þetta mál væri tekið hér upp utan dagskrár. En vegna orða hæstv. fjmrh. áðan um hvenær ástæða væri til að taka mál upp utan dagskrár, þá vil ég með nokkrum orðum skýra ástæður fyrir því, að ég gerði það að þessu sinni. Það eru tvær meginástæður.
Fyrri ástæðan er sú, að einmitt þessa dagana er verið að ræða í ríkisstj. þetta mjög svo mikilvæga mál sem þýðir, eins og ég sagði í minni upphafsræðu, 3.5 milljarða í viðbótarskattlagningu á landsmenn í formi skatta á bensín vegna þessarar hækkunar sem nú verður. Mér finnst það vera svo mikið mál, að það sé veruleg ástæða til að ræða það hér á hv. Alþingi.
Hin meginástæðan fyrir því, að ég vildi ræða þetta utan dagskrár, er sú, að mér datt það vissulega í hug að umr. hér á hv. Alþ. einmitt nú þessa dagana, meðan þetta mál er til umr. í ríkisstj., kynnu að geta haft einhver áhrif á endanlega niðurstöðu ríkisstj. í þessu máli. Ég er nefnilega ekki sömu skoðunar og hæstv. fjmrh., að engum hafi dottið í hug að um breytingar gæti orðið að ræða að þessu sinni. Mér datt það vissulega í hug; og ég vonast vissulega til að svo geti orðið, vonast eftir því í lengstu lög. Mér datt það í hug vegna þess að á miðju síðasta ári urðu miklar umr. um það innan þáv. hæstv. ríkisstj., að það gengi ekki lengur að ríkið tæki aukna skatta til sín í þessu formi með því að leggja stöðugt sömu prósenttölu á erlendar verðhækkanir bensíns. Þá voru ræddar ákveðnar till. um það innan ríkisstj., að einkum væri um tvær leiðir að ræða í þessu efni: Í fyrsta lagi að láta fasta krónutölu gilda fyrir tolla, landsútsvar og söluskatt, en í öðru lagi að eyða hækkun með því að breyta tollgjöldum í fasta krónutölu, þannig að hækkun hluta opinberra gjalda kæmi ekki fram á útsöluverði.
Þetta mál var þá komið svo langt, að það leit út fyrir að samstaða mundi verða um það innan ríkisstj. að draga úr þessari skattheimtu. Það virtist stranda á þáv. fjmrh. einum. En þá gáfu ráðherrar ríkisstj. — sem margir hverjir eru þeir sömu og sitja nú í hæstv. ríkisstj. — yfirlýsingu um að þessi mál yrðu tekin til endurskoðunar um áramótin. Þess vegna hafði ég vissulega ástæðu til að láta mér detta það í hug nú, þegar þessi hækkun stendur fyrir dyrum, að hæstv. ríkisstj., margir þeir sömu ráðh. og þá sátu, mundi láta verða af því að taka þetta til endurskoðunar. Þess vegna varð ég fyrir miklum vonbrigðum með þau svör sem hæstv. fjmrh. gaf áðan um það, að engum reglum yrði breytt að þessu sinni.
Ég er alveg viss um það, að þó að þurfi að breyta lögum í þessu efni, eins og hæstv. ráðh. gat um áðan, mundi ekki standa á okkur alþm, að greiða fyrir því, að slík lagasetning gæti farið fram hér á Alþ. Við höfum meira að segja orðið við tilmælum frá hæstv. ríkisstj. um að greiða fyrir afgreiðslu frumvarpa, sem hafa í för með sér skattahækkanir, hér á hv. Alþ. til þessa. Því mundum við með glöðu geði að sjálfsögðu — og glaðari geði en um hin frv. — verða við óskum sem fram kæmu af hálfu hæstv. ríkisstj. í þessum efnum.
Hv. 4. þm. Norðurl. e., Stefán Jónsson, gat um það, að þessi umr. gæti farið fram á nokkuð annan hátt og menn yrðu að líta í svolítið dýpri rök tilverunnar til þess að sjá þetta mál í réttu samhengi. Ég er ekki sammála honum um að hin djúpu rök í þessu máli séu þau, að ríkið eigi að taka að sér allan innflutning á olíu og bensíni. Ég skal rökstyðja það örlitið betur, vegna þess að hann saknaði samkeppninnar hjá olíufélögunum. Ég sakna hennar vissulega líka. En olíufélögin eru með ákvörðun ríkisstj. — ákvörðun margra ríkisstj. — bundin við sín bensíninnkaup austur í Rússíá og fá þau það á sama verði öll. En það hefur verið farið fram á það, að reynt yrði að losa um þessar hömlur og losa um þessi bönd, en því miður hefur það ekki gengið. Það strandar ekki á okkur þm. Sjálfstfl. En ég get verið sammála hv. þm. um að það er ekki Khomeini að kenna — eða Rhesa Pahlavi, svo að við bætum honum nú í hópinn — það er ekki þeim að kenna að olíuverð hefur þotið upp á heimsmarkaðinum. Þar eru kannske einhverjar aðrar ástæður fyrir hendi líka, en hitt skal ég fullyrða, að það er íslenskri ríkisstj. að kenna að olía þýtur upp á innanlandsmarkaði á Íslandi. Það sjáum við glöggt, því að af þeim 53 kr., sem bensínverð á að hækka um nú einhvern næstu daga, fá olíufélögin, þessar margumræddu gróðastofnanir, 16 kr. í sinn hlut, en ríkissjóður ætlar að taka 37 kr. í sinn hlut og hækka þar með álögur á landsmenn um 3.5 milljarða á þessu ári. Og af því gengur ekki nema hluti til vegagerðar, hitt fer í eyðsluhít ríkisins.
Ég ítreka þakkir mínar til forseta fyrir að hafa tekið þetta mál hér inn utan dagskrár, en ég ítreka einlæga beiðni mína og ósk um það til hæstv. fjmrh., að hann beiti sér fyrir því innan ríkisstj., nú þegar þessi ákvörðun verður tekin, að nokkuð verði dregið úr skattheimtunni og þar með létt af almenningi þeim álögum sem nú virðist að stefnt að leggja á fólk.