25.03.1980
Sameinað þing: 37. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1412 í B-deild Alþingistíðinda. (1404)

113. mál, útreikningur framfærsluvísitölu í hverju kjördæmi

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Í þessu landi á vitaskuld að búa ein þjóð og ekki tvær. Og allar tilraunir til þess að etja til misklíðar á milli þeirra, sem búa í þéttari byggðum þessa lands, og hinna, sem búa í hinum dreifðari, — allar slíkar tilraunir eru af hinu illa. Það er auðvitað svo, við vitum það, að um margt eru mismun­andi sjónarmið og mismunandi aðstæður. Ég vil trúa því, að þáltill., sem hér er til umr., sé góð og heiðarleg tilraun til þess að bæta þar úr. Og ég vil segja það, að ég er allur af vilja gerður til þess að styðja þessa till., en verð þó að segja að ég skil hana ekki fyllilega.

Ef hér er fyrst og fremst verið að leggja til að hjá Hagstofu Íslands eigi á hverjum tíma með einhverju gefnu millibili að liggja upplýsingar um framfærslu­kostnað í hverju kjördæmi, upplýsingar sem við síðan getum tekið mið af, — ef þetta er ósk um slíkar upplýs­ingar, þá er þetta vitaskuld af hinu góða. En ef við jafnframt eigum að fara að skuldbinda okkur með hlið­sjón af þeim útreikningum sem Hagstofan kann að reikna, þá er ég hræddur um að fljótlega versni í því og það af mörgum ástæðum. Hér erum við auðvitað að tala um gríðarlega flókið mál, t.a.m. það, að við erum ekki búin að leysa nema hluta af vandanum þegar við erum búin að finna framfærsluvísitölu í kjördæmum. Tökum stærstu — og þá á ég við landfræðilega — kjördæmi þessa lands. Það eru gríðarlega mismunandi aðstæður og lífs­kjör innan þessara sömu kjördæma, svo eitt af því, sem flækir þetta mál, sé tínt til.

Ég hygg að það sé spor í rétta átt að hjá tiltekinni stofnun liggi fyrir slíkar upplýsingar um framfærslu­kostnað í kjördæmum. Og ég hygg einnig að Hagstofan væri vel til þess fallin. En á þessu stigi málsins tel ég þó að eingöngu ætti að hafa þær upplýsingar til viðmiðunar og til að byggja á frekari hugmyndir.

Ég vil taka undir flest eða allt sem hv. 1. landsk. þm., Pétur Sigurðsson, sagði um þau vandamál sem við Reykvíkingar stöndum frammi fyrir að því er þetta varðar. Í grg. fyrir þessari till. er t.a.m. nefnt í sambandi við svokallaðan félagsmálapakka Breiðholtshverfi í Reykjavík. Það er rétt, að hér var gerð félagsleg tilraun, sem auðvitað hafði mikið og mest af kostum, en einnig fjölmarga galla. Einn af stærstu göllunum er sá, að það fólk, sem þar býr, þarf nærfellt allt að fara gríðarlega langt til vinnu, hefur af því feikilegan kostnað, — kostn­að sem er svo mikill að sambærilegt fyrirfinnst hvergi í hinum dreifðari byggðum af ástæðum sem auðvitað blasa við. Þetta mundi einnig koma fram í framfærsluvísitölu sem væri svæðabundin, og ég hygg að þetta sé ekki hugsað eingöngu með þarfir hinna dreifðari byggða fyrir augum. Þetta er væntanlega og áreiðanlega hugsað með þarfir landsins alls fyrir augum og þar með hinna þéttari byggða einnig. Og auðvitað hljótum við sem upplýst fólk að fagna slíkri tilraun.

Það er líka rétt, sem kom fram hjá hv. 1. landsk. þm., Pétri Sigurðssyni, að það er mikið vandamál hér í Reykjavík, að hér eru raunveruleg og stór láglauna­svæði. Og þar sem fólk býr við hvort tveggja, svo lág laun að mannsæmandi geta ekki talist og þar að auki skerta félagslega þjónustu, m.a. vegna þess hvað þarf langt að sækja vinnu, eru þetta vandamál, eins og hv. 1. landsk. sagði réttilega, sem eru farin að líkjast vandamálum stórborga. Þetta er eðli málsins samkvæmt, en þetta til­heyrir auðvitað kjarna þessa máls.

Loks vil ég taka undir með hv. 1. landsk. um það, að framfærsla og framfærslukostnaður er vitaskuld stórt mál sem við bæði eigum að hafa um skoðanir og svo traustar upplýsingar sem kosið verður. En náskylt þessu og mál af sama meiði er hinn ójafni atkvæðisréttur. Ég held að það sé vel til fallið að undirstrika rækilega, að auðvitað er atkvæðisréttur til þess fallinn að búa fólki betri lífskjör. Til þess eru þingmenn m.a. Skekkjurnar í landinu eru orðnar afar miklar að því er þetta varðar, og þessi mál má gjarnan skoða saman.

Hins vegar versnar nú eiginlega í því þegar kemur að grg. þessarar till. til þál. Ég verð að segja, að mér koma fremur í hug bókmenntir eins og Basil fursti en Heims­kringla Snorra þegar þessi texti er lesinn.

Hér er t.d. sagt í grg., — og ég játa að skilning minn brast, — hér er sagt: „Að mati almennings er skattur þessi fyrst og fremst lagður á almenna launamenn og aðallega þann hluta þeirra sem enga sjálfstæða atvinnu standar.“ — Ég vona að ég sé með rétt handrit af þessu. Hvaða hluti launamanna er það sem enga sjálfstæða atvinnu stundar? — Og síðan er bætt við: „Frá þessu eru því til margar heiðarlegar undantekningar.“ Þessar heiðarlegu undantekningar, — ætli hér sé átt við skatt­svikara? Og síðan heldur þessi texti áfram. Talað er um „opinbera starfsmenn sem eru tregir til búsetu úti á landi“. Já, það er það. Og síðan kemur: „hinn almenni maður“, sem virðist vera eitthvað annað en opinber starfsmaður. Ég verð að játa það, að ég vissi aldrei, það var aldrei gefið upp, hver þýddi Basil fursta, en það var afskaplega misjafnt að gæðum, málið á þeim texta á sínum tíma, og þykir mér Reykholti hafa farið aftur.

Hér eru fleiri atriðisrósir. Það er kafli um gjaldskrá opinberra fyrirtækja. Þar segir: „Það verður tvímæla­laust að haga gjaldskrám opinberra fyrirtækja á þann veg, að ekki leiði til lífskjaramunar eftir landshlutum, og hitt er jafnfráleitt“ o.s.frv. Já, það stendur hér „prentað upp“ framan á þessari tillögu og ég er sennilega með vitlaust handrit af þessu.

En það er nú svo, að tímarnir breytast. Einu sinni bjuggu í Reykholti menn sem skrifuðu bækur. Þeir skrifa enn í Reykholti. Eitt get ég aðeins sagt: Það var illa ódrukkinn maður sem þennan texta skrifaði.