25.03.1980
Sameinað þing: 37. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)
113. mál, útreikningur framfærsluvísitölu í hverju kjördæmi
Helgi Seljan:
Herra forseti. Það þarf ekki mörg orð um þetta mál og síst af öllu skal ég efna til mikillar umræðu um það, ef það mætti verða til þess, eins og tillagan segir „að bæta úr ástandi deilna“, eins og þar stendur. Deilur eru miklar um þessi mál óneitanlega, og það hlýtur að vera eðli málsins samkvæmt, að menn eru ekki á eitt sáttir um hvernig jafna skuli lífskjör í þessu landi sem allra mest. Það er sama á hvaða þætti er litið.
Jafnréttismál landsbyggðarinnar hér á Alþ. hafa átt undarlega örðugt uppdráttar, það er rétt, miðað við þann meiri hl. sem við höfum þar, landsbyggðarmenn. Það bendir til þess, að við höfum ekki alltaf verið nægilega samstiga. Það bendir til þess, sem ég sagði í umræðu um ágætt frv. hv. þm. Sigurlaugar Bjarnadóttur um daginn í Ed., að við séum kannske öllu duglegri við að reka á eftir þessum málum þegar við erum í stjórnarandstöðu, en ekki alveg nógu dugleg þegar við höfum stjórnaraðstöðuna til þess. Þó hefur.þetta verið misjafnt og öll reynum við nú eflaust að þoka þessu eitthvað til vegar, í hvernig aðstöðu sem við erum.
Ég held að eitt merkasta átakið, sem í þessu hefur þó verið gert, sem sagt skipulegt átak til þess að gera tilraun til jöfnunar á þeim þáttum sem minnt er á í þessari till., hafi verið þau störf sem svokölluð byggðanefnd stóð að á sínum tíma. Sá galli var aðeins á þeim störfum, að þau gufuðu upp af einhverjum óskiljanlegum ástæðum á árinu 1974–1978. En meðan þessi nefnd var og hét og var skipuð ágætum þm. allra flokka var töluvert að gert, m.a. að hennar frumkvæði framkvæmd sú neyslukönnun sem hv. flm. þessarar þáltill. minntist á, — neyslukönnun sem var að vísu miklu takmarkaðri og náði miklu skemmra en við höfðum ætlað okkur, sem stóðum að þeirri till., en átti að byggja á að nokkru leyti þann grunn sem verið er að ræða um í þessari till. En þegar þessari neyslukönnun var lokið var ekkert með hana gert, því miður, því vissulega hefði verið hægt að byggja nokkuð á henni, þó hún væri það takmörkuð að hún væri aðeins miðuð við fjóra þéttbýlisstaði, sinn í hverjum landshluta, og tæki aðeins til takmarkaðra þátta í neyslu fólks almennt.
Það var minnst sérstaklega á símann hérna og það mál tók byggðanefndin alveg sérstaklega fyrir, enda er, eins og hv. þm. Ingólfur Guðnason vék að, óréttlætið í þessum efnum kannske hvergi verra en þar. Hér á Alþ. var þá samþykkt till. flm að unnið skyldi að þeirri jöfnun símgjalda sem hefur hægt og bítandi verið að gerast, en svo óskaplega hægt að helst minnir á ferðalag snigilsins. Og þegar við fórum að ræða þessi mál, símamálin sérstaklega, þá strandaði fyrst og fremst á okkar margfræga kerfi. Þetta var talið óframkvæmanlegt, það var talið útilokað vegna tæknilegra örðugleika ýmiss konar að koma þessari jöfnun á og á því strandaði beinn frumvarpsflutningur byggðanefndar. Menn treystu sér hreinlega ekki allir til þess að ganga þannig á móti tæknimönnunum og sérfræðingunum í þessu efni. Við vorum þó sumir á því, að þarna ætti að láta til skarar skríða, því að annars yrði ekki um jöfnuð að ræða.
Misréttið, sem við landsbyggðarmenn búum við, er vissulega á mörgum sviðum og margvíslegt og skal ekkert úr því dregið. Ég held að það bitni ansi miklu sárar á okkur en hinn skerti kosningarréttur bitnar á íbúum þéttbýlisins. Ég held sem sagt að við finnum miklu meira fyrir því. Bæði finnur landsbyggðarfólkið meira fyrir því efnahagslega og svo gagnvart ýmsu félagslegu réttlæti líka. Ég er hins vegar ekkert að draga úr því, að mönnum líði illa í sambandi við atkvæðisréttinn sinn. Það er góðra gjalda vert að hugsa um hann líka, en ég ætla ekki að líkja þessu tvennu saman engu að síður.
En ef menn vilja þarna koma til móts við okkur, þá höfum við nú stundum, landsbyggðarmenn, sagt: Við skulum jafna þennan margfræga kosningarrétt og þið jafnið svo öll lífskjörin á móti, gjörið þið svo vel. — En við höfum aldrei fengið bein svör á þá leið, að menn væru fullkomlega reiðubúnir til þess arna, enda vissulega við nokkra erfiðleika að etja á báðum sviðum.
Hitt hefur mér aldrei dottið í hug, að kenna Reykvíkingum um hvernig hér er komið. Ég vorkenni Reykvíkingum á margan hátt, og þeim sem búa hér á þessu þéttbýlissvæði, m.a. vegna þess að ég sé mætavel ýmsa kosti þess að búa úti á landsbyggðinni félagslega og menningarlega t.d. fyrir einstaklinginn. Ég dreg ekkert úr því. Og ég er alveg sannfærður um að fólk hér á þessu svæði býr við miklu meiri menningarlega og félagslega mötun heldur en við gerum þó úti á landsbyggðinni. Fólk tekur þar almennt miklu meiri þátt í ýmsu, sem gefur lífinu gildi, heldur en fólk hér á þessu svæði, því miður. Ég dreg ekkert úr þessu. Þess vegna búum við líka m.a. úti á landi, að við tökum þessa kosti inn í dæmið. Hitt er svo annað mál, að við lítum á það sem þjóðfélagslega skyldu, ekki skyldu Reykvíkinga eða annarra þéttbýlisbúa, heldur skyldu þjóðfélagsins í heild, að jafna lífskjör þegna sinna sem allra mest og þá alveg sérstaklega hvað snertir alla opinbera þjónustu. Þar hljótum við að gera til samfélagsins alveg sérstakar kröfur. Það er ekki svo að skilja, að margt hafi ekki áunnist, að ýmsu hafi ekki þokað til betri vegar. En þau dæmi, sem hér hafa verið rakin, sýna að við eigum auðvitað óralangt enn eftir til þess að ná þar fullkomnu jafnrétti. Og án þess að ég sé að efna til deilna við þéttbýlisbúa og kenna þeim um þessa hluti, þá verða menn auðvitað að gera sér það ljóst, að nákvæmlega eins og menn hér á þéttbýlissvæðinu ætla að jafna kosningarréttinn með því að fækka þm. af landsbyggðinni og fjölga þm. hér í þéttbýlinu, þá þýðir jöfnun lífskjara og jöfnun hinnar ýmsu opinberu þjónustu það vitanlega, að hún kemur niður að einhverju leyti á þeim sem við betri hag búa í þeim efnum. Þetta verða menn að gera sér ljóst og ættu að geta talað um það æsingalaust.
Síðast en ekki síst skulum við hafa það í huga, að þjóðfélaginu sem heild ber mikil skylda til þess að lífskjör þegnanna séu sem jöfnust, hvar sem þeir búa á landinu. Auðvitað dreg ég ekkert úr hinu heldur, sem t.d. launþegahreyfingin hefur í þessu efni gert, síður en svo, til þess að jafna lífskjör sinna þegna, þótt þar hafi oft tekist miður en skyldi einnig að jafna lífskjör innan þeirrar hreyfingar. Þetta skulu vera mín lokaorð hér, því að hér á ekki að vera um deiluefni að ræða, heldur skyldu okkar allra til að ná sem mestum jöfnuði. Um það ættum við öll að geta orðið sammála. En það hlýtur að koma við einhverja sem hafa betri aðstöðu og búa við betri kjör en hinir.