25.03.1980
Sameinað þing: 37. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (1406)
113. mál, útreikningur framfærsluvísitölu í hverju kjördæmi
Ingólfur Guðnason:
Herra forseti. Þetta verða nú aðeins örfá orð. Það er út af því sem hv. 1. landsk. þm. sagði hér áðan, mér fannst hann beina orðum sínum til mín, að ég væri að kenna þéttbýlisbúum um þetta. Ég á von á því, að ekki sé sanngjarnt að skilja orð mín þannig. Ég er ekki að kenna neinum þéttbýlisbúa um þetta, engu byggðarlagi. En þetta er svona, og að sjálfsögðu er það okkar sameiginlega þjóðskipulag, sameiginlega þjóðfélag, sem hefur unnið svona að málum. Ég skil vandamál Reykjavíkur. Hér hef ég notið gestrisni ævinlega og hér þykir mér gott að vera. Og ýmsir vinir mínir hafa í vandræðum sínum flúið á náðir Reykvíkinga og þess skipulags sem hér hefur þróast. Vandamálin hér hafa e.t.v. skapast m.a. af þeim lífskjaramismun, sem kynni að vera hér og í þeirra heimahögum. Það er ekki það sem ég er að gera hér, að kenna einum eða neinum um, nema þá þjóðfélaginu öllu. En ég spurði hvort mönnum fyndist það sanngjarnt, að þessi mismunur væri milli þáttbýlissvæða hér við Faxaflóa og svo á Hornafirði, Raufarhöfn, Ísafirði, Siglufirði eða hvar sem það er. Ég ætlaði fyrst og fremst að leiðrétta þennan misskilning hv. þm.
Mér sýnist að samþykkt þessarar till. gæti að ýmsu leyti orðið til hagsbóta fyrir Reykjavík og þéttbýlissvæðin hér syðra. Það hefur oft verið imprað á því hér á Alþ., að það væri ekki eðlilegt og ekki sjálfsagt, að ágætum fyrirtækjum, eins og t.d. Strætisvögnum Reykjavíkur, Hitaveitu Reykjavíkur o.fl., þessum ágætu fyrirtækjum væri haldið í dauðamörkunum vegna þess að maður norður á Hvammstanga eða norður á Raufarhöfn eða vestur á Súgandafirði fengi kauphækkun út á það, ef strætisvagnafargjöld hækkuðu hér í Reykjavík, eða ef því ágæta fyrirtæki Hitaveitu Reykjavíkur yrði gert kleift, skulum við segja, að lifa. Við þurfum að vita um þennan mun þannig að við getum tekið mið af þeirri vitneskju í ýmsum tilfellum. Ég er ekki reiðubúinn að segja hvenær á að taka til hans eða hvernig á að vinna úr slíkum upplýsingum, en fyrst af öllu verður að fá þær.