25.03.1980
Sameinað þing: 37. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)

113. mál, útreikningur framfærsluvísitölu í hverju kjördæmi

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Undir þeim umr., sem hér hafa orðið um till. til þál. um útreikning fram­færsluvísitölu í hverju kjördæmi, komu upp í huga minn ýmsar fyrri umr. um þessi mál, og ég vildi af því tilefni segja hér nokkur orð.

Ég get ekki, eftir að vera búinn að kynna mér till. og hlusta á umr. um hana hér, tekið undir hana sem neina lausn í því máli sem hér er til umr. Það hefur oft hér á Alþ. verið rætt um misjöfn lífskjör meðal manna og það eftir landshlutum. M.a. út af þeim umr. á undanförnum mörgum árum hygg ég að skipuð hafi verið sérstök nefnd, byggðanefnd, 1972 eða um það leyti. Þeir menn, sem í þeirri nefnd störfuðu, lögðu sig áreiðanlega fram um það, með hverjum hætti þeir gætu jafnað lífskjörin best. Samt hefur úrlausnarefni þeirra orðið það erfitt, að ég minnist þess ekki að komið hafi frá þeim nefndarálit. Þó held ég að i nefndinni hafi verið hinir röskustu menn. Ég man ekki um þá nærri alla, en mig minnir að for­maðurinn væri núv. hæstv. sjútvrh. Þeir komu ekki fram með þá hugmynd, að reiknuð yrði út vísitala fyrir hvert kjördæmi. Og mér liggur við að segja að hafi verið afrek út af fyrir sig að losna við slíka uppástungu, því að ég fæ með engu móti séð að það leysi neinn vanda í kjörum manna að reiknaðar séu út margar vísitölur í jafnlitlu landi og Ísland er.

Ég er mjög ánægður yfir því, að ég varð þess var í máli hæstv. félmrh. að hann er um þetta efni nákvæmlega sömu skoðunar og ég, að það, sem þarna gildir, sé að finna út rétta vísitölu fyrir landið allt, byggja hana ekki upp á allt of þröngu svæði, allt of óraunverulega, eins og hér er gert. Það, sem mér sýnist að þurfi að gera í þessum efnum, er í fyrsta lagi að gera nýjan grundvöll að vísitöl­unni og í öðru lagi að styrkja hana með því að kanna framfærsluna hvarvetna í landinu. Ef það er gert af nægilegri gaumgæfni og inn í hana teknir þeir þættir sem máli skipta í sambandi við framfærsluna, þá er ég viss um að það verður miklu vænlegra til þess að fá út nokkuð það, sem stefnir lífskjörunum í rétta og eina átt í landinu, heldur en sú leið sem hér er stungið upp á að fara í þessu efni.