20.12.1979
Neðri deild: 7. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
9. mál, olíugjald til fiskiskipa
Frsm. meiri hl. (Garðar Sigurðsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Það er nú svo, að þegar allir tala um að þurfi að vernda þorskinn, þá hlýtur sókn fiskiflotans að beinast í aðrar tegundir. En þegar verð á þessum tegundum, sem talað er um að megi sækja í frekar en þorskinn, er svo lágt að bersýnilega er tap á slíkri útgerð, þá eru varla margar aðrar leiðir færar en að standa að því á svipaðan hátt og gert var, að verðbæta eitthvað þessar höfuðtegundir, fyrst og fremst karfann og svo ufsann. Spurningin var auðvitað sú, hvar átti að fá peninga í þetta. Það er eilífðarspurning hér að útvega fjármagn í það sem talið er nauðsynlegt. Og mér finnst það satt að segja dálítið „billegt“ af hv. þm. Vestf. að segja í nál. að þeir minnihlutamenn í n. telji að það hefði átt að útvega þessa peninga með öðrum hætti, og þar er punktur á eftir. Það er ekkert sagt hvar. Svona er auðvelt að tala..Við viljum ekki láta taka peningana svona, heldur hinsegin og það er ekkert sagt hvernig hinsegin. Þetta er að mínum dómi heldur ábyrgðarlítið tal.
Um hitt er ég aftur á móti sammála hv. 1. þm. Vestf., Matthíasi Bjarnasyni, nú sem oft áður, að það hefði mátt taka til athugunar hvort ekki væri ástæða til að greiða fyrir veiðum á öðrum fisktegundum. Hann nefndi grálúðuna og kannske af eðlilegum ástæðum. En það mætti einnig nefna aðrar fisktegundir sem lítið hefur verið sótt í og mætti sækja miklu meira í en gert hefur verið. En til þess að gera það þyrfti sérstakar ráðstafanir og jafnvel lagabreytingu, einkum ef menn hefðu í huga að nýta betur skarkola og þykkvalúru, svo að dæmi séu nefnd. Það þyrfti jafnvel að leyfa veiðar á þykkvalúrunni með veiðarfærum sem hefðu miklu smærri möskva en leyfilegt er, vegna þess hvernig sá fiskur hagar sér og hvernig hann smýgur þá möskva sem nú eru leyfðir. Og eins þyrfti að vera hægt að ná í kolann með því þá að breyta að einhverju leyti lögum um fiskveiðar í landhelgi. Á síðasta Fiskiþingi komu fram áskoranir um að verðbæta þessar tegundir, karfa og ufsa, og þá var það sem menn voru helst sammála um að verðbæta karfa allt árið og að verðbæta ufsann nema þegar hann er verðminnstur og tekur ekki lit í vinnslu, þ.e. alla mánuði nema mars og apríl, og síðan að reyna að fá verðuppbætur á grálúðu síðari hluta ársins, frá 1. júní og út árið. Þetta var það sem menn voru sammála um. Það eru nú þegar fengnir tekjustofnar í þessu skyni, nema náttúrlega fyrir grálúðuna sem kemur nýlega inn í dæmið, og það þarf að afla tekna til að hægt sé að verðbæta hana. Ef hv. þm. Matthías Bjarnson þekkir einhverjar patentlausnir til að finna peninga til þess, lausnir sem koma engum illa og kannske liggja á glámbekk, þá væri æskilegt að hann gæti bent á þær. Það eru auðvitað ýmsar leiðir til að ná í þessa aura og ég tel sjálfsagt að gera það. Það er mín skoðun.
Ég sé nú ekki ástæðu til að fjalla meira um það sem hv. 1. þm. Vestf. sagði í þessu efni, en vil aðeins drepa á annað, sem mörgum okkar þótti þannig vaxið að kannske mætti finna einhverja betri leið til að reyna að bæta útgerðinni þessa geysilegu olíuhækkun, þessa hreinu sprengingu á olíuverði. Þessi hugmynd, að koma upp þessu kerfi með 12% olíugjaldi í stað rúml. 9, er auðvitað leið — og sú leið sem hefur verið notuð og hefur komið í góðar þarfir, það er rétt. Ég álít að við verðum að samþykkja þetta frv. ósköp einfaldlega vegna þess, að ef við gerum það ekki, þá veit ég ekki hvernig fer, því að það er verið að samþykkja að greiða þetta fyrir þann tíma sem liðinn er. Hins vegar er ég alls ekki viss um að þessi olíugjaldsleið eigi að vera til frambúðar. Það mætti hugsa það mál betur og kanna hvort einhverjar aðrar leiðir séu ekki færar, því að sannleikurinn er sá, að þessi aðferð, ein olíugjaldsprósenta á aflaverðmæti yfir allt landið fyrir öll veiðiskip, hvaða veiðar sem þau stunda og við hvaða skilyrði menn stunda sína útgerð, kemur ójafnt niður. Það er augljóst hverjum þeim sem eitthvað hefur kynnt sér sjávarútveg á Íslandi, að slík ein allsherjarregla kemur misjafnlega vel niður fyrir hinar ýmsu útgerðaraðferðir. Það er ekki sama hvort menn eru að veiða á netum og eyða lítilli olíu eða hvort þeir eru á togveiðum á bátum sem geta ekki nýtt svartolíu og fá náttúrlega miklu minna aflaverðmæti en togarar, sem þýðir það að olíukostnaður verður langtum hærri prósenta en nemur þessum 9%, jafnvel þreföld, og hefur heyrst um enn hærri prósentu af afla.
Ég veit að hér á Suðurlandi, hjá togbátunum sem þar stunda veiðar, er algengt að menn eru með olíukostnað upp á yfir 20% og jafnvel yfir 30%, þannig að þar vantar auðvitað mikið upp á að olíugjaldið dugi, enda er kannske ekki ástæða til þess að það nái yfir alla þessa kostnaðaraukningu. Annars staðar á landinu hagar þannig til, að ef menn gera t.d. út svartolíutogara á Vestfjörðum, sem þarf stutt að sækja og fiskar mikið, þá þýðir það einfaldlega að menn fá olíuna frítt og stinga svo afgangsaurum í vasann. Og heyrst hefur að menn hafi gert út skipin sín kannske heilan mánuð á frírri olíu, á afganginum á olíugjaldinu. Svona er aðstaðan misjöfn. Svo gildir eitthvað enn annað um loðnuflotann o.s.frv. Ein regla yfir svona margbreytilegt og misjafnt svið er aldrei góð, og í sjávarútvegi getur hún eiginlega aldrei gengið. Þess vegna væri auðvitað æskilegast að finna einhverja þá leið sem kæmi svolítið jafnar niður, þannig að allir fengju greiddan álíka mikinn hluta af þeim umframkostnaði sem verður vegna olíuverðshækkana. Það er kannske vandasamt og jafnvel ekki hægt að finna slíkar reglur, en ég segi þetta til umhugsunar, vegna þess að þetta er mjög óréttlátt eins og það hefur verið. Ég lít svo á að þetta þurfi að taka til vandlegrar meðferðar og kanna hvort ekki sé hægt að greiða betur úr þessu en gert hefur verið, þannig að það fyrirkomulag, sem gilt hefur í þessu efni, þurfi ekki að standa til eilífðar. Og ég lýsi því yfir fyrir mína hönd, að með því að samþykkja þetta frv. með þessu lagi er ég ekki þar með að samþykkja að þessa aðferð eigi að nota í framtíðinni.