25.03.1980
Sameinað þing: 37. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1431 í B-deild Alþingistíðinda. (1417)
81. mál, innkaup opinberra aðila á íslenskum iðnaðarvörum
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég hef áður hér á hv. Alþ. lýst fylgi við þá till. til þál. sem hv. 6. þm. Suðurl., Eggert Haukdal, flytur hér. Ég hygg að það hafi verið snemma á þingi haustið 1978 sem hann lagði fram þessa till., hún kom hér til umr. nokkru síðar og hlaut, eins og hann gat um, góðar undirtektir, en ekki afgreiðslu.
Ég tel það mjög góðra gjalda vert að þessu máli sé haldið vakandi með þeim hætti sem gert er með endurflutningi þessarar þáltill., og ég er því mjög meðmæltur að hún hljóti eðlilega afgreiðslu og samþykki á hv. Alþ. Ég tel að með því væri undirstrikað gildi þess að stuðla að ákveðinni opinberri innkaupastefnu til stuðnings íslenskum iðnaði og íslenskri iðnþróun, sem þetta getur verið liður í ef vel tekst til.
Ég tel rétt að ég greini í stuttu máli frá þeirri meðferð sem þessi mál hafa fengið, þó í litlu sé, hjá opinberum aðilum að undanförnu og nefndum á þeirra vegum.
Í grg. með þáltill. kemur það fram, að starfshópur var settur á fót 1977 og skilaði áliti á fyrsta ársfjórðungi 1979 eða fyrir nokkurn veginn réttu ári. Það var að vísu bráðabirgðaálit sem ýtt var á eftir að fá fram um þetta efni, en þó betra en ekki. Eftir að þetta álit lá fyrir lét ég fara yfir það í iðnrn. og kanna möguleika á að taka á þeim tillögum sem þar var að finna. Það er rétt að fram komi, að það varð niðurstaðan að þarna kæmu fram nokkrar gagnlegar ábendingar, en flest af því þyrfti þó frekari athugunar við og nauðsynlegt væri að tekið væri á málinu milli rn. og i samvinnu við samtök iðnaðarins og fleiri aðila. Þannig var komið sögu þegar ríkisstj. fór frá völdum s.l. haust, að ákveðið var milli fjmrn. og iðnrn. að taka þetta mál til meðferðar, og voru til kvaddir aðilar á vegum þessara rn. sem áttu að fjalla um málið og gera tillögur til viðkomandi ráðh. og ríkisstj. um málsmeðferð í einstökum tilvikum.
Framhald varð ekki á þessu eftir stjórnarskiptin. Veður hafa nú verið heldur ókyrr í íslenskum stjórnmálum og haft sín áhrif í stjórnarstofnunum og rn., svo að það kannske undrar menn ekki þó að ekki hafi mikið hreyfst í málaflokki sem þessum, og eru það raunar ýmsir stærri málaflokkarnir sem hafa legið hjá garði og lítið hreyfst á undanförnum mánuðum vegna þeirra sviptivinda sem gengið hafa yfir í stjórnmálalífi okkar. En við myndun nýrrar ríkisstj. var þetta mál til umr., eins og hér hefur verið getið um og endurspeglast í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj., og það er ásetningur hennar og ásetningur minn sem iðnrh. sérstaklega að stuðla að því að á þessu máli verðir tekið fyrr en seinna. Ég tel það svo þýðingarmikið að skyldugt sé að freista að ná þar fram árangri eins fljótt og kostur er.
Þetta mál er hins vegar ekki einfalt í rauninni og það eru ekki nein töfraráð sem við höfum til eflingar iðnaði eftir þessum leiðum einum saman. En hér er þáttur á ferðinni, einn af mjög mörgum, sem við þurfum að horfa til til að efla iðnað okkar á heimamarkaði og getur jafnframt í vissum tilvikum verið til stuðnings útflutningsiðnaði okkar.
Eðli sínu samkv. lúta opinber innkaup að því, að opinberir aðilar beini viðskiptum sínum til innlendra framleiðenda fremur en til innflytjenda og þar með til erlendra framleiðenda. En til þess að það megi takast þarf ákveðna samræmingu, upplýsingar að liggja fyrir og jafnvel þarf að laga framleiðsluna að þörfum hinna opinberu aðila í vissum tilvikum. Það á að vera unnt þegar um verulegt magn er að ræða, og einmitt að því leyti getur opinber innkaupastefna verið liður í iðnþróun og nýiðnaði.
Nefnd, sem starfar á vegum iðnrn., svokölluð Samstarfsnefnd um iðnþróun, fjallaði um þetta mál á liðnum vetri, þ.e. veturinn 1978–1979, og ályktaði um það í nefndaráliti sem lagt var fram á hv. Alþ. vorið 1979. Ég held að það geti verið til glöggvunar í þessu máli að ég vitni í grg. þessarar nefndar, með leyfi hæstv. forseta. Þar segir:
„Það er löngu viðurkennt erlendis að það er þjóðhagslega hagkvæmt að hið opinbera kaupi þær vörur og þjónustu, sem það þarf, frá fyrirtækjum síns heimalands. Hér er um mikilvægan efnahagslegan hvata í formi sérstakrar eftirspurnar að ræða, sem valdið getur miklu um vöxt og afkomu einstakra fyrirtækja og um efnahagsleg margfeldisáhrif, sem af starfsemi þeirra leiðir. Þá hefur verið sýnt fram á, að vegna skatttekna og efnahagslegra hliðaráhrifa geti verið hagstætt fyrir ríkið að kaupa af innlendum fyrirtækjum, jafnvel þótt verðið frá þeim sé allt að 20–30% hærra en verð erlendra samkeppnisvara.
Að vísu er gert ráð fyrir því í EFTA- og EBE-samningum, að almennt sé ekki beinlínis mismunað milli innlendra og erlendra fyrirtækja. En bæði eru margar mikilvægar undanþágur frá þeirri reglu og jafnframt eru innkaupareglur svo og margs konar ívilnanir víða með þeim hætti að í reynd er um verulega mismunun að ræða. Í Bandaríkjunum er þó gengið hvað lengst og er mjög erfitt fyrir erlend fyrirtæki að selja opinberum aðilum í Bandaríkjunum vörur og þjónustu.
Lagt er til“ — þ.e. af nefndinni — „að tekin verði upp virk opinber innkaupastefna, sem styðji við iðnþróun. Sú stefna getur falist í mjög margvíslegum aðgerðum og er hér drepið á nokkrar hinar helstu:
1. Ráðinn verði sérstakur starfskraftur til Innkaupastofnunar ríkisins, sem starfi samkv. sérstöku umboði og starfsreglum, sem miði að því að koma á virku upplýsingastreymi milli stofnana og fyrirtækja ríkisins og innlendra framleiðslufyrirtækja um ríkiskaupin. Enn fremur fái hann það hlutverk að hafa áhrif á hönnun og útboðsgerð, þannig að hún verði við hæfi íslenskrar iðnaðarframleiðslu að því er varðar stærð, greiningu verkþátta, tryggingarskilmála og skilafresti. Hefði hann t.d. forgöngu um fundi með innlendum fyrirtækjum og skýrði fyrir þeim væntanlegar framkvæmdir og innkaup og gæfi aðrar almennar upplýsingar um opinber innkaup.
2. Á móti þessu þarf að koma virkt upplýsingastreymi af hálfu samtaka iðnaðarins til opinberra aðila um getu og möguleika íslensks iðanaðar. Bent er á útgáfu lausblaðabókar um fyrirtæki og vöruúrval þeirra. Jafnframt verði mikil áhersla á það lögð við íslensk fyrirtæki, að kröfum um gæði og afhendingartíma sé fullnægt.
3. Tekin verði upp sérstök skráning á öllum innkaupum ríkisins á vörum, þjónustu og verklegum framkvæmdum, þannig að fyrir liggi hver stærð og samsetning ríkismarkaðarins er. Skráning verði í því formi sem hentað geti sem leiðbeining fyrir vöruþróun og nýframleiðslu. Reynist þetta of viðamikið mætti hafa forgangsáherslu á þeim vörutegundum, sem hægt væri að framleiða hér og þegar eru framleiddar.
4. Settar verði fastari reglur um innkaup á vegum ríkisstofnana, m.a. með því að samræma þau og nota meira en hingað til lokuð útboð til innlendra aðila svo og með því að sameina mörg smærri samkynja innkaup í stærri og færri innkaup. Mótuð verði stefna um vissan forgang innlendra fyrirtækja á grundvelli þjóðfélagslegrar arðsemi auk beins samanburðar á útboðsupphæð.
5. Reynt verði að staðla innkaup og þarfir hins opinbera (vöru- og þjónustukaupastaðall), þannig að hægt sé að bjóða út mörg smærri innkaup í einu og að með þessu verði stuðlað að vöruþróun sem komið geti að notum víðar en hjá því opinbera og þannig skapað stærri markað.
6. Lögð verði áhersla á það af hálfu ríkisins að styðja við nýframleiðslu með því að kaupa hana og prófa í notkun eiginleika og notagildi slíkrar framleiðslu framleiðendum að kostnaðarlausu. Í sama skyni verði tekin upp sá háttur að fela einstökum fyrirtækjum eða fyrirtækjahópum í samvinnu við rannsókna- og þróunarstofnanir að hanna nýjar vörur eða reyna nýjar aðferðir við framleiðslu og framkvæmdir. Í tengslum við þetta starf væri gagnlegt að setja niður sérstakar tækniþróunarnefndir í þeim tilgangi að skilgreina raunhæf og æskileg tækniþróunarmarkmið á breiðum grundvelli, sem síðan yrði unnið að á rannsókna- og tæknistofnunum og ríkisinnkaupum beint að því að styðja það starf síðan.“
Ég vil svo bæta því við, að samstarfsnefndin hefur á fundum sínum nýverið haft þessi mál til meðferðar samkv. beiðni iðnrn. og þá bæði efnislega, efnisþætti þess í framhaldi af tillögum sínum, svo og til að leggja á ráðin um hvernig best verði náð árangri í einstökum atriðum og hvaða tökum málið verði tekið á vegum opinberra aðila til þess að árangri megi ná fyrr en seinna.
Það hefur komið fram við þessa umr., að aðrir opinberir aðilar en ríkið hafa sinnt þessum málum, og þar hefur verið vitnað í stefnumörkun eða viljayfirlýsingu af hálfu Reykjavíkurborgar, sem ég tel að sé mjög lofsverð viðleitni til að styðja við innlendan iðnað. Sveitarfélögin eiga að sjálfsögðu að geta komið inn í þessi mál ekki síður en ríkið, og því er það alveg réttmætt, sem fram kemur í þessari þáltill., þar sem lagt er til að samstarf sé haft við Samband ísl. sveitarfélaga við athugun á þessum málum.
En það er vert að minna á það hér, að fleiri en opinberir aðilar geta hér komið að máli og stuðlað að eflingu innlends iðnaðar með innkaupastefnu. Einkaaðilar eiga að sjálfsögðu að geta átt hlut að máli með hliðstæðum hætti með því að sameinast um innkaup af sinni hálfu og beina þeim fremur til innlendrar framleiðslu en til innfluttrar, a.m.k. ef gæði eru sambærileg.
Ég vil aðeins nefna eitt dæmi, sem ég held að væri athugandi í þessu sambandi, en það er sá stóri viðskiptaaðili sem er sjávarútvegurinn í landinu og fiskiðnaðurinn í landinu með öllum þeim vörum sem þessir aðilar þurfa á að halda. Það hefur e.t.v. verið eitthvað hugað að þessum málum á vegum samtaka þessara aðila, þó að mér sé ekki kunnugt um það í einstökum atriðum, en ef þeir legðu saman og leituðust við að koma á innkaupaþjónustu á þeim vörum, sem þeir þurfa á að halda, er ég ekki í vafa um að með samstarfi við íslenska framleiðendur mætti ná þarna umtalsverðum árangri.
Svo er einnig á fleiri sviðum og aðrar atvinnugreinar þurfa á rekstrarvörum af ýmsu tagi að halda og þjónustu, þ. á m. landbúnaðurinn. Aðilar á vegum þessara atvinnugreina gætu hlúð að iðnaði okkar, bæði framleiðsluiðnaði og þjónustuiðnaði, með því að beina viðskiptum til þeirra. Og ekki má gleyma í þessu sambandi útgerðaraðilum í sambandi við viðhaldsþjónustu á skipakosti okkar, en þar er sem betur fer vaxandi skilningur á því að beina viðskiptum til innlendra aðila og raunar markvisst að því unnið að þeir séu samkeppnishæfir og geti boðið fyrirgreiðslu með eðlilegum hætti.
Herra forseti. Það hefur komið fram í máli manna hér, að þau efni, sem hér eru til umr. — opinber innkaup, séu í mun betra horfi erlendis en hér. Ég hef ekki þekkingu til að dæma það í einstökum atriðum, en ég hef þó orðið var við að það er til umræðu í nágrannalöndum okkar að bæta verulega um í þessum efnum, að auka innkaup á vegum opinberra aðila þar, svo að við þurfum sannarlega að hyggja að þessum málum á okkar vettvangi til að hagnýta okkur það tækifæri sem þarna er um að ræða til að styðja við innlendan iðnað.
Ég minnist þess, að á nýafstöðnu Norðurlandaráðsþingi var gerð samþykkt um að safna upplýsingum á vegum norrænna aðila, tilkvaddra aðila, um opinbera innkaupastefnu á Norðurlöndum. Ég geri ráð fyrir að við getum haft nokkurt gagn af þeirri könnun.
Það mætti af tilefni þessarar till. margt segja um iðnaðarmál okkar og nauðsynina á eflingu iðnaðar í landinu, eins og hér hefur komið fram í máli manna. En þar sem ástæður eru til að taka þau mál upp í öðru samhengi og þegar er liðið mjög á þennan dag og farið að nálgast miðnætti ætla ég ekki að lengja mál mitt með því að fara út fyrir það efni sem till. raunverulega býður heim að rætt sé.