26.03.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1435 í B-deild Alþingistíðinda. (1419)

116. mál, fjárlög 1980

(Eiður Guðnason):

Herra forseti. Það væri sannarlega að bera í bakkafullan læk ef ég færi að flytja langan pistil um aðdraganda þess fjárlagafrv. sem nú er hér til 2. umr. Á örfáum mánuðum hafa þm. fengið í hendur þrjú frv., hvert með sínu lagi, öll fyrir árið 1980. Um þetta ætla ég ekki að hafa fleiri orð, þótt e.t.v. þætti ýmsum svo sem ástæða væri til þess.

Fjvn. var kjörin áður en mynduð hafði verið ríkisstj. að loknum desemberkosningunum. Formannskjör, kjör varaformanns og kjör ritara fór einnig fram áður en meirihlutastjórn hafði verið mynduð. Því er það svo nú, að bæði formaður n. og varaformaður eru í raun í minni hl. í n., en standa þó, svo sem venja er til, að þeim till. sem ég mæli fyrir á eftir, en að þeim stendur n. öll.

Nm., að undanskildum þeim Lárusi Jónssyni, Friðrik Sophussyni og Guðmundi Karlssyni, standa einnig að þeim till. sem eru á sérstöku þskj., 229, og fjalla um nokkra aukningu fjármagns sem beinist til einstakra framkvæmdaliða, svo sem til byggingar sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva. Þeir þrír hv. þm., sem hér voru áður nefndir, tóku ekki afstöðu til þessara till. Að auki flyt ég einn brtt. á sérstöku þskj. og mun sérstaklega gera grein fyrir þeim í lok þessarar ræðu, þegar ég hef gert grein fyrir þeim till. sem n. öll stendur að.

En áður en vikið er að einstökum till. til breytinga, sem n. flytur, þykir mér rétt að gera í fáeinum orðum grein fyrir starfi fjvn., svo sem venja hefur verið við 2. umr. fjárlaga.

Þegar fyrrv. formaður n., hv. þm. Geir Gunnarsson, mælti fyrir áliti fjvn. í desember 1978, við 2. umr. þá sagði hann m.a., með leyfi forseta:

„Mikill tími hefur farið í það hjá fjvn. að ræða við forstöðumenn ríkisstofnana og sveitarfélaga og ýmsa aðila aðra um beiðnir þeirra um fjárveitingar. Óskum um slík viðtöl virðist fjölga með ári hverju og ávallt er sú hætta fyrir hendi, að of lítill tími verði til þess að sinna öðrum nauðsynlegum störfum: athugunum, mati og af­greiðslum, og oft hefur svo farið að tími til þeirra verka hefur orðið æði lítill.“

Og síðar í ræðu sinni sagði hann einnig, með leyfi forseta:

„Því er það skoðun mín, að að því beri að stefna að fjvn. hefji viðtöl áður en þing er sett og hafi a.m.k. lokið öllum viðtölum við sveitarstjórnarmenn þegar þing hefst.“

Því var það, að sú fjvn., er starfaði á undan þeirri er nú situr, tók til starfa skömmu áður en þing hófst 10. okt. N. hóf fundi 1. okt. og hélt fundi fram til 9. okt. Á þeim dögum ræddi n. alls við forstöðumenn og fulltrúa 56 sveitarfélaga, stórra og smárra, og hlýddi á óskir þeirra og greinargerðir og forvitnaðist um framkvæmdir og fjárhagsstöðu. N, ræddi við forustumenn allra þeirra sveitarfélaga sem þess óskuðu. Þetta held ég að tví­mælalaust hafi verið rétt og skynsamleg vinnubrögð, og hefði vissulega verið sýnu þrengra og erfiðara um vik hjá n. að starfa nú á síðustu vikum ef ekki hefði verið búið að ljúka þessu af. Þessari reglu ber tvímælalaust að fylgja í framtíðinni.

Þá er þess og að geta, að tillögur ýmissa rn. og ríkis­stofnana hafa borist seint og verið raunar að berast alveg fram á síðustu daga. Þessu er brýnt að breyta og setja um það ákveðin tímamörk hvenær tillögur skuli berast, ella verði ekki unnt að taka þær til greina, sem sagt setja skilafrest fyrir beiðnir til fjvn.

Það var í desembermánuði að sú n., sem nú skilar till., var kjörin, en hún tók formlega til starfa strax í byrjun jan., um leið og þing kom saman. Þótt þá væri ekki fjárlagafrv. formlega til meðferðar tók n. til starfa með eðlilegum hætti. Hún vann þau verk og hefur unnið sem unnt var að vinna án þess að hafa formlega frv. til með­ferðar.

Að venju var rætt við fulltrúa margra ríkisstofnana, félagasamtaka svo og einstaklinga sem koma vildu mál­um á framfæri við n. Undanfarin ár hefur þróunin verið sú, að sívaxandi hluti af tíma fjvn. hefur farið til slíkra viðtala. Það er auðvitað nauðsynlegt að marki og borg­ararnir hljóta að eiga rétt til að flytja og kynna mál sín fyrir fjárveitingavaldinu. Þó er það svo með þetta sem annað, að hér verður hóf að hafa á, og ég held að brýna nauðsyn beri til að setja um það fastar reglur, hvernig og hvenær þessi viðtöl eigi sér stað, þannig að þau teygist ekki um of inn á þann tíma, sem n. hefur til starfa, og sú hætta skapist ekki, að of lítill tími verði til ráðstöfunar fyrir hin raunverulegu störf n., gagnrýna skoðun á fjár­málum ríkisins og tillögur til úrbóta. Þetta held ég að beri að hafa til hliðsjónar í störfum fjvn. nú og ævinlega.

Eins og ég minntist á áðan hefur svo farið sem oftar, að n. skilar ekki sameiginlegu áliti um allar greinar. Engu að síður er rétt og skylt að taka fram, að samstarfið í fjvn. hefur vissulega verið með miklum ágætum. Vil ég nota tækifærið til að þakka meðnm. mínum samstarfið og fyrir að hafa umborið reynsluskort formanns og hafa unnið af heilindum og drengskap í hvívetna. Þá vil ég enn fremur þakka Magnúsi Ólafssyni starfsmanni n. fyrir hans ágætu störf og þá aðstoð sem hann hefur veitt nefndinni. Það fyrirkomulag er tvímælalaust til mikilla bóta að ritari fjvn. sé jafnframt að hluta starfsmaður fjárlaga- og hag­sýslustofnunar. Þarna skapast rétt og eðlileg tengsl á milli. — Sömuleiðis er rétt og skylt að þakka hagsýslu­stjóra og öllum starfsmönnum hans sem lagt hafa hönd á plóginn við þessi störf.

Sitthvað mætti fleira segja almennt um fjárlagagerðina og vinnu fjvn. Ýmsum þykir sem svo, að tími sé kominn til að taka upp breytt vinnubrögð í sambandi við gerð fjárlaga. M.a. hefur þar verið bent á svokallaða „núll­grunnsáætlanagerð“ sem víða hefur rutt sér til rúms og er í sem stystu máli fólgin í því að byrjað er á núlli eða jafnsléttu með hverja einustu stofnun og þarfir hennar metnar að nýju í hvert skipti sem til greina kemur að úthluta henni fjármagni.

Taka ber undir þá skoðun, sem oft hefur verið haldið fram, að æskilegt væri að fjvn. eða undirnefnd hennar gæfist meiri tími til að sinna eftirlits- og aðhaldsstörfum. Skylt er að geta þess, að af hálfu ýmissa ríkisstofnana hefur verið farið út á þessa braut, bæði af hálfu ríkis­endurskoðunar og fjárlaga- og hagsýslustofnunar, og er það rétt og því ber að halda áfram. Það er þó ekki nóg að settar séu fram í prentuðu máli og glöggum skýrslum tillögur til úrbóta sem síðan er ekki komið í framkvæmd. Þarna virðist mér og hefur lengi virst að vantaði hlekk á milli. Skýrslurnar um úrbætur og tillögurnar til bóta fá að rykfalla í stofnanahillum, en ekkert er gert. Þarna held ég að fjvn. hafi nokkru hlutverki að gegna.

Auðvitað fer ekki hjá því, að rekstrarörðugleikar fjölmargra ríkisfyrirtækja og ríkisstofnana komi í einni eða annarri mynd til fjvn. eðli máls samkv. Það vekur mér þó æ meiri furðu hvernig það gerist með hverja ríkisstofnun og ríkisfyrirtæki á eftir öðru, að þeim virðist synjað um eðlilegar gjaldskrárhækkanir til jafns við aðr­ar hækkanir sem eiga sér stað. Þetta veldur því oft og tíðum að þessi fyrirtæki ýmist safna skuldum eða eignir þeirra drabbast niður eða dregið er úr rekstri og þjón­ustu. Þetta á sér ærið oft þá skýringu, sem öllum er hér kunn, að gjöld ýmissa stofnana koma inn í margnefnda vísitölu og horfa þar til hækkunar og þar með til launa­hækkana. Þetta er eitt af því sem bendir enn til þess, hve brýnt er að breyta þessu kerfi.

Mun ég nú í tiltölulega stuttu máli gera grein fyrir þeim breytingum sem n. leggur til að gerðar verði á einstökum liðum frv., en n. hefur að venju gert till. um skiptingu fjár til framkvæmdaliða, við þessa umr., nema að því er B­-hlutafyrirtækin svonefndu varðar svo og nokkra aðra liði, ásamt með 6. gr. fjárl., en það verk bíður 3. umr. Mun ég nú skýra brtt. n. við einstaka liði.

Er þá fyrst að telja, að framlag vegna Húss Jóns Sig­urðssonar í Kaupmannahöfn er lagt til að hækki um 8 millj. og verði 26.5 millj. Þetta framlag er til komið vegna lagfæringa á húsinu, sem taldar eru brýnar og nauðsynlegar þar sem húsið mun að hluta til liggja undir skemmdum, en þetta hús er, svo sem þingheimur veit, í vörslu Alþingis og þar fer fram mikil og vaxandi starf­semi á vegum Íslendinga í Danmörku.

Náttúrufræðistofnun Íslands: Þar er liðurinn „Sér­tekjur“ að upphæð 3 millj. kr. felldur niður einfaldlega vegna þess að þetta mun á sínum tíma hafa komið til vegna misskilnings. Ekki er um að ræða að þessi stofnun hafi sértekjur.

Menntaskólinn á Laugarvatni: Þar er gert ráð fyrir að gjaldfærður stofnkostnaður hækki um 4 millj. og verði 12 millj. Þetta er vegna ýmiss konar framkvæmda, m.a. við frágang lóða og bílastæða.

Æfinga- og tilraunaskóli kennaraháskólans: Þar er gert ráð fyrir að gjaldfærður stofnkostnaður hækki um 3.6 millj. og verði 12 millj: Er þar sömuleiðis um að ræða lagfæringu á lóð og umhverfi, sem vart verður sagt að til þessa hafi verið hinu opinbera til sóma, svo sem víðar mun því miður raunin í kringum opinberar byggingar.

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: Þar hækkar gjaldfærð­ur stofnkostnaður um 58.8 millj. og verður 200 millj. kr. M.a. er það ætlað til áframhaldandi hönnunar og undir­búnings vegna svonefndrar E-álmu.

Fjölbrautaskólinn á Akranesi: Gjaldfærður stofn­kostnaður hækkar þar um 8 millj. í 40 millj. Framhaldsskóli í Vestmannaeyjum: Gjaldfærður stofnkostnaður hækkar úr 7.5 millj. í 10 millj:

Framhaldsskóli á Selfossi er nýr liður, þar sem kemur inn stofnkostnaðarframlag að upphæð 5 millj. kr.

Liðurinn Hússtjórnarskólar. Þar er hækkun lögð til um 10 millj. vegna Húsmæðraskólans á Laugarvatni. Þar er m.a. um að ræða endurbætur og viðgerð á nýju húsi, sem raunar mun ekki fulllokið við, en þessar endurbæt­ur er nauðsyn að framkvæma, m.a. vegna leka á húsinu, sem ekki er einstætt fyrirbæri í íslenskum nýbyggingum.

Liðurinn Iðnskólar er óbreyttur að upphæð frá því sem er í frv. Í því sambandi er þess að geta, að fjölbrauta­skólar og framhaldsskólar taka nú í vaxandi mæli við þeim hlutverkum sem iðnskólar áður gegndu, en sund­urliðun á framlögum til fimm iðnskóla er á þskj. 218.

Tónlistarfræðsla: Þar er nýr liður: Tónlistarskólar, stofnkostnaðarstyrkir, samtals að upphæð 8.5 millj. kr. Þar er einnig að finna sundurliðun í till. n. Eru hæstu framlögin m.a. til Söngskólans í Reykjavík vegna hús­næðiskaupa, svo og til Tónlistarskólans á Akureyri, einnig vegna húsnæðiskaupa.

Þá er í brtt. fjvn. á þskj. 218 að finna sundurliðun á fjárveitingu til héraðsskóla.

Gjaldfærður stofnkostnaður við Skálholtsskóla er hækkaður um 3 millj. kr. og verður þá samtals 7 millj. Þetta er ætlað til að ljúka að hluta ýmsum frágangi og lagfæringum sem eftir eru í því húsi.

Framlög til byggingar grunnskóla og íbúða fyrir skólastjóra hækka um 278 millj. kr. Verða þetta þá 2 milljarðar 778 millj. kr. Skipting þessara liða er sýnd í sérstöku yfirliti sem þegar hefur verið dreift hér. Þessi liður hækkaði nokkuð í meðförum fjvn. og alls mun hækkunin frá síðustu fjárlögum um 41.4%. En líklega eru allir hv. þm. sammála um að hér hefði betur mátt gera ef unnt hefði verið.

Þá er komið að lið sem heitir: Stofnanir afbrigðilegra barna. Þar er gert ráð fyrir að laun hækki um 1.5 millj. vegna launa sérfræðings í hálfu stöðugildi hálft árið 1980 við Öskjuhliðarskóla, þ.e. þá starfsemi á vegum skólans sem fram fer í Kjarvalshúsi, en þar er rekin greiningar­stöð.

Dagvistarheimili, stofnkostnaður: Till. fjvn. gera ráð fyrir að sá liður hækki um 50 millj. og verði samtals 550 millj. 40 þús. kr. Er það tæplega 53% hækkun frá fyrra ári. Skipting á einstakar framkvæmdir er sundurliðuð og sýnd í brtt. n. Eru þar talin upp þau verk og þær fram­kvæmdir sem þegar eru hafin svo og nýframkvæmdir.

Á liðnum Náms- og fræðimenn hækkar framlag til Menntastofnunar Bandaríkjanna á Íslandi um 400 þús. og verður samtals 1 millj. Hér er um að ræða stofnun sem áður nefndist Fulbright-stofnunin og hefur milligöngu um úthlutun námsstyrkja og ferðastyrkja til íslenskra stúdenta er nám stunda í Bandaríkjunum. Á móti þessu framlagi kemur verulegt framlag frá Bandaríkjastjórn. Í þessu sambandi er rétt að geta þess, að vegna þeirra breytinga, sem orðið hafa í Bretlandi þegar skólagjöld hafa verið stórhækkuð við breska háskóla að stefnu bresku ríkisstj., sækja nú æ fleiri íslenskir stúdentar vest­ur um haf til náms.

Liðnum Styrkir til útgáfustarfa mun samkv. venju verða skipt í fjvn.

Fullorðinsfræðsla, félagsmálanámskeið: Þar er um nýjan lið að ræða og til þess eru veittar 2 millj. kr. Hér er um að ræða félagsmálanámskeið á vegum samvinnu­hreyfingarinnar.

Þjóðminjasafn Íslands, liðurinn Til sveitarfélaga: Lagt er til að hann hækki um 17.5 millj. og verður þá að till. n. 38 millj. samtals. Þessum lið hefur n. skipt nánar til einstakra aðila í samráði við þjóðminjavörð og skal nú gerð grein fyrir þeirri skiptingu: Byggðasafn Akraness og nærsveita 800 þús. kr. „Til viðgerðar á kútter Sigur­fara 1 millj. Byggðasafn Snæfellsness til viðgerða á Norska húsinu í Stykkishólmi 800 þús. Byggðasafnið á Hnjóti 700 þús. Minjasafnið á Akureyri 3 millj. Byggðasafn Austur-Skaftfellinga, Höfn, 1 millj.

Byggðasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga 300 þús. Byggðasafn Vestmanneyinga 1 millj., Byggðasafn Ár­nessýslu vegna Farsæls 400 þús., Byggðasafn Suðurnesja 300 þús. Sjóminjafélag, Hafnarfirði, 400 þús., Sjó­minjasafn, Hafnarfirði, 5 millj. Þingeyrakirkja, viðgerð­arstyrkur, 600 þús., Vallakirkja, Svarfaðardal, viðgerð­arstyrkur, 400 þús., Mosfellskirkja, Grímsnesi, 500 þús. Gamla búð, Eskifirði, viðgerðarstyrkur, 600 þús. Saurbæjarkirkja á Rauðasandi 400 þús. Gæslukostnaður við byggðasöfn, sem greiddur er að hálfu af ríkinu, 16 millj. Flateyri, viðgerð á gömlu verslunarhúsi, 600 þús. Strandgata 50, Hafnarfirði, gamalt hús, sem bjarga þarf frá skemmdum, 600 þús., Staðarbakkakirkja 500 þús. Byggðasafn Dalamanna 500 þús. Ísafjörður, faktorshús o.fl.,1 millj., Ólafsvík, Norska húsið, 600 þús. Óráðstaf­að 1 millj. Samtals eru þetta 38 millj.

Gjaldfærður stofnkostnaður vegna Þjóðminjasafns er lagt til að hækki um 3 millj. kr. vegna endurbóta á byggingu safnsins og verði 24 millj. Rétt er að vekja athygli á því að villa leyndist a.m.k. í fyrstu prentun till. á þessum lið og á ég von á því að hún hafi verið leiðrétt. Af gjaldfærðum stofnkostnaði til Þjóðminjasafns eru 18 millj. kr. sérstaklega ætlaðar til þess að unnt verði að koma fyrir lyftu þar í húsinu, þannig að fatlaðir og hreyfihamlaðir eigi auðveldara með að notfæra sér þau söfn sem þar eru. Þetta er til viðbótar geymdu framlagi að upphæð 12 millj. kr. frá árinu 1979.

Liðurinn Listasafn Einars Jónssonar hækkar um 3 millj. kr. samkv. till., en sú hækkun er til þess að unnt verði að ráða í fullt starf að safninu listfræðing sem jafnframt verði forstöðumaður safnsins. Mun enda mörgum þykja tími til kominn að safni þessa merka listamanns verði sýndur sá sómi sem flestir eru áreiðan­lega sammála um að eðlilegt megi teljast.

Náttúruverndarráð: Þar lækka sértekjur um 21 millj. kr. og verða 5 millj. Hér er raunar um leiðréttingu að ræða þar sem framlag til Náttúruverndarráðs úr Þjóð­hátíðarsjóði hafði verið fært Náttúruverndarráði til tekna og sértekjur hækkaðar sem því nam, en í skipu­lagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð segir orðrétt, með leyfi forseta: „Við það skal miðað að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi við þau.“

Því þótti eðlilegt að breyta þessu.

Framlag til Menningarsjóðs hækkar í till. n. í B-hlut­anum um 5 millj. og verði 50 millj., en þessi upphæð er ætluð sem byrjunarframlag til að standa straum af út­gáfukostnaði við Kortabók Íslands, en um það hefur Alþingi ályktað, svo sem hv. þm. ætti að vera kunnugt.

Liðurinn Listir, framlög hækka samtals um 15.8 millj. og skiptist það sem hér segir: Bandalag ísl. leikfélaga 800 þús. Nýtt viðfangsefni kemur síðan, þ.e. önnur leiklist­arstarfsemi og leiklistarráð, 10 millj. og myndlistarskól­ar, styrkir, 5 millj.

Framlag til Norræna félagsins er hækkað um 1 millj. kr. í 2 millj.

Þá er komið að málefnum Íþróttasjóðs, en þar hækka rekstarstyrkir o.fl. um 10 millj., úr 25 millj. í 35. Liðurinn Bygging íþróttamannvirkja hækkar um 75 millj. og verður 497 millj. 640 þús. Er það rúmlega 54% hækkun frá fjárlögum í fyrra. Er þetta nánar sundurliðað í ítarlegu yfirliti yfir íþróttamannvirki sem samþykkt hafa verið í fjárlögum einstök ár að undanförnu, og er það að finna í till. n. svo og lista yfir þau ný íþróttamann­virki, sem heimilað hefur verið að hefja framkvæmdir við. Er þar einnig um að ræða allmörg íþróttamannvirki sem að hluta til eru skólamannvirki og nú fá framlög úr Íþróttasjóði fyrsta sinni. Allt er þetta talið upp á bls. 4–9 í brtt. fjvn. og ekki ástæða til að fara nánar út í þá skiptingu hér.

Verður þá næst fyrir liðurinn Viðeyjarstofa. Heiti þess liðar breytist og verður nú: Viðeyjarstofa og Nesstofa, og hækkar um 3 millj. Er sú hækkun m.a. tilkomin vegna Nesstofu til lagfæringar á því húsi, m.a. til hitalagna.

Liðurinn Æskulýðsmál: Þar er ráðgerð hækkun alls um 20 millj. 20 þús. og skiptist hún sem hér segir: Æskulýðsráð ríkisins hækki um 3 millj., Æskulýðssam­band Íslands um 1 millj., Ungmennafélag Íslands um 10.8 millj., Bandalag ísl. skáta um 2.4 millj., Bandalag ísl. skáta vegna Úlfljótsvatns um 600 þús., Bandalag ísl. farfugla um 80 þús., og framlag til Íslenskra ungtemplara hækki um 880 þús.

Þá leggur n. til að nafnbreyting verði á viðfangsefni sem merkt er 0117 og verði það eftirleiðis Landssam­band KFUM og KFUK, en þetta Landssamband er til­tölulega nýstofnað, og fjárveiting til þess verði hækkuð um 600 þús. frá því sem áður var veitt til KFUM og KFUK.

Liðurinn KFUM, starfsemi í Vatnaskógi, hækki um 360 þús. og KFUK, starfsemi í Vindáshlið, um 300 þús. Þá er komið að liðnum Ýmislegt, sem n. leggur til að hækki um 32.9 millj. Þar af eru 4 millj. vegna nýs liðar. Hljóðbókasafn heitir hann, en það bókasafn er starfrækt á vegum Blindrafélagsins og Borgarbókasafns Reykja­víkur. Þetta er starfsemi sem fer vaxandi og hennar er vissulega mikil þörf. Rétt er að það komi fram í þessu sambandi, að þeir, sem lesa inn bækur á hljóðsnældur fyrir Hljóðbókasafn blindra, gera það í sjálfboðavinnu.

Þá er gert ráð fyrir 1.5 millj. kr., og er það einnig nýr liður, vegna íslenskukennslu við Cornell-háskólann í Bandaríkjunum, en þar er eitt besta safn íslenskra bóka sem til er utan Íslands og hefur lengi verið í Íþöku. Veruleg hætta er talin á að íslenskukennsla þarna muni leggjast niður vegna fjárhagsörðugleika og því taldi n. rétt að þarna kæmi til lítið framlag af hálfu ríkisins ef verða mætti til að viðhalda þessari kennslu.

Nafnbreyting verður á lið sem merktur er 0225. Hann heitir hér eftir Nemendaskipti. Þessi liður var áður merktur AFS. Þetta eru nemendaskipti sem áður ein­skorðuðust við Vesturheim, en starfsemin hefur nú verið færð út þannig að hér er um að ræða nemendaskipti við fjölmörg lönd í ýmsum álfum, sem byggjast á því að íslenskir nemendur fá þar námsdvöl gegn því að við veitum nemendum hinna sömu landa námsdvöl og húsa­sk jól hér, en talsvert mun þó skorta á að þar sé jafnvægi.

Um aðrar breytingar á liðnum Ýmislegt er vísað til till. n. sem taldar eru upp sérstaklega á bls. 10 og 11 í till. nefndarinnar. Þó er þar einn liður sem rétt er að geta sérstaklega og er nr. 60 á bls. 11. Það er liðurinn Forseti FIDE, en sá liður hækkar úr 8 millj. kr. í 19.2 millj. eða um 11.2 millj. Ætti með því, ef samþ. verður, að vera tryggt að unnt sé að sú starfsemi, sem fylgir embætti forseta Alþjóðaskáksambandsins, geti flust hingað heim og verið með eðlilegum hætti, en þetta mál hefur töluvert borið á góma að undanförnu og fjölmiðlum hefur óspart verið beitt til kynningar þessu máli, svo að ekki sé sterkar til orða tekið.

Þá er komið að lið er varðar aðalskrifstofu utanrrn., en þar er gert ráð fyrir hækkun á launalið um 4 millj. vegna launa sérfræðings í sex mánuði, einkum til að vinna að rannsóknum og þó sérstaklega að útgáfustörfum vegna þegar gerðra rannsókna er varða landgrunnið norður af Íslandi og Jan Mayen.

Þá eru næst fyrir liðir er varða landbrn.

Launaliður hjá Búnaðarfélagi Íslands hækkar um 2 millj. vegna launa ráðunautar í hálft stöðugildi hálft þetta ár, en honum er einkum ætlað að sýsla um alifugla- og svínarækt, en það eru sem kunnugt er mjög vaxandi búgreinar nú.

Á Rannsóknastofnun landbúnaðarins er gert ráð fyrir að laun hækki um sömu upphæð, eða 2 millj. kr., vegna launa rannsóknamanns í hálfu stöðugildi hálft þetta ár, þ.e. frá miðju ári, við ylrækt og garðrækt. Þetta eru sömuleiðis búgreinar sem leggja ber vaxandi áherslu á og hlúa betur að en gert hefur verið.

Það má geta þess hér, að fram kom í viðtölum fjvn. við forstöðumann Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, að útsæðismálum í kartöflurækt hér á landi væri nú illa komið, það útsæði, sem væri notað, væri, eins og það var orðað á fundinum, orðið „meira og minna fullt af alls konar gerlum og sveppum“, áburðarnotkun varðandi kartöflurækt væri oft röng og fyrir kæmi að í íslenskum kartöflum væri of mikið af nítrati, sem nú á dögum er víst ekki talið sérstaklega heilsusamlegt. Þarna bæri því brýna nauðsyn til úrbóta. Til þess er þetta m.a. ætlað.

Landnám ríkisins: Þar hækkar framlag til grænfóðurverksmiðja um 40 millj. Ýmsar af þessum verksmiðjum hafa átt við örðugleika að etja í rekstri og því er tekinn upp nýr liður vegna fjármagnskostnaðar.

Sauðfjárveikivarnir: Ráðgert er að sá liður hækki um 8 millj. í 34. Er það einkum vegna viðhalds og viðgerða á sauðfjárveikivarnargirðingum, sem óhjákvæmilegt er talið að halda við og fámennum sveitahreppum er oft um megn að ráða við.

Framlag til Landgræðslusjóðs hækkar úr 19.3 millj. í 27.1 eða um 7.8.

Þá er hér næst að telja framlög til liðarins Fyrirhleðslur, en þau hækka um 25 millj. Liðurinn Landþurrkun hækkar um 5 millj. Skiptingu þessa fjármagns að því er fyrirhleðslur varðar, sem greiddar eru að fullu af ríkinu og þar sem hluti kostnaðar kemur annars staðar frá, er að finna á bls. 11 í till. n. og tel ég það ekki sérstaklega upp hér. Sömuleiðis er þar sundurgreining á liðnum Landþurrkun sem ég læt hér nægja að vísa til.

Landbúnaðarmál, ýmis starfsemi: Þar hækkar liðurinn Gróðurvernd í Búðahrauni um 80 þús., en þar var áður 20 þús. kr. framlag.

Liðurinn Búnaðarsamband Suðurlands vegna tilraunastöðvar hækkar um 3 millj. og verður 6 millj. Liðurinn Landvernd, félagssamtök, hækkar um 500 þús., verður 1.7 millj.

Þá leggur n. til að þarna komi til nýr liður sem er til kominn vegna þess að yfirstandandi ár er tileinkað skógrækt og trjágróðri: Ár trésins, og nemi hann 3 millj. kr.

Þá er komið að liðum er varða sjútvrn.

Þar er fyrst liður er varðar Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Gert er ráð fyrir að sértekjur lækki um 16 millj. kr. og verði 30 millj. Hér er aðeins um leiðréttingu að ræða, nánar tiltekið leiðréttingu á færsluvillu. Réttur er liðurinn 30 millj.

Önnur rekstrargjöld hækka um 1.8 millj. vegna húsaleigu fyrir rannsóknastofur á vegum þessarar stofnunar sem starfar í Vestmannaeyjum, en fyrir þessu hefur ekki verið áætlað áður.

Gert er ráð fyrir að liðurinn Framleiðslueftirlit sjávarafurða hækki að launum til um 6.5 millj. vegna launa eftirlitsmanns að því er varðar lagmetisiðnað. Af þessum sökum hækka rekstrargjöld einnig um 1.5 millj., sem er bein afleiðing af þessari stöðufjölgun. Það þarf líklega ekki að fara um það mörgum orðum hver nauðsyn það er að eftirlit sé með eðlilegum hætti og gaumgæfilegt í lagmetisiðnaði. Fréttir af mistökum í þeim efnum hafa verið tíðar í fjölmiðlum og ættu að vera mönnum býsna vel kunnar. Hins vegar er þess að geta, að öll starfsemi Framleiðslueftirlits sjávarafurða er nú í skoðun og þegar hefur verið skilað um það áfangaskýrslu sem fjvn. hefur fengið og raunar var fyrst sagt frá í blöðum. En ég held að mönnum sé ljóst að á starfsemi þessarar stofnunar hljóti að verða breytingar í náinni framtíð.

Skrifstofa Rannsóknastofnana atvinnuveganna: Þar hækkar gjaldfærður stofnkostnaður um 15 millj. Þar af eru 3 millj. vegna kaupa á ljósritunarvél og 12 millj. vegna kaupa á bifreið sem fjárlaga- og hagsýslustofnun mælti með vegna samrekstrar þessara stofnana að Keldnaholti, en þetta er m.a. til flutninga starfsfólks.

Eru þá næst fyrir till. n. er varða dómsm.- og kirkjumrn.

N. leggur til að laun hækki um 2.4 millj. hjá yfirstjórn vegna ráðningar löglærðs fulltrúa í hálfa stöðu við embætti sýslumannsins á Höfn í Hornafirði á miðju þessu ári.

Liðurinn Vinnuhælið að Litlahrauni. Þar hækkar launaliður verulega eða um 15.2 millj. kr. Þetta er vegna nauðsynlegrar fjölgunar fangavarða með tilkomu nýrrar einangrunardeildar, en þessi breyting er talin afar brýn og mat þeirra, sem til þekkja, að hún muni hafa í för með sér verulegar úrbætur.

Sjómælingar Íslands, önnur rekstrargjöld: Þar er lagt til að komi 3 millj. kr. hækkun vegna prentunar fiskikorta, og er það í samræmi við ályktun Alþingis frá 1977.

Á liðnum Þjóðkirkjan hækka Sumarbúðir um 1 millj., Hjálparstofnun kirkjunnar um 150 þús. Sérstakur launaliður vegna embættis dómprófasts í Reykjavík, þar sem um er að ræða að hluta sameiginlegt skrifstofuhald fyrir embættið vegna ýmissar þjónustu við presta hér í höfuðborginni, hækkar um 300 þús. Nýr liður: Tónskóli þjóðkirkjunnar, hækkar um 3 millj. kr. Liðurinn Byggingar á prestssetrum hækkar um 6 millj. Heiti viðfangsefnis, sem merkt er 0306, er breytt og er þar um leiðréttingu að ræða sem er nánast landfræðilegs eðlis.

Þegar rætt er um dómsmrn. langar mig til að víkja örfáum orðum að Bifreiðaeftirliti ríkisins sem heyrir undir það rn. Á s.l. ári var, að ég hygg, fyrir frumkvæði þáv. dómsmrh., Steingríms Hermannssonar, sett á stofn nefnd til að skoða rekstur Bifreiðaeftirlits ríkisins. Í þeirri nefnd átti sæti fulltrúi fjvn. Skemmst er frá því að segja, að sú nefnd skilaði ítarlegum tillögum s.l. haust. Þar er að finna rökstuddar tillögur til breytinga á rekstri Bifreiðaeftirlitsins sem í skemmstu máli miða að því að afnumið verði núverandi skráningarfyrirkomulag, tekið upp einfaldara og ódýrara kerfi og sömuleiðis að bifreiðaskoðunin verði að hluta til framkvæmd á verkstæðum. Rök eru að því leidd í skýrslum þessarar nefndar og niðurstöðum, að þetta geti haft í för með sér verulegan sparnað og ekki hvað síst þægindi fyrir borgarana sem þurfa að nota þessa þjónustu. Nú vil ég bera þá von og ósk fram, að það fari ekki svo um tillögur þessarar nefndar að þær haldi áfram að rykfalla, heldur verði samdar. Og ég hef vissa von og vissu fyrir því, að að því sé verið að vinna, og lagðar fram á Alþingi þær tillögur til lagabreytinga sem leiðir af þessari kerfisbreytingu, sem ég hygg að muni hafa í för með sér tvímælalausan sparnað í ríkiskerfinu. Þessu vildi ég koma hér að.

Næst eru breytingar er varða félmrn.

Gjaldfærður stofnkostnaður aðalskrifstofu hækkar um 12 millj. vegna stofnbúnaðar og innréttingabreytinga.

Að því er varðar Húsnæðismálastofnun ríkisins hækka framlög til heilsuspillandi húsnæðis um 35 millj. kr. Að sjálfsögðu er fjvn.-mönnum mætavel ljóst að hér er um of lága upphæð að ræða, en gildandi lög eru þannig, að ekki er heimilt að veita lán til þessa nema sérstaklega sé veitt til þess fé á fjárlögum, en lög um Húsnæðismálastofnun ríkisins eru nú öll í endurskoðun og raunar frv. hér til athugunar og er þess þá að vænta að þar verði breyting á.

Landakaup kaupstaða og kauptúna: Sá liður hækkar um 8 millj. og verður 10 millj. og verður samkv. því í samræmi við lög nr. 35 frá 1973.

Liðurinn Vatnsveitur hækkar um 20 millj. og verður 105 millj.

Liðurinn Framkvæmdasjóður öryrkja og þroskaheftra hækkar um 40 millj., og verður þá 1 milljarður og 60 millj. Málefni þessa sjóðs hafa töluvert verið rædd á fundum fjvn., og ég held að ég megi fullyrða að það sé sameiginleg skoðun allra nm. að til þurfi að koma sem allra fyrst sú breyting á lögum um þennan sjóð að undir hann falli einnig ýmsar sjálfseignarstofnanir svo og raunar ríkisstofnanir sem sérstök framlög ná ekki lengur til, en ættu af eðlilegum ástæðum og eðli máls samkvæmt að heyra undir þennan sjóð.

Á liðnum Vinnumál er gert ráð fyrir að tekið verði upp nýtt viðfangsefni, en það er þátttaka í starfi ILO eða Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem er ein elsta sérstofnun Sameinuðu þjóðanna og fjallar um vinnu- og verkalýðsmál, m.a. vinnuvernd og starfsumhverfi.

Þá er liðurinn Ýmis framlög vegna félmrn. Gert er ráð fyrir að sá liður hækki um 50 millj. 350 þús. og þar verði tekið upp nýtt viðfangsefni sem heitir í till. nefndarinnar Aðstoð við þroskahefta og nemur 20 millj. kr. Rétt er að skýra þetta nokkru nánar.

Það er algengt að foreldrar eða aðstandendur þroskaheftra barna eða einstaklinga, sem búsettir eru úti á landi, þurfa að komast hingað til höfuðborgarsvæðisins og jafnvel dveljast hér langdvölum eða a.m.k. um nokkurn tíma vegna læknismeðferðar eða rannsóknar barnanna. Þetta er þessu fólki afar dýrt og engin leið hefur verið fær til að rétta því hjálparhönd vegna slíkrar dvalar, sem í senn er nauðsynleg og óhjákvæmileg. Þessi liður er hugsaður í þá veru, að með þessu fé megi veita nokkra fyrirgreiðslu þeim einstaklingum utan af landi sem hingað koma og þurfa að dveljast hér af þeim sökum sem ég áður greindi.

Um aðrar brtt. á þessum lið, er varða framlög til einstakra félaga og samtaka, leyfi ég mér að vísa til till. n. á bls. 14 á þskj. 218, en þar er um nokkrar hækkanir að ræða.

Þá er komið að till. er varða heilbr.- og trmrn.

Launaliður hjá Matvælarannsóknum ríkisins hækkar um 15 millj. kr. og er það vegna fjölgunar um 21/2 stöðugildi við þá stofnun. Sannleikurinn er sá, að um langt skeið hefur verið fólk í þessum stöðum og hér er því í rauninni um að ræða viðurkenningu á staðreynd sem þó er tiltölulega nýtilkomin. Raunar, eins og kannske víðar, þyrfti stöðum við þessa stofnun að fjölga enn að mati þeirra sem þar ráða húsum. — Önnur rekstrargjöld: Þar er gert ráð fyrir hækkun um 10 millj. kr. vegna aukningar á húsnæði, en þar er gert ráð fyrir að fram fari einnig nokkur starfsemi önnur en á vegum Matvælarannsókna, m.a. á vegum eiturefnanefndar.

Næst er liðurinn Heilbrigðiseftirlit ríkisins, en þar hækka laun um rúmar 5 millj. vegna fjölgunar um einn ritara. Önnur rekstrargjöld hækka um 14.9 millj., m.a. vegna aðkeyptrar þjónustu.

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands: Þar hækkar gjaldfærður stofnkostnaður um 10 millj. Það er vegna kaupa á ýmsum stofnbúnaði, húsgögnum og fleira fyrir þessa stofnun sem nýlega hefur flust í nýtt húsnæði.

Þá er komið að liðnum Landspítali. Gjaldfærður stofnkostnaður hækkar þar um 200 millj. kr. eða 58% og verður samkv. till. fjvn. 993 millj. 700 þús. Skipting á einstaka liði er sýnd í brtt. á þskj. 218 og leyfi ég mér að vísa til þeirra á bls. 15, en bendi jafnframt á og vek sérstaka athygli á að þar er gert ráð fyrir 250 millj. kr. til geðdeildar og þar er með talin taugadeild sem nýta mun hluta af húsnæði geðdeildar samkv. samkomulagi milli aðila á spítalanum. Þá er einnig rétt að vekja athygli á því, að til undirbúnings svonefndrar K-byggingar eru veittar 100 millj. kr., en ekki er þó gert ráð fyrir að á þessu ári verði hafnar framkvæmdir við þessa byggingu, sem rísa mun á Landspítalalóðinni, heldur er þetta 100 millj. kr. framlag veitt til hönnunar, jarðvegsathugana og lagnakönnunar á því svæði þar sem þessu húsi er ætlað að rísa. Í þessari K-byggingu verða m.a. til húsa rannsóknastofur spítalans, sem mjög eru nú aðkrepptar með húsnæði, og valda húsnæðisþrengsli þar raunar því að vinnuhraði á spítalanum er kannske ekki sá sem gæti orðið ef rannsóknadeildir væru afkastameiri og byggju við betri starfsaðstöðu. Í þessari byggingu er einnig gert ráð fyrir að krabbameinslækningar verði til húsa. Hér er sem sagt um að ræða framlag til hönnunar og athugana.

Liðurinn Bygging sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og læknisbústaða, annarra en ríkissjúkrahúsa hækkar um 880 millj. og verður 3 milljarðar og 80 millj., en það er 68% hækkun frá síðustu fjárlögum. Innbyrðis skipting þar er eins og sýnt er í sérstöku yfirliti í brtt. n. á þskj. 218.

Þótt í till. fjvn. sé gert ráð fyrir allverulegri hækkun á þessum lið frá því sem er í fjárlagafrv. og raunar meiri en flestum öðrum veit ég að allir fjvn.- menn og alþm. geta undir það tekið, að þessi hækkun hefði þurft að vera meiri. Hér vantar vissulega á að unnt sé að verða við jafnvel brýnustu þörfum, og hefði þessi liður því þurft að hækka meira.

Framlag til Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, Hrafnistu, Hafnarfirði er hækkað um 25 millj. í 75. Gert er ráð fyrir að upp verði tekinn nýr liður: Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi, og til hans ætlaðar 15 millj.

Í þessu sambandi er líka rétt að geta þess, að í yfirlitinu kemur fram að töluverðu fjármagni á að verja til B-álmu Borgarspítala í Reykjavík eða 420 millj. kr., en þar á að rísa deild fyrir öldrunarsjúklinga, langlegudeild, en satt best að segja hefur ekki verið vansalaust hvernig þjóðfélagið hefur búið að þeirri hlið málefna aldraðra.

Rétt er að geta eins í sambandi við þennan lið, en þar er um að ræða fjárveitingu til sjúkrahússins á Akureyri. Sterkar óskir komu fram um verulega hækkun á þessum lið, m.a. vegna tengibyggingar, sem ekki reyndist kleift að gera till. um á þessu stigi. Það er hins vegar skoðun fjvn., að telji Akureyrarbær unnt að ráðast í byggingu þessarar tengibyggingar milli kjarnabyggingar og sjúkrahúss og þó ekki sé fé sérstaklega til þess veitt telur fjvn. ekkert því til fyrirstöðu, að öllum réttum leyfum fengnum, að hafist verði handa um byggingu þessarar tengiálmu.

Um aðra liði vísast til sundurliðunar í yfirliti nefndarinnar.

Liðurinn Ýmis heilbrigðismál er gert ráð fyrir að hækki alls um 69.5 millj. kr. Þar hækkar framlag til Hjartaverndar um 10 millj. og til Krabbameinsfélags Íslands um 22.5 millj.

Kostnaður samkv. farsótta- og sóttvarnarlögum og lögum um ónæmisaðgerðir hækki um 25 millj., en til nánari skýringar má geta þess, að hér er um að ræða aðgerðir vegna þess sjúkdóms er kallast rauðir hundar og valdið getur fósturskemmdum. Þær aðgerðir, sem hér um ræðir, beinast að því að öllum konum á barneignarskeiði verði gefið ónæmisefni gegn þessum sjúkdómi og er þessu verki langt komið.

Liðurinn Sjúkraflug hækkar um 7 millj. og verður 19 millj. Mun fjvn. síðar gera till. um skiptingu á þessu fé. Ný liður bætist inn: Starfslaun Ófeigs J. Ófeigssonar læknis, 3 millj. Þessi liður var í fjárlögum 1979, en féll niður við fjárlagagerðina og er vegna rannsókna- og fyrirlestrahalds Ófeigs J. Ófeigssonar.

Liðurinn Rannsóknir á útbreiðslu atvinnusjúkdóma hefur hækkað um 2 millj. í till. n. Er það sérstaklega hugsað til rannsókna á heymæði og útbreiðslu hennar hér á landi, en þær rannsóknir eru þegar hafnar.

Næst er til að taka að framlag til Gæsluvistarsjóðs, Bláa bandið, hækkar um 500 þús., félagasamtökin Vernd hækki um 500 þús. og styrkur til Samtaka áhugamanna um áfengisbölið hækkar um 2 millj.

Styrkir til Stórstúku Íslands hækka um 1.8 millj. Eru þá næst liðir er varða fjmrn.

Uppbætur á lífeyri á lið nr. 381: Gert er ráð fyrir að þær hækki um 5 millj. Styrktarfé og ýmis eftirlaun hækki um 11.8 millj. og styrktarfé og ýmis eftirlaun, liður nr. 384, hækki um 7.2 millj., en nánar um þessa liði er að finna í sérstökum yfirlitum.

Þá eru næst mál er varða samgrn.

Vegagerð ríkisins: Liðurinn til einstaklinga og samtaka hækki um 2.5 millj. og verði 8.5, en samkv. venju hefur fjvn. skipt þessum lið til aðila sem reka gististaði á stöðum þar sem stikur rekstur er erfiður, en engu að síður nauðsynlegur talinn.

Vita- og hafnamál: Þar mælir n. með að nýr liður verði upp tekinn: Til fyrirtækja í B-hluta 40 millj. Hér er um að ræða framlag til byggingar áhaldahúss fyrir vitamálastjórn við Fossvog og endurbætur á aðstöðu starfsmanna í því sambandi. Rétt er að geta þess, að n. kom í áhaldahúsið og skoðaði hversu búið er að fólki og var það, held ég, samdóma niðurstaða nm. að þarna þyrfti úr að bæta. Því má skjóta að í þessu sambandi, að fjvn. gerði fleiri vettvangskannanir. — Ég hefði kannske átt að geta þess fyrr. Hún skoðaði einnig húsakynni Landspítalans og hin nýju húsakynni geðdeildarinnar á Landspítatalóð. Vegna þess, hvernig málum var háttað nú, gafst ekki tími til svo margra vettvangsskoðana sem fjvn.-menn hefðu kosið, en rétt er að hafa í huga í framtíðinni að slíkar heimsóknir eru ekki aðeins gagnlegar, heldur nauðsynlegur og óhjákvæmilegur þáttur í starfi nefndarinnar.

Hafnarmál. Þar hækkar liðurinn Ferjubryggjur um 3 millj. Sérstök yfirlit í brtt. n. sýna skiptingu á þessum lið. Framlög til hafnarmannvirkja og lendingarbóta hækka um 275.7 millj. og er till. um skiptingu þess fjármagns að finna á sérstöku yfirliti. Hækkun milli ára er þarna 43%.

Flugmálastjórn: Þar er gert ráð fyrir hækkun er nemur 3 millj., en hér er um að ræða framlög til áhugamannafélaga á sviði flugmála. Mælir fjvn. með að Flugsögufélag Íslands fái 2 millj. af þessari upphæð, en það er vegna máls sem skyndilega kom upp fyrir skömmu er félaginu gafst kostur á að kaupa gamla flugvél af sömu gerð og Waco-flugvélin sem hér var notuð fyrst til áætlunarflugs, TF-Örn. Þetta er sem sagt ætlað til þess.

Þá er gert ráð fyrir að ýmis framlög til flugbjörgunarsveita hækki um 900 þús. kr.

Veðurstofa Íslands: Gert er ráð fyrir að liðurinn Hafísrannsóknir hækki um 2.4 millj. kr. vegna ráðningar hafísrannsóknamanns í 2/3 úr stöðugildi á miðju þessu ári. Ætti ekki að þurfa að fara mörgum orðum um nauðsyn þess, að af hálfu Veðurstofu Íslands sé slíkum rannsóknum sinnt.

Framlög til sjóvarnargarða lækka úr 60 millj. kr. í 53 millj. og er sundurliðun þar að lútandi að finna á bls. 22 í till. n. Þar er einnig greint frá sundurliðun til framkvæmda við ferjubryggjur.

Þá er komið að liðum er varða iðnrn.

N. leggur til að liðurinn Iðja og iðnaður, orkusparnaður hækki um 10 millj. kr., verði 40 millj. Það er till. fjvn., að af þessari 10 millj. kr. hækkun fari 7 millj. til rannsókna og hagnýtra tilrauna á nýtingu vindorku til húshitunar í Grímsey, en slíkar framkvæmdir standa nú fyrir dyrum á vegum Verkfræðistofnunar háskólans og Raunvísindastofnunar háskólans. Er hér um hið merkasta mál að ræða, eins og menn hafa sjálfsagt séð í sjónvarpsfréttum fyrir nokkrum kvöldum þar sem sýnt var frá hliðstæðum tilraunum. Einnig leggur n. til að 3 millj. af þessum 10 verði varið til rannsókna á framleiðstu eldsneytis úr innlendum orkulindum og einkum er þar haft í huga vetni.

Lagt er til að liður nr. 0121 hækki um 2.5 millj., verði 8.5, jafnframt breytist þar heiti, verði eftirleiðis Byggingaþjónustan, hét áður Byggingaþjónusta arkitekta. Nú er þetta sjálfseignarstofnun, m.a. með aðild Húsnæðismálastofnunar ríkisins, og gegnir því hlutverki að veita fólki, sem er að byggja, ýmiss konar upplýsingar og þjónustu.

Á liðum er varðar viðskrn. er gert ráð fyrir hækkunum að því er varðar Verðlagsstofnun, launahækkunum er nemi 24.7 millj. vegna fjölgunar starfsmanna um 31/2 stöðugildi auk annarra launahækkana. Þessi fjölgun starfsmanna er m.a. afleiðing af auknum verkefnum sem á stofnunina hafa verið lögð, m.a. með lögum. Önnur rekstrargjöld hækka um 5.2 millj. kr.

Skylt er að geta þess hér, að þrír fulltrúar Sjálfstfl. í fjvn., þeir Lárus Jónsson, Friðrik Sophusson og Guðmundur Karlsson, tóku ekki afstöðu til þessarar sérstöku till. um hækkun á framlögum til Verðlagsstofnunar.

Þá er komið að því að gera grein fyrir brtt. sem fluttar eru af meiri hl. n. á sérstöku þskj., 229, og gera ráð fyrir ýmsum innbyrðis breytingum í frv., en að þeim stendur meiri hl. n. Finnst mér rétt að taka það fram sérstaklega, að ég styð þær till. einnig þar sem með þeim gefst 1800 millj. kr. svigrúm til að hækka ýmsar fjárveitingar til sjúkrahúsa, skóla og hafna, svo að nokkuð sé nefnt, sem n. átti öll aðild að því að skipta og hér hefur þegar verið gerð grein fyrir.

Í frv. var gert ráð fyrir að innlend útgáfa verðbréfa og happdrættisskuldabréfa yrði 5.6 milljarðar. Ákveðið hefur verið að auka þessa útgáfu um 800 millj. kr., þannig að fjárhæðin verði 6.4 milljarðar. Sala spariskírteina er háð ýmsum atriðum, eins og lánskjörum, atvinnuástandi og fleira, en talið er að möguleikar séu allgóðir til sölu á bréfum er þessari fjárhæð nemur.

Áhættugjald vegna ríkisábyrgða er hækkað um 100 millj. kr. Áhættugjaldið var talið varlega áætlað í frv., en miðað við lántökuáform er ljóst talið að þetta gjald verði a.m.k. 100 millj. kr. hærra en ráðgert var.

Framlag til Atvinnuleysistryggingasjóðs kemur að fjórða hluta frá sveitarfélögum, fjórða hluta frá atvinnurekendum og helmingi til frá ríkissjóði. Hluti atvinnurekenda er innheimtur af ríkissjóði og færist til tekna til ríkissjóðs við innheimtu og til gjalda við skil. Í ljós hefur komið að áætlun fyrir árið 1979 var ofmetin miðað við raunverulega útkomu það ár. Miðað við nýjar upplýsingar þykir raunhæft að breyta áætlun fyrir árið 1980 þannig að lækka tekjur ríkissjóðs vegna iðgjalda atvinnurekenda um 300 millj. og lækka útgjöld ríkissjóðs á móti um 900 millj.

Óviss útgjöld eru lækkuð um 250 millj. kr. og verða 610 millj. Í fyrri frv. fyrir árið 1980 hefur þessi liður numið 110 millj. kr. og í fjárlögum fyrir árið 1979 var hann 160 millj.

Vextir eru lækkaðir um 150 millj., en sú breyting er rökstudd m.a. með því, að verðbótaþætti vaxta er ekki ætlað að hækka samkv. stefnu ríkisstj. í vaxtamálum, auk þess sem nokkuð var áætlað fyrir óvæntum vaxtaútgjöldum á þessum lið.

Þær breytingar, sem ég hef nú rakið á þskj. 229, gefa sem sé svigrúm til þeirra hækkana sem áður var getið. Ég hef áður getið þeirra mála sem bíða munu 3. umr., svo sem venja er að nokkru til, og tíunda það ekki frekar hér.

Brtt. meiri hl. fjvn. og n. allrar við 4. gr. frv. hafa í för með sér, ef samþykktar verða, hækkun er nemur 1 milljarði 688 millj. 365 þús. kr. og samkv. þessum breytingum og breytingum á 3. gr. verður greiðslu jöfnuður 1254 millj. 167 þús. kr. í stað rúmlega 2 milljarða, eða 2 milljarða 42 millj. 532 þús. kr.

Fskj. með nál. er yfirlit frá fjárlaga- og hagsýslustofnun yfir lækkun fjárveitinga í fjárlögum ársins 1979, svo sem heimild var til í 6. gr. fjárlaga fyrir það ár, og vísast hér með til þess. Þá er og fskj. með nál. yfirlit yfir breytingar á fjárlagafrv. 1980 samkv. till. og aths. við þær samkv. till. sem ég,hef flutt á sérstöku þskj. til breytinga við fjárlagafrv. Mun ég nú gera sérstaka grein fyrir þeim till. sem ég stend einn að af hálfu Alþfl. og horfa til breytinga á frv. til fjárlaga fyrir árið 1980.

Eðlilegast hefði verið við fjárlagagerðina nú að byggja á fjárlagafrv. ríkisstj. Alþfl. Núv. ríkisstj. valdi hins vegar þann kost að víkja í veigamiklum atriðum frá því frv., en það gerði ráð fyrir verulegri lækkun tekjuskatts á almennum launum svo og framlagi til jöfnunar hitakostnaðar. Till. Alþfl., sem ég mæli hér fyrir til breytinga á fyrirliggjandi fjárlagafrv., miða einungis að því að sníða af frv, verstu agnúana. Till. Alþfl. fela það í sér, að leitast sé við að gæta aðhalds af hálfu ríkisins bæði að því er varðar rekstrargjöld og framlög til einstakra sjóða og skyldra verkefna. Jafnframt miða þær till. að því að fjárlögin taki til allra meginþátta í ríkisbúskapnum, en ekki séu undanskildar viðbótarálögur af ýmsu lagi, svo sem vegna jöfnunar hitakostnaðar og félagslegra aðgerða á sviði húsnæðismála, eins og fjmrh. hefur boðað. Þessi vinnubrögð fjmrh. tel ég ekki til fyrirmyndar og einungis til þess fallin að skekkja þá heildarmynd sem fjárlög eiga að gefa. Þær till., sem Alþfl. gerir til breytinga á fyrirliggjandi frv. til fjárlaga fyrir árið 1980, eru þessari:

Álagður tekjuskattur einstaklinga lækki sem nemur 7.2 milljörðum kr. Nauðsynlegt er að ríkið dragi úr skattheimtu ef vænta á aðhalds af öðrum aðilum til viðnáms gegn verðbólgu. Fjmrh. hefur látið svo um mælt, að á þessu ári sé ekki svigrúm til grunnkaupshækkana, og samkv. forsendum fjárlagafrv. er kaupmáttarskerðing 4.5%. Fjárlagafrv. boðar í raun stórhækkun tekjuskatts. Vegna kaupmáttarskerðingarinnar er því brýnt að draga úr skattbyrði eftir því sem svigrúm er til, einkanlega á lægstu tekjum, og vernda með því lífskjör launafólks í landinu.

Þá gera till. Alþfl. ráð fyrir að 4 milljörðum kr. verði varið til jöfnunar á hitakostnaði. Í fjárlagafrv. ríkisstj. Alþfl. var gert ráð fyrir 2.3 milljörðum kr. til þessa viðfangsefnis, en jafnframt var bent á að afla þyrfti viðbótarfjármagns til að hækka þá upphæð. Þessa 2.3 milljarða er hins vegar hvergi að finna í frv. núv. ríkisstj. og hefur fjmrh. notað þá upphæð til annars. En til að standa við þau loforð, sem gefin voru við olíuverðshækkunina á s.l. ári, mun alls þurfa um 4 milljarða kr.

Til umræðu hafa verið hugmyndir um sérstakan orkuskatt til að greiða fyrir jöfnun hitakostnaðar. Við nánari athugun þess máls hygg ég að æ fleiri hafi orðið ljóst að hér er í senn um mjög flókið og vandasamt mál að ræða ef tryggja á að hugsanleg skattheimta af þessu tagi skili þeim árangri, sem til er ætlast, án þess að hafa óæskileg hliðaráhrif. Slík umfjöllun og athugun hlýtur óhjákvæmilega að taka verulegan tíma. Alla vega er alveg ljóst að henni getur ekki lokið fyrir afgreiðslu fjárlaga. Þetta mál er hins vegar brýnt og þolir ekki bið. Því er í till. Alþfl. gert ráð fyrir að málið verði þegar leyst með þessum hætti, það verði gert innan ramma fjárlaga, en málinu ekki vísað út í óvissuna, eins og nú virðist ætlun ríkisstj. að gera.

Í fjárlagafrv. ríkisstj. er gert ráð fyrir verulegum niðurskurði á framlögum til Byggingarsjóðs ríkisins. Vitaskuld er ljóst að fjárhagsvanda þess sjóðs verður að leysa, svo að hann geti undanbragðalaust staðið við skuldbindingar sínar, og verður að vænta þess að ríkisstj. beiti sér fyrir því. Hins vegar er ljóst að íbúðabyggjendur búa við sérstakan vanda vegna hinnar öru verðbólguþróunar. Einkum á þetta við um það unga fólk sem er að eignast sína fyrstu íbúð. Til að mæta þeim vanda þarf sérstakt átak, sem ekki má dragast, og í því skyni gera till. Alþfl. ráð fyrir að 1 milljarði kr. verði varið til félagslegra aðgerða á sviði húsnæðis- og dagvistunarmála.

Til að mæta þessum útgjöldum, sem ég hef nú gert grein fyrir og samtals nema 12.2 milljörðum kr., eru gerðar till. um ýmsar breytingar án þess að til nýrrar skattlagningar komi á launafólk. Þær breytingar eru helstar sem hér segir:

Framlög til Byggðasjóðs, jarðræktar og framræslu eru lækkuð um 20% til samræmis við lækkun fjárfestingarsjóða. Nemur lækkun útgjalda af þessum sökum samtals 976 millj. kr. Þá er gerð till. um að niðurgreiðslur af landbúnaðarvörum og bætur vegna útflutnings landbúnaðarafurða lækki og verði í samræmi við þær till. sem gerðar voru í fjárlagafrv. ríkisstj. Alþfl., en lækkun þessara tveggja liða nemur samtals 4.2 milljörðum kr. og er þar stærri hlutinn niðurgreiðslur.

Fjárlagafrv. ríkisstj. gerir ráð fyrir hækkun til Lánasjóðs ísl. námsmanna er nemur 3.1 milljarði kr. miðað við síðustu fjárlög. Ljóst er að hækkun framlagsins til Lánasjóðs ísl. námsmanna er ekki í neinu samræmi við aðrar breytingar milli ára og að endurgreiðslur lána til sjóðsins hafa skilað sér seint og illa. Ég held að ef þm. skoða fjárlagafrv. og hvað þar er gert ráð fyrir að greiðist af eldri lánum til sjóðsins muni þeir horfa a.m.k. tvisvar, þrisvar ef ekki fjórum sinnum á þá tölu, sem þar stendur, til þess að trúa henni, en hún er víst engu að síður rétt. Hér ber brýna nauðsyn til að framfylgja reglum um eðlilega endurgreiðslu þessara lána á raunvirði, og með hliðsjón af því er lagt til að framlag til Lánasjóðsins hækki, en hækki ekki meir en nemur verðhækkunum milli áranna 1979 og 1980 eða um 46.5%. Lækkun á framlagi til Lánasjóðs ísl. námsmanna verður því rúmlega 2.1 milljarður kr.

Mér er ljóst að hér er áreiðanlega ekki um vinsælt mál að ræða, en ég held að hér sé um að ræða mál sem þm. verði að tala um og verði að taka afstöðu til. Ef menn skoða þá gífurlegu hækkun, sem verða á samkv. frv. á framlögum til Lánasjóðs ísl. námsmanna, hygg ég að menn muni sjá að sú hækkun er út úr hlutföllum við allar aðrar breytingar sem á þessu frv. verða. Ég er ekki að draga úr því að veita beri námsfólki aðstoð, margt námsfólk þarf á slíkri aðstoð að halda, en ég hygg hins vegar að ekki þurfi allt námsfólk á allri þeirri aðstoð að halda, sem hér er gert ráð fyrir, og ég held að ef menn skoða þetta frv. og þær breytingar, sem hér eru gerðar, hljóti þessi breyting að stinga töluvert í augu.

Þetta mál er komið úr böndum. Það hlýtur að verða að endurskoða allar reglur um endurgreiðslu og fylgja þessu eftir þannig að hér verði um lán að ræða sem verði endurgreitt þegar námsmenn hefja vinnu að námi loknu. Það hefur jafnvel verið orðað svo, að þessi sjóður væri orðinn eins konar skrímsli í kerfinu sem enginn réði við. Víst er að það er ekki þrautalaust að ná sambandi við þennan sjóð til að ná í upplýsingar, því að það virðist vera alveg sama hvenær dagsins er hringt þangað eða hve oft, það næst aldrei samband. Hér held ég að hljóti að þurfa að koma til breytingar og bið menn um að taka það til alvarlegrar athugunar.

Þá er í till. Alþfl. um nokkra lækkun að ræða á framlagi til heimildargreiðslna samkv. 6. gr. fjárlaga og vegna óvissra útgjalda fjmrn., samtals 800 millj. kr., sem þýðir í raun að fjmrh. hefur nokkru minna ráðstöfunarfé til frjálsra nota.

Í till. Alþfl. er enn fremur gert ráð fyrir nokkurri tekjuhækkun hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Verði hagnaðaraukning fyrirtækisins í samræmi við launahækkanir á árinu samkv. forsendum fjárlagafrv. má gera ráð fyrir að hagnaðurinn verði 26 milljarðar kr., en ekki 24 milljarðar eins og frv. gerir ráð fyrir.

Lagt er til í samræmi við þá aðhalds- og sparnaðarstefnu, sem skylt er að fylgja í rekstri og umsvifum ríkisins, að útgjöld vegna launa og almennra rekstrargjalda lækki sem svarar 1% frá frv. ríkisstj. eða um 1130 millj. kr., og er þar, að ég hygg, ekki til mjög mikils mælst.

Þá er gerð till. um að fjárveitingar til Hólaskóla verði lækkaðar nokkuð, en þar fer nú engin kennsla fram sem kunnugt er. Hins vegar er gert ráð fyrir að þar verði áfram að sjálfsögðu fjármagn til vörslu mannvirkja og eðlilegs viðhalds.

Þá er þess að geta, að í frv. núv. ríkisstj. er gert ráð fyrir að tekjuskattur félaga nemi 10 milljörðum kr. Í frv. ríkisstj. Alþfl. var hins vegar gert ráð fyrir að tekjuskattur félaga næmi 10 milljörðum 850 millj. kr. Engin rök sýnast hníga að því að draga úr skattbyrði félaga og er því þessi upphæð lækkuð til fyrra forms, nema því aðeins að hér sé um að ræða nýja stefnu Alþb. að lækka skatta á fyrirtækjum í landinu.

Í till. Alþfl. er enn fremur lagt til að 1700 millj. kr. verði varið til að lækka skuld ríkissjóðs við Seðlabanka Íslands og að greiðsluafgangur lækki sem því nemur.

Þessar till., sem ég hef í síðasta hluta ræðu minnar gert grein fyrir, fela í sér markvissa stefnumótun til að draga úr verðbólgu og vernda kjör láglaunafólks, jafnframt því sem ríkið gæti aðhalds hjá sér, svo sem það ætlast til af öðrum.

Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.